24 maí 2006

Anginn litli

Litli kallinn minn er allur að koma til, sem betur fer.
Ekkert gaman að hanga svona inni og geta ekki hitt vini sína og leikið sér smá.
En já ég er að fara að byrja í sumarskólanum, úff hvað þetta verður strembið, taka 2 fög á mánuði sem tekur yfirleitt 3-4 mánuði í venjulegum skóla.
En ég skal, ég get og ég mun ná þessum fögum.
Svo styttist óðfluga í utanlandsferðina, það verður æði að fara með litla kút út, fara á ströndina, kíkja í vatnagarða og auðvitað versla smá :op
Þetta verður ferð sem ekki er hægt að gleyma ég er alveg viss um það.
En ég hef eitthvað svo lítið að segja, ég hef líka ekkert gert upp á síðkastið.
Fór reyndar á Duus með Aldísi á föstudaginn og Eiki kíkti á okkur og svo fór ég bara heim.
Hef ekkert gert neitt spennadi síðan þá nema auðvitað að kúra hjá kallinum mínum sem er bara æði.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli