20 febrúar 2006

Allt í gúddí

Jæja ég fór aftur með Birgir upp á barnaspítala hringsins í dag og þið getið lesið um það á næstu dögum, ég nenni ekki beint að blogga en ég ætla samt að reyna að vera dugleg með mína bloggsíðu og hans síðu.
Ég var sko alveg búin á því þegar ég kom heim úr bænum, rétt náði í skólann og var alveg uppgefin, þetta er svo mikið álag að fara með Birgir á sjúkrahús því auðvitað er maður hrædd um að eitthvað sé að.
En vá hvað ég er fegin að eiga hann Birgir, hann er svo mikið yndi, svo duglegur að læra og gera allt sjálfur, ég er svo stolt af honum að ég gæti sko skrifað endalaust um það sem hann er að gera og læra.
En já, ég er að pæla að hoppa upp í rúm og fara að sofa, er sko að leka niður hérna, blogga um eitthvað skemmtilegt þegar ég hef eitthvað skemmtilegt að segja.
En ég vil benda þeim sem eru með lykilorðið á síðunni hans Birgis að það eru komnar inn alveg FULLT af myndum :o)

19 febrúar 2006

Kompás

OJJJJJJJJJ, ég var að horfa á Kompás áðan og þetta var bara viðbjóður.
Hvernig geta menn á 70 aldri vera að sækjast eftir 13 ára stelpum, er ekki í lagi með menn, þetta er bara viðbjóður og ekkert annað.
Einn afsakaði sig með því að segjast vera að gera sjálfur könnun um ungar stulkur og eitthvað sem er bara rugl, hann er bara barnaperri.
Æji þetta er bara viðbjóður en við megum ekki gleyma að strákar geta líka alltaf lent í þessu þótt það sé lítið talað um þetta þá eru þeir líka fórnarlömb.
Ég veit fyrir víst að ég mun fylgjast með syni mínum í framtíðinni og ef ekki bara öllum öðrum börnum sem ég þekki, ekki vil ég að þetta komi fyrir einhvern sem ég þekki eða bara alls ekki neinn.
En það sem mér finnst hálf asnalegt við dómskerfið hér á Íslandi er að það er varla varpað þessum barnaperrum og barnaníðingum í steininn, það þarf að fara að gera eitthvað og hvað réttlætir það að þegar stelpa er orðin 14 ára þá má sofa hjá henni, það er ekki hægt að gera neitt í því, þetta er bara rugl og ekkert annað.
Þessir ógeðslegu menn sækjast þá auvitað í þær stelpur sem eru orðnar 14 ára svo það sé nánast ekkert hægt að gera.
AAAAAAAAARRRRRRRRRRRGGGGGGGGGG, ég væri svo til að geta gert eitthvað í þessu, hjálpa börnum að skilja hvað sé rangt og leita sér hjálpar þegar eitthvað hefur skéð, ég vona bara svo innilega að þetta eigi eftir að lagast í framtíðinni og helst bara strax svo það sé hægt að treysta börnum sínum fyrir því að sjá um sig sjálf og segja frá ef til ske skinni að einhver ógeðslegur maður gerir eitthvað sem ekki má.

18 febrúar 2006

Til hamingju Ísland

Jæja, þá vann hún Silvía þessa keppni, ætli hún vinni aðalkeppnina líka? hvað heldur þú?
En allavega þá var þetta ágætt í tvinu áðan, Regína var frekar flott, ég fékk alveg gæsahúð, hún er líka bara svo spés.
Ég hefði alveg viljað að hún færi út fyrir okkur en það er víst ekki hægt að væla yfir því núna.
Ég er svo farin að spá í sumrinu, pæla í því hvar ég eigi að vinna og leita að barnapíu og svoleiðis sem skiptir máli, svo er ég þvílíkt að pæla að kíkja í helgarferð í sumar til London eða eitthvað.
Íris ertu ekki memm?
Var að kíkja á hótel og sollis en það er bara svo dýrt að vera á hótelum, er að pæla að vera bara á hostel, það er víst eitthvað ódýrara.
En ég ætla ekkert að pæla í þessu nema það sé einhver alveg 100% að koma með mér út.
En ég er ekki að nenna að blogga, er farin að vafra um á netinu og svo bara upp í rúm svo ég geti gert eitthvað skemmtilegt með sætasta strák sem til er í heiminum og það er auðvitað sonur minn.
Ég er svo heppin að eiga svona frábæran son, ég gæti sko montað mig endalaust á honum á þessu bloggi en ég ætla að passa mig að gera ekki of mikið að því.

15 febrúar 2006

Þreytan segir til sín

Ég get nú sagt það núna að ég er nett þreytt eftir gærdaginn.
Ég var meira og minna upp á Barnaspítala Hringsins í allan gærdag og fram að kveldi en þið getið lesið um þetta á síðunni hans Birgis.
En ég vil bara þakka mömmu minni og systur fyrir að vera svona æðislegar og fyrir alla hjálpina í gær og bara allt mitt líf, sérstaklega fyrir gærdaginn. ÞIÐ ERUÐ BESTAR.
En ég ætla að fara að skrifa færsluna inn á síðuna hjá Birgi svo þið getið lesið.
En sendið mér endilega orku því ég er svo þreytt núna, væri sko alveg til að fara að sofa helst bara núna.
muna svo að commenta :o)


13 febrúar 2006

Ætli þetta sé eitt safaríkt?

jæja, þá sit ég hérna á rassinum við tölvuna og er að blogga, ég er samt ekki alveg að nenna að blogga en ég hef ekkert annað að gera eins og er.
Ég er veik heima og er ekkert að nenna því, er að drepast í mjöðmunum og ég er ekkert að nenna að kvarta yfir því heldur, afhverju ætti fólka að nenna að lesa bloggið mitt ef ég myndi bara kvarta og kveina?
Ekki nenni ég að lesa blogg hjá fólki sem bloggar bara um það hve lífið er leiðinlegt eða djammið, sumir blogga bara um djammið og það er ekkert leiðinlegra en að lesa eingöngu um djamm.
Hefur fólk ekkert annað að gera en að djamma, spyr ég bara?
Æji hvað er ég að rugla hérna, ég er bara svo þreytt og bíð spennt eftir að mamma komi heim svo ég geti sagt góða nótt og farið upp í rúm að sofa.
En allavega þá kláraði ég loksins að mála myndina sem er búin að standa hálfkláruð inni í herbergi, ég byrjaði líka á annari en það verður bara svona mynd sem ég ætla að dunda mér með, ekkert flýta mér að klára.
Úff hvað þetta er leiðinlegt blogg.
Ég þarf að fara að gera eitthvað spennandi svo ég geti bloggað um það.

Hey já eitt...........
Drumur sem mér dreymdi í nótt var ÓGEÐSLEGUR, ég er enn að hugsa út í hann gæti þýtt, en ég nenni ekki að segja frá honum núna þannig að ég skelli honum hérna inn þegar ég nenni því.

Nei þetta var sko ekki safaríkt

11 febrúar 2006

Jammerí já...

Úff ég veit ekki afhverju ég er að blogga, ég er orðin svo þreytt, ég er sko farin að þrá að sofa heila nótt án þess að vakna, en ég verð heppin bráðum (vonandi)
En VÁÁÁÁÁÁ ég sá sko fallegasta læknir sem til er áðan, stelpur þið verðið að sjá hann, hann er upp á sjúkrahúsin núna :op
Hann var bara fallegur...SLEF...
Ég vona að hann verði alltaf þegar ég þarf á læknisaðstoð að halda :op
En vá hvað ég hef ekkert að segja, alveg tilgangslaust blogg, ég skal hætta að skrifa meira BARA fyrir YKKUR...
Kem með eitthvað safaríkt blogg þegar ég hef eitthvað að segja.
Ég er allavega farin upp í rúm að horfa á DVD.
Góða nótt alla sammen :o*

09 febrúar 2006

Breyting á síðunni til hins verra eða hvað?

