29 maí 2006

Allt og ekkert

Jæja, ég hef alveg fullt að segja frá en man ekki eftir helmingnum.
Ég er allavega komin með nýja klippingu og nýjan lit í hausinn, ég byrja í skólanum á morgun, er smá stressuð útaf því.
Búin að panta miðann til eyja fyrir mig og Lilju um verslunnarmannahelgina, erum að fara að plana smá dæmi sem við stelpurnar verðum með.
Styttst mjög í utanlandsferðina.
Hvað skal ég segja meira, jamm ég prufu keyrði opel astra (östru) glæ nýja og beinskipta á föstudaginn og hún er nett geðveik, er smá að pæla að fá mér eina, sé samt bara til, þarf að pæla aðeins meira í þessu, en þið getið hjálpað mér, hvort á ég að fá mér, MAZDA eða OPEL. svarið nú :o)

Ég fór aðeins út á laugardaginn, kíkti með Lilju og Evu smá í partý og svo á staðina, það var mjög fínt.
Einn mjög skrautlegur með okkur og er það hann Gummi sem er frændi Lilju og er hann að fara að gifta sig næstu helgi. Good luck Gummi.
Ég hitti alveg fult af fólki en ég nenni ekki að skrifa um það, ég þoli ekki að lesa svoan DJAMM blogg og hvað þá að skrifa þannig, en ég læt bráðum inn myndir og þið getið kíkt á þær.

24 maí 2006

Anginn litli

Litli kallinn minn er allur að koma til, sem betur fer.
Ekkert gaman að hanga svona inni og geta ekki hitt vini sína og leikið sér smá.
En já ég er að fara að byrja í sumarskólanum, úff hvað þetta verður strembið, taka 2 fög á mánuði sem tekur yfirleitt 3-4 mánuði í venjulegum skóla.
En ég skal, ég get og ég mun ná þessum fögum.
Svo styttist óðfluga í utanlandsferðina, það verður æði að fara með litla kút út, fara á ströndina, kíkja í vatnagarða og auðvitað versla smá :op
Þetta verður ferð sem ekki er hægt að gleyma ég er alveg viss um það.
En ég hef eitthvað svo lítið að segja, ég hef líka ekkert gert upp á síðkastið.
Fór reyndar á Duus með Aldísi á föstudaginn og Eiki kíkti á okkur og svo fór ég bara heim.
Hef ekkert gert neitt spennadi síðan þá nema auðvitað að kúra hjá kallinum mínum sem er bara æði.

20 maí 2006

Litli veiki strákurinn minn

Æji hvað þetta getur verið erfitt fyrir lítinn kropp.
Litli kallinn minn vakanði svo veikur í morgunn og er það enn.
Ég skil ekki hvernig svona lítill kroppur eins og hann geti verið svona veikur.
Hann er bara búinn að vilja mig og kúra hjá mér, hann er svo mikið yndi.
Vonandi batnar honum sem fyrst svo hann geti horft á keppnina í kvöld.
En ég blogga meira næst.

19 maí 2006

***MONT***

Jamm ég verð að monta mig.
Ég NÁÐI ÖLLUM fögunum í skólanum, fékk meira að segja eina 10 :o)

Er ekkert smá ánægð með það :o)

15 maí 2006

Lífið

Æji ég veit ekkert afhverju ég hafði þennan tiltil hér fyrir ofan, vantaði bara eitthvað og datt þetta bara í hug.

En já ég er búin að vera ekkert smá dugleg að hreyfa mig, búin að fara í sund með litla, út að labba með litla, leyfa honum að hjóla og ég að ýta honum.
En ég ætla mér að vera duglegri, fara að synda og í ræktina 3 sinnum í viku og út að labba á hverjum degi eða bara hjóla.

En vá ég er að fatta það að ég tala svolítið mikið um ræktina í hverju bloggi og hér með er ég hætt því þangað til að þetta verður að alvöru.

En já ég er þvílíkt búin að vera að plana næstu mánuði og eiginlega bara næsta ár.
Ég vona svo innilega að ég komist í lögregluskólann, ég þarf að fara að sækja um, inntökuprófið er í endaðan ágúst og ef ég kemst inn þá byrjar skólinn í janúar.
Úff hvað ég er samt hálf kvíðin, en samt spennt.

En já ég hef ekekrt að segja, er bara að pæla að fara upp í rúm og fara snemma að sofa.
Ná smá orku fyrir morgun daginn því þá verður smá stuð á mér og litla :o)

11 maí 2006

Sumarskóli og sumarfrí

Jæja, þá er mín bara búin að skrá sig í sumarskóla og panta fer til útlanda með fjölskyldunni, ekkert smá flott.
En já með sumarskólann þá tek ég 2 fög ekki 1 eins og ég ætlaði mér, ég fer í ensku og félagsfræði og það er bara aldrei að vita nema maður taki eitt fag í viðbót en ég held að þetta sé alveg nóg fyrir mig.
En ég er orðin ekkert smá spennt fyrir að komast til útlanda, en ég veit að ég á eftir að blogga mikið um það þannig að ég ætla að sleppa því núna.
En já ég er enn að leita að barnapíu svo ég geti skellt mér í ræktina, ég verð að fara að hreyfa á mér rassinn, ég get þetta ekki lengur, vil líka fara að fá betra þol og flottan maga.
En já ég ákvað að skella bara inn smá bloggi til að láta vita að ég er á lífi, lofa að vera duglegri að blogga.

09 maí 2006

Árshátíð, splash og föstudagurinn, laugardagurinn og sunnudagurinn.

Ætli það sé ekki best að blogga smá um helgina.
En allavega þá fór ég á árshátíð Björgunarsveitar Suðurnes á föstudaginn, það var nú þó nokkuð gaman þar, en fyndna er að ég gat ekki borðað neitt nema gularbaunir, rauðkál, brauð, salat og brúnaðar kartöflur.Hér er mynd af matnum mínum :op
En eins og flestir ef ekki allir vita þá drekk ég ekki, þannig að ég fór bara á barinn og bað um sprite en barþjónninn gaf mér sprite með smá kirsuberjasafa og einu kirsuberi sem var bara gott, svo smakkaði ég reyndar nokkra óáfenga drykki sem voru flesst allir mjög góðir :o)
Ég og Hanna fengum bara vinnu á Ránni og áttum að mæta á mánudaginn í smá spjall við eigandann en ég fór ekki því ég er ekki með barnapíu á þeim tíma sem ég gæti unnið þarna.
Svo fórum við Hanna og Björgvin bara á hina staðina og hittum Eika og Grétar, það var mjög gaman með þeim. Tekið smá ballskák eða hvað sem íslenska orðið er, ég og Hanna feitt töpuðum fyrir strákunum en ég get allavega sagt að ég hitti fleirri kúlum ofan í en Hanna og hún þurfti meira að segja hjá með þær sem hún hitti :op
Svo á laugardaginn fór ég á duus í smá stund því Gerða var að halda upp á afmælið sitt, svo seinna um kvöldið fór ég heim til hennar og svo á Splashið, það var bara nokkuð gaman, sumir mjög drukknir og taka þeir það bara til sín :op
En já ég beilaði víst á Bjarna á dansgólfinu þannig að hann á bara inni dans hjá okkur stelpunum seinna :op
Er samt ekkert viss að hann vilji vera í kringum okkur þegar við erum að dansa því við tókum bara gólfið og áttum það :o)
Ég hitti alveg fullt af fólki og mjög gaman að hitta flesta ef ekki alla :o)
Takk mamma og Mía fyrir að passa :o*

En já á föstudaginn fór ég í afmælið til Óla á Paddys, það var mjög gaman þarna, ég var bara með stelpunum og svo voru þær allar að fara þannig að ég var bara með Eika sem er vinur Björgvins sem er kærasti Hönnu vinkonu, SKILURU?
Við kíktum eitthvað á hina staðina en ekkert stuð þar, tókum reyndar smá pool á Traffic og svo bara aftur á Paddys, Hanna og þau komu svo og við vorum bara eitthvað með þeim, svo fór ég bara heim, enda orðin svolítið þreytt og klukkan orðin svolítið margt.
En á laugardeginum var ég bara heima að klápa kassann og dvd og var hún Solla hjá mér til að verða 1 en eftir að hún fór þá ákvað ég að skella mér bara í háttinn og kúra með litla kallinum.
Svo á sunnudaginn þá var ég bara heima, fór að rúnta um daginn og lilja kíkti með, við fórum út að hjóla með litla eða hann hjólaði og flotta sumarhjólinu sínu og svo var bara haldið heim, en eftir að ég var búin að svæfa prinsinn þá fór ég á rúntinn með Eika og vorum við bara eitthvað að spjalla.

En út í aðra sálma, þá er ég ekkert smá spennt fyrir sumrinu, vera með fjölskyldu minni og njóta tímans með syni mínum.
Fara til útlanda og skemmta mér, ferðast ef til vill eitthvað um landið og lifa lífinu lifandi og á heilbrigðan hátt.
Njóta þess að eiga svona góða að og kannski dobla hann afa að hjálpa mér að bóna bílinn, veit að hann er alveg til í það.
Svo er líka markmiðið í sumar að hugsa um líkamann og fara í einkaþjálfun svo maður verði komin í gott form fyrir Janúar, því þá verður aðal stuðið, kannski ekki beint gaman að keyra brautina á hverjum degi en það verður alveg þess virði, svo verður maður líka að fara að klára stútentinn og svo bara skella sér í háskólann, það þýðir ekkert að hanga bara á rassinum og vera bara einhver aumingi, það ætla ég mér sko ekki, ég stefni hátt og ætla mér að komast þangað, þótt það muni taka langan tíma.

En verið svo væn að muna að commenta.

05 maí 2006

How do you like?

Hvernig finnst þér þetta lúkk?
Allir að commenta...

02 maí 2006

Kellan búin í skólanum

Vá hvað er frábært að þurfa ekki að fara í skólann aftur fyrr en á næstu önn eða það er að segja í Fs, ég fer í sumarskóla 26 mai-29 júní
Ég er búin að skila öllum verkefnum af mér og var bara að klára það núna rétt áðan, ég er ekkert smá glöð :o)
En ég ætla að blogga um helgina þegar ég hef tíma eða bara í kvöld þegar litli kútur er sofnaður.
JJJJJEEEESSSSSSS komin í sumarfrí :OD