29 maí 2006

Allt og ekkert

Jæja, ég hef alveg fullt að segja frá en man ekki eftir helmingnum.
Ég er allavega komin með nýja klippingu og nýjan lit í hausinn, ég byrja í skólanum á morgun, er smá stressuð útaf því.
Búin að panta miðann til eyja fyrir mig og Lilju um verslunnarmannahelgina, erum að fara að plana smá dæmi sem við stelpurnar verðum með.
Styttst mjög í utanlandsferðina.
Hvað skal ég segja meira, jamm ég prufu keyrði opel astra (östru) glæ nýja og beinskipta á föstudaginn og hún er nett geðveik, er smá að pæla að fá mér eina, sé samt bara til, þarf að pæla aðeins meira í þessu, en þið getið hjálpað mér, hvort á ég að fá mér, MAZDA eða OPEL. svarið nú :o)

Ég fór aðeins út á laugardaginn, kíkti með Lilju og Evu smá í partý og svo á staðina, það var mjög fínt.
Einn mjög skrautlegur með okkur og er það hann Gummi sem er frændi Lilju og er hann að fara að gifta sig næstu helgi. Good luck Gummi.
Ég hitti alveg fult af fólki en ég nenni ekki að skrifa um það, ég þoli ekki að lesa svoan DJAMM blogg og hvað þá að skrifa þannig, en ég læt bráðum inn myndir og þið getið kíkt á þær.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli