31 desember 2005



Seinasta bloggið á þessu ári, ég hef svo sem ekkert að segja.
Ég lofa að koma með dúndur flott blogg árið 2006.

Gleðilegt ár allir saman :o*

30 desember 2005

Ég fer bráðum að starta nýrri síðu það er að segja ef mér líkar betur við hana en þessa, ég ætla líka þá bara að segja frá jólunum og sollis á þeirri síðu, nenni ekki að gera það núna, en þið megið endielga segja mér hvað verður að ské um áramótin, verður einhver með PARTÝ eða verða þetta bara leim áramót núna hjá öllum, en verið allavega í bandi við mig svo ég hafi einhverjar hugmyndir um hvað skal gera um áramótin :o)

29 desember 2005

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

18 desember 2005

Lögreglukona árið 2007

Lögreglukona árið 2007

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara í lögregluskólann árið 2007, það er að segja ef ég næ inntökuprófinu.
Við fjölskyldan vorum eitthvað að ræða þetta áðan og svo var ég að lesa mig um hvernig inntökuprófið væri og svoleiðis.
Þetta verður auðvitað erfitt en ég ætla mér að fara í þetta ef ég hef enn áhuga á þessu námi árið 2007.
Ég ætla að demba mér í það að koma mér í gott form og reyna að fara að lyfta 3 sinnum í viku eða oftar.
Ég þarf líka að klára viss margar einingar til að komast í skólann sem ég klára í fs eða einhverjum framhaldsskóla.
Ég verð bara að vera dugleg núna og sýna hvað í mér býr.
Ég ætla ekki að vera einhver aumingi sem situr á rassgatinu heima hjá sér og borar í nefið.
ÉG ÆTLA, ÉG SKAL, ÉG GET.
Ég veit að ég get þetta alveg og ég ætla líka að sýna fram á það.
Ég vil að sonur minn sé stoltur af mér og ég veit að hann verður það þegar ég næ að ljúka náminu.
Ég ætla líka að reyna að dúxa, ég ætla ekki að rétt skríða yfir svo ég nái.
Kannski ég fari bara að lesa núna svo ég verði tilbúin þegar að þessu kemur, hver veit?

17 desember 2005

Sjokk

Sjokk

Vá hvað ég var í sjokki í gær, ég ætla ekkert að fara nánar út í það en úff hvað maður verður búin á því þegar maður fær sjokk.
Þið getið lesið á síðunni hans Birgis ef þið viljið vita hvað ég er að tala um.
En allavega þá er ég svo þreytt, fór seint að sofa og var hálfpartinn á milli svefns og vöku í alla nótt.
Vaknaði reyndar frekar seint í morgun en ég ætla snemma að sofa í kvöld.
Ég ætla að kíkja eitthvað út á rúntinn á eftir eða bara rölta eða eitthvað, þetta kemur allt í ljós, en ég er ekki að nenna að blogga, ég ætla bara að blogga seinna

15 desember 2005

Mont mont

Mont mont

Vá ég verð að fá að monta mig :o)
Ég náði öllum áföngunum og er ekkert smá sátt, ég var búin að ákveða það að ná sálfræðinni og reyna að ná uppeldisfræðinni en nei nei ég náði báðum og líka siðfræðinni, ég er svo ánægð með það að ég veit ekki hvað ég á að gera.
Ég held að þetta sé allt Birgi að þakka, ég hef aldrei náð öllum áföngum sem ég hef verið í fyrr en núna, þannig að ég er bara nokkuð viss um að þetta sé Birgi að þakka :o)

En já, ég er reyndar ekki sátt, ég fór og athugaði hvort ég fengi ekki styrkinn á næstu önn en nei, ég fæ hann ekki fullann, bara hálfan sem þýðir að ég mun ekki geta lifað á peningunum sem ég fengi, ég er búin að panta tíma hjá einni konu sem vinnur hjá bænum og ég ætla að ræða við hana því þetta er bara fáranlegt.
Hún hlítur að geta boðið mér eitthvað betra en þetta hjá atvinnumiðlun.
En ég ætla ekki að hugsa út í þetta fyrr en á mánudaginn, það er að koma helgi og ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt.

14 desember 2005

Til læknis

Til læknis

Vá hvað ég þarf að fara til læknis, hendin á mér er bara skrítin, ég er eins og versti sprautufíkill, vil bara taka það fram að ég var ekki að sprauta neinu í mig og ég var ekki í blóðprufu.
Ég er bara þvílíkt bólgin og aum og rauð.
Ég ætla sko til læknis á morgun, þarf bara að muna að panta tíma í fyrramálið því annars fer ég aldrei.
En út í aðra sálma, (like i'm a prest) hehehe, en þá er ég ekki búin að gera neitt merkilegt, ég skrapp reyndar í smáralindina í dag og keypti smá af jólagjöfunum, á bara ýkt lítið eftir, jibbý :op
En ég stoppaði bara stutt, ég var engan vegin að nenna þessu, en ég er ekkert að nenna þessu jólastússi, er samt alveg í fíling en ekki súperfíling.

Ég ætla út að labba á morgun, vill einhver vera memm?

En ég er að fara að leggjast upp í rúm, er með þvílíkan höfuðverk og er búin að vera með hann í örugglega mánuð eða eitthvað, læt bara læknirinn kíkja á það líka.
Allir sem lesa bloggið mitt eru vinsamlegast beðnir um að adda sér inn á msnið hjá mér, sem er birgitta_olsen@hotmail.com (stendur líka hérna hægra megin)
Ég hef ekki þolinmæðina í að adda öllum inn sem eru á hinu msn-inu mínu.
Nýjir og gamlir ávalt velkomnir :o)

13 desember 2005

Wet Seal

Vá hvað það eru til flottir bolir í Wet Seal
En því miður er þessi búð ekki hérna á klakanum, ég væri alveg til að kaupa mér nokkra boli, en ég geri það bara þegar ég verð rík :op
En hei, hvar verður jólaball NFS?
Veit einhver?
Ekki það að ég sé að fara, ég hef ekki löngun að vera í kringum alla krakkana sem eru ælandi hér og þar, eins og er á öllum böllum.
En ég nenni ekki neinu í dag, fór reyndar í sandgerði áðan og sótti Sollu, kíktum í nokkrar búðir í keflavíkinni og svo bara rúntað.
En já, hvernir eru þetta sem myndu pott þétt mæta í afmælið mitt, ég er geggt forvitin :op
En ég nenni ekki að blogga meira, ætla að fara að laga til eða eitthvað

12 desember 2005

æji bara annað blogg :o)

Æji ég veit ekkert hvað ég á að segja, ég er ekki búin að gera neitt merkilegt í dag, bara hangsa heima og fara í búðir með mömmu.
En ég taldi allavega peningana mína sem eru í ferðabauknum mínum og Birgis.
Vá það er sko kominn slatti, það get ég sagt ykkur en ekki nærri því nóg, ég verð bara að vera duglegri að safna.
Ég ætla sko að staðgreiða ferðina, ekki eins og allir hinir að taka lán fyrir sumarfríinu.
En ég er ekki búin að ákveða hver ég fer, ég væri alveg til að fara til Ítalíu en það kemur bara í ljós.
Talandi um ljós, ég fór í ljós áðan til ömmu og afa og ég varð eins og rauð jólakúla, ég veit ekkert hvað gerðist.
Ég brann samt ekki né neitt, ég hef abra verið með svona viðkæma húð eða eitthvað.
En ég náði allavega lit, bara smá samt :op
En vá hvað ég hef ekkert að segja né gera, ég er eitthvað svo þreytt, væri alveg til að fara að sofa núna, en ég er ekki að fara að gera það strax.
En já ég hef eitt að segja, ég held að ég sé gallað eintak, ég get valla labbað, ég missi bara fæturnar, hnéin gefa bara eftir, þarf bara að kíkja til læknis en ég geri það bara þegar ég er eitthvað meira gölluð :op
En ég held að ég fari bara að glápa á tv-ið nenni ekki að hanga í tölvunni lengur.
Stoltasta mamma ever

Vá ég er svo stolt af syni mínum að það er ekki eðlilegt.
Þið getið lesið um það á síðunni hans :o)
En ekki orð um það á þessari síðu :op
Ég er sko að rifna úr monti, ég trúi þessu bara ekki :o)
Hvenær kemur snjórinn?

Ég veit að ég er klikkuð en ég bíð spennt eftir að fá snjóinn, ekki mikinn en samt smá, ég var nefnilega að kaupa snjóþotu handa syni mínum og ég vil fara með hann út.
Ég bíð bara, þótt ég sé ekki að nenna að bíða.
En jamm, ég fór í kringluna í gær, amma og afi fengu far með mér, ég get alveg viðurkennt það að ég var frekar stressuð að keyra með þau í bílnum en þetta gekk bara allt mjög vel, afi var mjög ánægður með bílinn og fannst gott að komast inn og út úr honum, hann sat auðvitað frammí.
Ég keypti bara nokkrar jólagjafir og til að pakka inn, svona box ef þið skiljið, ohh ég sá svo flott vesti, ég væri alveg til í það og það kostaði ekki mikið, en ég ætla bara að bíða eftir jólunum og útsölunum, ég er nú ekkert sú ríkasta en þetta bjargast allt :o)
En ég hefði getað keypt endalaust á son minn, en jólin fara að koma þannig að ég kaupi bara einhverntíman seinna.
Hey já, ég fór að svæfa Birgir í gær og sofnaði með honum um 21 leytið, en ég vaknaði aftur um 01:30 og slökkti á tölvunni og háttaði mig.
Draumarnir í nótt voru þvílíkt skrítnir, en ég fattaði suma þeirra í morgun þegar ég vaknaði og það er bara út af deginum í dag, ekkert sérstakur dagur hjá mér en hjá sumum, nefni engin nöfn og vil ekki einu sinni hugsa út í það, þetta er bara fortíðin og er mjög fegin að vera laus við þetta allt.
En ég verð að fara að klára þessar jólagjafir, ég nenni ekki þessu hangsi en ég reyni að klára þetta í vikunni.
En nágrannar eru að fara að byrja þannig að ég verð að fara, ég má sko ekki missa af þeim.
En solla, við verðum að fara að drífa okkur í ræktina :o)

10 desember 2005

smá blogg

Smá blogg

Ég ætla bara að koma með smá blogg núna, ég er búin að gera fullt, fór út á fimmtudaginn með Aldísi og við kíktum á paddys og þar voru bara ógeðslegir kallar þannig að við fórum bara til Bigga frænda, alltaf gaman að kíkja til hans, þar voru Danni, Íris og Gréta.
Íris og Gréta að deyja úr stressi því þær eru í kvöld í Qmen dæminu.
Svo skutlaði ég Aldísi heim því Sævar var vaknaður en ég fór með hinum á Traffic og hitti Önnu Maríu gömlu bekkjarsystur mína, æðislegt að hitta hana.
Inga og Tinna voru þarna líka, svo fór ég bara heim, ég fór út að labba með Aldísi og Sævari og aðal töffaranum mínum á föstudagmorgninum, kíktum niður í bæ og sollis svo átti auðvitað Mía afmæli í gær og við kíktum í afmæli hjá henni, svaka stuð og Birgir fór af kostum :o)
Svo í dag er ég ekki búin að gera neitt, bara hanga og reyna að fara í búðir en ég er bara ekkert að nenna því :op
Þarf að klára smá af jólagjöfunum en enda örugglega bara með því að kaupa þær í reykjavík í næstu viku.
Veit ekki alveg hvað ég á að gefa hinum og þessum, er búin að kaupa samt meiri hlutan, á bara eftir smotterí.
Ég þarf líka að finna mér spariskó, fann flott stígvel í Mangó í gær en ég er ekki alveg að fíla tánna á þeim, en ég ætla bara að pæla aðeins í þessu.

en ég blogga seinna, er engan vegin að nenna þessu :op

08 desember 2005

Finnst þetta vera frábær texti en ég er EKKI að fíla sönkonuna sem söng þetta lag, vil bara taka það fram.


Don't look at me

Everyday is so wonderful
Then suddenly
It's hard to breathe
Now and then I get insecure
From all the pain
I'm so ashamed

I am beautiful
No matter what they say
Words can't bring me down
I am beautiful
In every single way
Yes words can't bring me down
Ohh no
So don't you bring me down today

To all your friends you're delirious
You're so consumed
In all your doom, ooh
Trying hard to fill the emptiness
The pieces gone
Left the puzzle undone
Ain't that the way it is

'Cause you are beautiful
No matter what they say
Words can't bring you down
Ohh no
'Cause you are beautiful
In every single way
Yes words can't bring you down
Ohh no
So don't you bring me down today

No matter what we do
(No matter what we do)
No matter what we say
(No matter what we say)
We're the song inside the tune
(Yeah, oh yeah)
Full of beautiful mistakes

And everywhere we go
(And everywhere we go)
The sun will always shine
(The sun will always, always, shine)
And tomorrow we might awake
On the other side

'Cause we are beautiful
No matter what they say
Yes words won't bring us down
Ohh no
We are beautiful
In every single way
Yes words can't bring us down
Ohh no
So don't you bring me down today

Ooh, ohh
Don't you bring me down today
Don't you bring me down, ooh
Today

07 desember 2005


hehehe, fann mynda af Bigga frænda og svo eru einhverjir strákar með honum, held að þetta séu Siddi,Danni og Óli Geir, þeir voru sko með tískusýningu á konukvöldinu sem ég kíkti mjög stutt á.
En það var alveg ágætt stuð þarna, en hvað er ég að segja frá því næstum því 2 vikum of seint, betra seint en aldrei.
En jamm, ég sit hérna heima með svo mikinn höfuðverk að ég er að kálast, er að pæla að fara líka að sofa bara eftir smá, hef bara gott að því.
En ég nenni ekki að rugla meira, ætla bara að hafa þetta blogg stutt núna :o)
Vesen

Ohh en leiðinlegt, ég var búin að skrifa svo langt blogg en það vildi bara ekki fara inn, en ég ætla að reyna ða muna allt og skrifa það, ég get allavega sagt ykkur það að það var gefið skít í mig í gær og þá meina ég það, yndislegasta manneskja sem til er gerði svo svaka bombu og hún lennti á mér og nýju fötunum mínum, búhú, nei nei þetta bjargasðis allt, ég setti bara fötin í þvott og allt í lagi með þau :o)
En ég hef verið að pæla hvernig jafnaldra mínir geti verið á sjimminu hverja einustu helgi og stundum á virkum dögum, ég skil þetta allavega ekki, ég meira segja hef verið að pæla í því hvort ég eigi einvherntíman eftir að drekka, ég hef allavega enga löngun til þess eins og er en auðvitað getur allt breyst, en ég ætla ekki að vera eins og sumir, lifa fyrir djammið, ég hef svo yndislegan son til að lifa fyrir og ég gæti ekki hugsað mér að vera að djamma og koma heim svo drukkin og geta ekki vaknað með honum morguninn eftir, mér finnst það allavega ekki sanngjart hans vegna.
En eins og flestir vita þá lifi ég fyrir son minn og geri allt til að honum líði vel, hann á ekkert annað skilið.
Ég var alltaf að pæla í því að halda upp á afmælið mitt helgina eftir afmælið sjálft, en ég er bara hætt við það, ég nenni ekki að fara að halda eitthvað partý svo fólk geti drukkið, ég er miklu frekar til í það að vera bara heima með Birgi og elda einhvern góðan mat og hafa það bara gott, það er líka ekki 20 afmæli, ég er bara að verða 19 ára en þegar ég verð 20 þá er ég að pæla að stinga af úr landi og fara með Birgir til Bretlands eða eitthvað, en kannski breytist þetta bara eins og allt annað.
Ég er búin að vera að mála núna upp á síðkastið, en ég er ekki alveg sátt við málverkið, er líka ekki alveg tilbúið en samt, ég þarf að breyta því eitthvað, þið getið kíkt á það á myndasíðuna mína ef þið vitið lykilorðið en annars spyrjið þið bara.
En hver vill koma með mér til útlanda næsta sumar, ég ætla ekki í djammferð, ég ætla að fara með Birgir svo hann geti skemmt sér og ég fengið smá brúnku ef þið skiljið, en endilega komið með mér til útlanda :o9

tékk

TÉKK

bara að athuga, ég hef ekki náð að blogga síðan í gær, var búin að skrifa þvílíkt langa færslu :o/

06 desember 2005

breyta meira

Breyta meira

Ég er alltaf að breyta síðunni minn, ég er búin að bæta mynd af mér, tónlistarhlékkjum og svo smá hér og þar :op
En mamma er komin frá ameríkunni :o)
Hún keypti alveg fullt, hún keypti fyrir mig föt og svoleiðis á Birgir, ég var búin að láta hana fá pening.
Ég mun samt nota sumt af þessum fötum í jólapakkan hans Birgis, hann þarf ekki að fá allt núna þótt hann þurfi að nota þessi föt þegar hann er vaxinn upp í stræðirnar :o)
Ég ætla reyndar að kaupa meira, það er svo margt sem kemur til greina, þarf að hringja á 2 staði til að athuga hvort hlutirnir séu komnir til landsins.
Þarf líka að pannta, ég var alveg búin að gleyma því :op
Best að gera það strax í kvöld :oD

Ég er alveg að deyja, langar svo í klippingu og litun en það kemur bara að því þegar ég hef efni á því, jólagjafirnar ganga fyrir :o)

En ég hef svosem ekkert að segja, ég blogga meira seinna, ég er búin að gleyma öllu sem ég ætlaði að blogga um, svona er þetta að vera mamma og hafa nóg að gera (segir sú lata) nei nei, :op

05 desember 2005

hugsi hugs

HUGSI HUGS

Ég er búin að vera að hugsa svolítið mikið upp á síðkastið hvað ég eigi að gera, málið er að ég er svo hirllilega skotin í einu pils og einu pari af stígvelum(spari sko).
Þetta er bara allt of dýrt fyrir mig því þetta kostar meira en 20.000 í heildina, svo langar mig svo mikið að lita á mér hárið, en ég er búin að finna lausn á því, ég ætla bara að kaupa apótekaralit sem kostar bara eitthvað á milli 1000 og 1500 þannig að ég slepp vel þar, en ég veit ekki hvað ég eigi að gera í sambandi við pilsið og stígvelin.
Ég skal lýsa pilsinu og stígvelunum fyrir ykkur svo þið getið commentað og hjálpað mér aðeins.
Pilsið er bara hrein snild, ég hef aldrei séð eins flott pils, það er mjög skríðið snið á því en henntar mjög vel, er ekki svona beint eins og horrenglurnar ganga í.
Það er svart en ekki svart, smá grátt, efnið er bara költ, æji ég veit ekki alveg hvernig ég get lýst því betur.
Stígvelin eru líka bara flott, eru svört, ná upp rétt fyrir neðan hné, hálf krumpuð, og hællinn er bara költ, hann er sko heill, ekki svona pinni, en eina vesenið með stígvelin eru að þau eru bara til í 41 en ég þyrfti 42 helst, 41 er of lítið, en ég fæ aldrei spariskó á mig í nógu stóru þannig er það bara.

En má hvað þetta er tilgangslaust blogg, efast um það þið nennið að lesa svona rugla.

04 desember 2005

Væmið

~*Mamma*~

Mamma er konan sem ég lít allra mest upp, hún er bara æðisleg, það væri ekki hægt að eiga betri mömmu.
Hún gerir allt fyrir mig og er alltaf til staðar ef eitthvað er að.
Hún er fullkomin í alla staði, hún hugsar alltaf vel um þá sem henni þykir vænt um og lætur sko engan líða illa í kringum sig.
Ég hef aldrei heyrt hana tala illa um neinn og ég veit fyrir víst að ég mun aldrei gera það.
Hún er besta mamma sem hægt er að eiga og er ég mjög þakklát fyrir að eiga hana sem mömmu.
Mamma ég elska þig svo mikið :o*


~*Hanna*~*~*Sibba*~*~*Aldís*~*~*Sólveig*~*~*Íris Hrönn*~

Mér þykir svo rosalega vænt um ykkur, þið eruð svo góðar og sannar vinkonur, ég gæti ekki átt betri vinkonur en ykkur, þið kætið mig alltaf þér mér líður illa, knúsið mig þegar ég þarf á knúsi að halda, ég get alltaf talað við ykkur þegar eitthvað er að. Þið eruð bara bestar, ég veit ekki alveg hvað ég get sagt meira því þið eruð svo ólíkar allar en mér þykir svo vænt um ykkur og vil gefa ykkur risa stórt knús *KNÚS*

~*Sara*~*~*Anika*~

Þið eruð sko alveg frábærar, svo lífsglaðar og gaman að hitta ykkur þótt við hittumst ekki oft, þið þorið alveg að vera þið sjálfar og eruð ekki feimnar við að segja hvað ykkur finnst.
Mér þykir mjög vænt um ykkur og það væris vo gaman að geta hitt ykkur oftar :o)

~*Jenný*~*~*Anna Olsen*~*~*Þóra Björg*~

Þið eruð "litlu" snúllurnar mínar, alltaf svo gaman að hitta ykkur og tala við ykkur, ég man enn þegar ég hitti ykkur fyrst og þegar ég fann strax fyrir því að þið ættuð alltaf eftir að vera litlu snúllurnar mínar.
Þið eruð æðislegar í alla staði.

Núna eruð þið búin að fá allt væmna frá mér þannig að ég býst ekkert við því að vera væmin aftur í bráð :op

03 desember 2005

gleði

Gleði

Ég er búin að ákveða að skrifa um allar þær manneskjur sem mér þykir vænt um, það er nú hátíð að ganga í garð eftir nokkra daga og þess vegna finnst mér alveg tilvalið að skrifa eitthvað fallegt um þær manneskjur sem mér þykir vænt um.
Ég ætla að fara að gera lista svo ég gleymi engum, en þið megið alveg minna mig á ykkur ef ég er ekki búin að skrifa um ykkur :o)

~*Mía*~

Mía systir er bara frábærasta systir sem hægt er að eiga, hún er líka ein besta vinkona mín, ég get sagt henni allt og ég get alveg treyst henni.
Hún hefur alltaf hjálpað mér þegar eitthvað er að.
Ég vil bara þakka guði og auðvitað mömmu fyrir að gefa mér svona frábæra stóra (litla) systir því án hennar gæti ég ekki verið, ég verð líka að þakka þeim fyrir að hafa gefið mér STÓRA systir ekki LITLA því ég væri örugglega að verða gráhærð á henni ef hún væri yngri en ég :op
Ég er líka svo stolt af því að eiga hana sem systir því hún er svo dugleg, klár, falleg og góð.
Hún er BESTA SYSTIR sem hægt er að eiga.
Ég elska þig svo mikið stóra systir :o*


Það koma fleirri seinna þegar ég hef tíma til að blogga :o)

sílíkon :op

sílíkon :op

Ég vaknaði sko með sílíkon brjóst í morgun, bara annað reyndar en vá hvað þetta var vont, Birgir vildi ekki drekkar úr brjóstinu þannig að það mátti ekki neitt snerta brjóstið, ekki einu sinni bolurinn, en þetta bjargaðist allt :o)
En vá hvað ég veit að þið viljið ekki lesa eitthvað svona :op
Ég hef bara ekkert annað að segja nema það að það er snjór úti :o)
Ég væri svo til að fara á snjóbretti núna, værir þú ekki til í það Sibba?
Við verðum að fara við tækifæri áður en ég sel brettið mitt, kannski við kíkjum bara á milli jóla og nýárs ef það verður snjór :o)
En ég ætla að fara að gera mig til og svoleiðis, er að fara gera svolítið sem kemur mömmu á óvart :o)

02 desember 2005

klæjar svo

Klæjar svo

Vá hvað ég er að deyja úr kláða og ekki á skemmtilegum stað.
Ég get ekki klórað mér því ég er með fóbíu fyrir þessum stað, eins og þeir sem þekkja mig best þá vita þeir að ég er með fóbíu fyrir tásum, þetta er bara ógeðslegt, ég get ekki einu sinni snert mínar eigin tær.
Einu tærnar sem ég get snert eru tærnar hans Birgis, enda eru þær svo sætar :o)
Fyndasta við þetta er að kláðinn er bara á einni tásu, litlu tásu á hægri fæti og ég er að deyja.
Ég væri svo til að vera ekki með tær, afhverju þurfit Guð að skapa okkur með tær?
Þær eru oftast í sokkum og sjást aldrei, ég skil ekki afhverju við þurfum að vera með þetta, þetta er ekki bara upp á lúkkið en einu sinni var mér sagt að ef við værum ekki með tær þá gætum við ekki haldið jafnvægi, ég hef ekki hugmynd hvort það sé eitthvað satt í þessu en þetta var mér allavega sagt.
Eru einhverjir fleirri þarna úti í heiminum sem eru að lesa bloggið mitt með fóbíu fyrir tásum?

Alveg merkilegt

Alveg merkilegt

Ég ákvað að taka út gestabókina þannig að þið verðið bara að vera dugleg að commenta og skrifa í spjallið :o)
En allavega þá var þessi dagur frábær.
Ég fór út að labba með Aldísi og við vorum að tala eitthvað saman um vissa manneskju sem við skulum bara kalla X ( Aldís við skulum ekkert nafgreina hana hér :op) og svo löbbum við eitthvað lengra og viti menn þarna stendur X og er að tala við einhvern kall, við gátum ekki annað en hlegið :op
Svo erum við að labba eitthvað meira og svo sjáum við það að X fer inn þar sem ég þurfti að fara inn, ég var bara hummm, ég er ekki að fara inn á eftir X, sem betur fer sjáum við Geirný og litlu skvísuna henar, þannig að við tölum eitthvað við hana og svo fer ég inn á staðinn sem ég þurfti og sem betur fer var X ekki þar :o)
Við löbbum svo meira (erum svo duglegar) og nei nei þar er X og labbar fyrir framan okkur og svo stoppar einvher bíll fyrir honum og hann hoppar inn í bíl og ég og Aldís auðvitað hlógum og hlógum :oD
Þetta var allavega eitt það fyndnasta sem ég hef upplifað í langan tíma :o)
En ég ætla að fara að ganga frá núna og gera allt fínt þannig að ég ætla að reyna að blogga meira í kvöld eða bara á morgun.
ÞAÐ ER SKILDA AÐ KOMMENTA :o)

01 desember 2005

Búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna að blogga og loksins gekk það :o)
Það er sko margt búið að gerast hjá mér, ég er búin að kaupa mér bíl :o)
Er ekkert smá ánægð með hann.
Fór í rvk í fyrsta skiptið á honum í dag og það gekk bara mjög vel.
Ég verð líka að segja að ég sá bara flott pils áðan, það er bara mergjað, ég er hálf ástfangin af því :op
Ég hef ekki alveg efni á því að kaupa það strax þannig að ég verð bara að safna mér fyrir því :o)
Svo sá ég alveg mergjuð stígvel áðan, þau eru bara flott, ég veit samt ekki alveg hvort ég eigi að kaupa mér þau en ég sef bara á því í nótt :o)
Ég er líka komin í jólafrí, ekkert smá gaman, ég ætla mér að gera svo margt í desember þannig að ég hef alveg nógan tíma fyrir allt :o)
En ég er að pæla hvort einhver nenni að koma með mér út að labba alla daga á sama tíma ?
Ég er líka að pæla að fara í ræktina, þarf bara að tala við eina manneskju fyrst svo það verði eitthvað úr þessu, sem ég vona svo innilega :o)
En vá hvað lífið er yndislegt, ég er ekkert smá hamingjusöm og allt gengur svo vel hjá mér.
Svona er það bara að eiga góða að, þið vitið hverjir þið eruð þannig að ég vil senda bara risa stórt knús til ykkar, þið eruð frábær :o)
En ég er að pæla að fara mála núna, ég á svo marga striga :o)
En ég lofa ykkur að það verða fleirri blogg eins og var alltaf :o)

Commenntaðu nafninu þínu

Comentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig

5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt.. You MUST

ætli ég geti bloggað

ætli ég geti bloggað ?

Það kemur bara í ljós, ég er allavega búin að reyna að blogga í nokkra daga :o)