Í skoðunnarkonnunni hérna hjá mér neðar á síðunni er fólk búið að haka í reitinn að hitt lúkkið á síðunni hafi verið flottara, ég væri alveg til að vita hvað hefði verið flottara við það svo ég geti breytt lúkkinu aftur en það verðu ekki eins því ég var algjörlega komin með æluna upp í háls útaf bleikalitnum en verið svo væn að láta mig vita hvað jeg skal gjöre til að gera síðuna flotta svo þið nennið að lesa og commenta hjá mér.

08 febrúar 2006

Útlöndin heilla mig

Úff hvað útlöndin heilla mig, það er nefnilega tilboð núna til ýmissa áfangastaða og ég er að deyja, ég væri sko alveg til að fara til Lundúna, fyrir mig og Birgir myndi kosta minna en 30.000 fargjaldið en svo þyrfti maður bara að finna sér ódýrt en GOTT hótel, úff hvað ég væri alveg til í smá ferðalag, fara bara út í smá helgarferð og skemmta sér með sæta stráknum mínum en ég væri auðvitað til ef einhverjir fleirri myndu koma með :oP því fleirri því betra, en ég er nú bara nokkuð viss um að það verði ekkert úr þessu, ég myndi örugglega ekki tíma að eyða peningunum mínum, ég reyni alltaf að spara svo ég eigi pening þegar ég þarf á honum að halda, en hver veit það gæti einhver verið svo góður og boðið mér og Birgi frítt út, ég held að það væri mjög fátt sem myndi stoppa mig við að taka við fríu fríi.

En já, þá er það skóli á morgun og svo helgarfrí, jibbý :op
En hef alveg nóg að gera um helgina, þrífa, læra, læra, læra, var ég búin að segja LÆRA, úff ég þarf nefnielga að klára bókina sem ég er að lesam, ég verð nú einga stund að klára hana, svo þarf ég að byrja á næstu og helst klára hana fyrir næsta mánudag en ég verð bara að vera dugleg.
Það þýðir ekkert annað.

Ég er að pæla að fara upp í rúm og læra og svo að fara að sofa því ég þarf að vakna snemma á morgun og reyna að klára að læra.

07 febrúar 2006

Velta því svona smá fyrir mér.

Ég er búin að vera að velta því fyrir mér að fá mér gat eða tattoo, ég er eitthvað svo heit fyrir því núna að fá mér tattoo og er með eina hugmynd í kollinum sem ég ætla bara að halda þar á meðan ég er enn að hugsa um þetta en ég er samt að pæla í því að fá mér gat í tunguna eða vörina, þá er ég að meina neðri vörina hægra megin, æji ég veit ekki, ætli ég stefni ekki bara að því að safna fyrir tattooinu og svo kemur hitt bara þegar maður á pening :o)
En ég fann þessar myndir á netinu, þær eru bara geðveikar, ég væri sko alveg til í svona tattoo
Bara flott en þetta er flottara

En ég er búin að vera að leita að fleirri myndum af tattooum á netinu, það er að segja myndum af vængjum en ég finn ekkert svo margar, ef þú nennir þá mátt þú alveg leita fyir mig og senda mér myndirnar :o)

06 febrúar 2006

AAAAAARRRRRRGGGGGGGGG

Vá hvað ég er nett brjáluð núna, ég var sko að setja Birgir inn í bíl áðan þegar maður í næsta stæði er að bakka út og keyrir utan í hurðina hjá mér, það sést ekkert mikið á henni en smá, ég var með löppina úti og hann hélt bara áfram að keyra, fór ekkert út til að gá hvort það sæist eitthvað á sínum bíl né mínum, vá hvað ég var brjáluð, keyrði beint heim til afa til að sýna honum og hann sagði að það þyrfti ekkert að gera, það sæjist ekkert svo mikið, en ég sé þetta núna og er ekkert smá reið, bíllinn minn er ekki einu sinni orðinn 3 mánaða og strax búið að skemma hann smá :'(
ég segi bara guð sé lof að kallinn hafi ekki verið að fara í stæðið því þá hefði hurðin farið mjög líklega af.
AAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGG.
Úff ég varð bara smá að pústa.
En ég tók allavega niður bílnúmerið.
AAAAAAAAARRRRRRRRRGGGGGGGGG.