31 desember 2005



Seinasta bloggið á þessu ári, ég hef svo sem ekkert að segja.
Ég lofa að koma með dúndur flott blogg árið 2006.

Gleðilegt ár allir saman :o*

30 desember 2005

Ég fer bráðum að starta nýrri síðu það er að segja ef mér líkar betur við hana en þessa, ég ætla líka þá bara að segja frá jólunum og sollis á þeirri síðu, nenni ekki að gera það núna, en þið megið endielga segja mér hvað verður að ské um áramótin, verður einhver með PARTÝ eða verða þetta bara leim áramót núna hjá öllum, en verið allavega í bandi við mig svo ég hafi einhverjar hugmyndir um hvað skal gera um áramótin :o)

29 desember 2005

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

18 desember 2005

Lögreglukona árið 2007

Lögreglukona árið 2007

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara í lögregluskólann árið 2007, það er að segja ef ég næ inntökuprófinu.
Við fjölskyldan vorum eitthvað að ræða þetta áðan og svo var ég að lesa mig um hvernig inntökuprófið væri og svoleiðis.
Þetta verður auðvitað erfitt en ég ætla mér að fara í þetta ef ég hef enn áhuga á þessu námi árið 2007.
Ég ætla að demba mér í það að koma mér í gott form og reyna að fara að lyfta 3 sinnum í viku eða oftar.
Ég þarf líka að klára viss margar einingar til að komast í skólann sem ég klára í fs eða einhverjum framhaldsskóla.
Ég verð bara að vera dugleg núna og sýna hvað í mér býr.
Ég ætla ekki að vera einhver aumingi sem situr á rassgatinu heima hjá sér og borar í nefið.
ÉG ÆTLA, ÉG SKAL, ÉG GET.
Ég veit að ég get þetta alveg og ég ætla líka að sýna fram á það.
Ég vil að sonur minn sé stoltur af mér og ég veit að hann verður það þegar ég næ að ljúka náminu.
Ég ætla líka að reyna að dúxa, ég ætla ekki að rétt skríða yfir svo ég nái.
Kannski ég fari bara að lesa núna svo ég verði tilbúin þegar að þessu kemur, hver veit?

17 desember 2005

Sjokk

Sjokk

Vá hvað ég var í sjokki í gær, ég ætla ekkert að fara nánar út í það en úff hvað maður verður búin á því þegar maður fær sjokk.
Þið getið lesið á síðunni hans Birgis ef þið viljið vita hvað ég er að tala um.
En allavega þá er ég svo þreytt, fór seint að sofa og var hálfpartinn á milli svefns og vöku í alla nótt.
Vaknaði reyndar frekar seint í morgun en ég ætla snemma að sofa í kvöld.
Ég ætla að kíkja eitthvað út á rúntinn á eftir eða bara rölta eða eitthvað, þetta kemur allt í ljós, en ég er ekki að nenna að blogga, ég ætla bara að blogga seinna

15 desember 2005

Mont mont

Mont mont

Vá ég verð að fá að monta mig :o)
Ég náði öllum áföngunum og er ekkert smá sátt, ég var búin að ákveða það að ná sálfræðinni og reyna að ná uppeldisfræðinni en nei nei ég náði báðum og líka siðfræðinni, ég er svo ánægð með það að ég veit ekki hvað ég á að gera.
Ég held að þetta sé allt Birgi að þakka, ég hef aldrei náð öllum áföngum sem ég hef verið í fyrr en núna, þannig að ég er bara nokkuð viss um að þetta sé Birgi að þakka :o)

En já, ég er reyndar ekki sátt, ég fór og athugaði hvort ég fengi ekki styrkinn á næstu önn en nei, ég fæ hann ekki fullann, bara hálfan sem þýðir að ég mun ekki geta lifað á peningunum sem ég fengi, ég er búin að panta tíma hjá einni konu sem vinnur hjá bænum og ég ætla að ræða við hana því þetta er bara fáranlegt.
Hún hlítur að geta boðið mér eitthvað betra en þetta hjá atvinnumiðlun.
En ég ætla ekki að hugsa út í þetta fyrr en á mánudaginn, það er að koma helgi og ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt.

14 desember 2005

Til læknis

Til læknis

Vá hvað ég þarf að fara til læknis, hendin á mér er bara skrítin, ég er eins og versti sprautufíkill, vil bara taka það fram að ég var ekki að sprauta neinu í mig og ég var ekki í blóðprufu.
Ég er bara þvílíkt bólgin og aum og rauð.
Ég ætla sko til læknis á morgun, þarf bara að muna að panta tíma í fyrramálið því annars fer ég aldrei.
En út í aðra sálma, (like i'm a prest) hehehe, en þá er ég ekki búin að gera neitt merkilegt, ég skrapp reyndar í smáralindina í dag og keypti smá af jólagjöfunum, á bara ýkt lítið eftir, jibbý :op
En ég stoppaði bara stutt, ég var engan vegin að nenna þessu, en ég er ekkert að nenna þessu jólastússi, er samt alveg í fíling en ekki súperfíling.

Ég ætla út að labba á morgun, vill einhver vera memm?

En ég er að fara að leggjast upp í rúm, er með þvílíkan höfuðverk og er búin að vera með hann í örugglega mánuð eða eitthvað, læt bara læknirinn kíkja á það líka.
Allir sem lesa bloggið mitt eru vinsamlegast beðnir um að adda sér inn á msnið hjá mér, sem er birgitta_olsen@hotmail.com (stendur líka hérna hægra megin)
Ég hef ekki þolinmæðina í að adda öllum inn sem eru á hinu msn-inu mínu.
Nýjir og gamlir ávalt velkomnir :o)

13 desember 2005

Wet Seal

Vá hvað það eru til flottir bolir í Wet Seal
En því miður er þessi búð ekki hérna á klakanum, ég væri alveg til að kaupa mér nokkra boli, en ég geri það bara þegar ég verð rík :op
En hei, hvar verður jólaball NFS?
Veit einhver?
Ekki það að ég sé að fara, ég hef ekki löngun að vera í kringum alla krakkana sem eru ælandi hér og þar, eins og er á öllum böllum.
En ég nenni ekki neinu í dag, fór reyndar í sandgerði áðan og sótti Sollu, kíktum í nokkrar búðir í keflavíkinni og svo bara rúntað.
En já, hvernir eru þetta sem myndu pott þétt mæta í afmælið mitt, ég er geggt forvitin :op
En ég nenni ekki að blogga meira, ætla að fara að laga til eða eitthvað

12 desember 2005

æji bara annað blogg :o)

Æji ég veit ekkert hvað ég á að segja, ég er ekki búin að gera neitt merkilegt í dag, bara hangsa heima og fara í búðir með mömmu.
En ég taldi allavega peningana mína sem eru í ferðabauknum mínum og Birgis.
Vá það er sko kominn slatti, það get ég sagt ykkur en ekki nærri því nóg, ég verð bara að vera duglegri að safna.
Ég ætla sko að staðgreiða ferðina, ekki eins og allir hinir að taka lán fyrir sumarfríinu.
En ég er ekki búin að ákveða hver ég fer, ég væri alveg til að fara til Ítalíu en það kemur bara í ljós.
Talandi um ljós, ég fór í ljós áðan til ömmu og afa og ég varð eins og rauð jólakúla, ég veit ekkert hvað gerðist.
Ég brann samt ekki né neitt, ég hef abra verið með svona viðkæma húð eða eitthvað.
En ég náði allavega lit, bara smá samt :op
En vá hvað ég hef ekkert að segja né gera, ég er eitthvað svo þreytt, væri alveg til að fara að sofa núna, en ég er ekki að fara að gera það strax.
En já ég hef eitt að segja, ég held að ég sé gallað eintak, ég get valla labbað, ég missi bara fæturnar, hnéin gefa bara eftir, þarf bara að kíkja til læknis en ég geri það bara þegar ég er eitthvað meira gölluð :op
En ég held að ég fari bara að glápa á tv-ið nenni ekki að hanga í tölvunni lengur.
Stoltasta mamma ever

Vá ég er svo stolt af syni mínum að það er ekki eðlilegt.
Þið getið lesið um það á síðunni hans :o)
En ekki orð um það á þessari síðu :op
Ég er sko að rifna úr monti, ég trúi þessu bara ekki :o)
Hvenær kemur snjórinn?

Ég veit að ég er klikkuð en ég bíð spennt eftir að fá snjóinn, ekki mikinn en samt smá, ég var nefnilega að kaupa snjóþotu handa syni mínum og ég vil fara með hann út.
Ég bíð bara, þótt ég sé ekki að nenna að bíða.
En jamm, ég fór í kringluna í gær, amma og afi fengu far með mér, ég get alveg viðurkennt það að ég var frekar stressuð að keyra með þau í bílnum en þetta gekk bara allt mjög vel, afi var mjög ánægður með bílinn og fannst gott að komast inn og út úr honum, hann sat auðvitað frammí.
Ég keypti bara nokkrar jólagjafir og til að pakka inn, svona box ef þið skiljið, ohh ég sá svo flott vesti, ég væri alveg til í það og það kostaði ekki mikið, en ég ætla bara að bíða eftir jólunum og útsölunum, ég er nú ekkert sú ríkasta en þetta bjargast allt :o)
En ég hefði getað keypt endalaust á son minn, en jólin fara að koma þannig að ég kaupi bara einhverntíman seinna.
Hey já, ég fór að svæfa Birgir í gær og sofnaði með honum um 21 leytið, en ég vaknaði aftur um 01:30 og slökkti á tölvunni og háttaði mig.
Draumarnir í nótt voru þvílíkt skrítnir, en ég fattaði suma þeirra í morgun þegar ég vaknaði og það er bara út af deginum í dag, ekkert sérstakur dagur hjá mér en hjá sumum, nefni engin nöfn og vil ekki einu sinni hugsa út í það, þetta er bara fortíðin og er mjög fegin að vera laus við þetta allt.
En ég verð að fara að klára þessar jólagjafir, ég nenni ekki þessu hangsi en ég reyni að klára þetta í vikunni.
En nágrannar eru að fara að byrja þannig að ég verð að fara, ég má sko ekki missa af þeim.
En solla, við verðum að fara að drífa okkur í ræktina :o)

10 desember 2005

smá blogg

Smá blogg

Ég ætla bara að koma með smá blogg núna, ég er búin að gera fullt, fór út á fimmtudaginn með Aldísi og við kíktum á paddys og þar voru bara ógeðslegir kallar þannig að við fórum bara til Bigga frænda, alltaf gaman að kíkja til hans, þar voru Danni, Íris og Gréta.
Íris og Gréta að deyja úr stressi því þær eru í kvöld í Qmen dæminu.
Svo skutlaði ég Aldísi heim því Sævar var vaknaður en ég fór með hinum á Traffic og hitti Önnu Maríu gömlu bekkjarsystur mína, æðislegt að hitta hana.
Inga og Tinna voru þarna líka, svo fór ég bara heim, ég fór út að labba með Aldísi og Sævari og aðal töffaranum mínum á föstudagmorgninum, kíktum niður í bæ og sollis svo átti auðvitað Mía afmæli í gær og við kíktum í afmæli hjá henni, svaka stuð og Birgir fór af kostum :o)
Svo í dag er ég ekki búin að gera neitt, bara hanga og reyna að fara í búðir en ég er bara ekkert að nenna því :op
Þarf að klára smá af jólagjöfunum en enda örugglega bara með því að kaupa þær í reykjavík í næstu viku.
Veit ekki alveg hvað ég á að gefa hinum og þessum, er búin að kaupa samt meiri hlutan, á bara eftir smotterí.
Ég þarf líka að finna mér spariskó, fann flott stígvel í Mangó í gær en ég er ekki alveg að fíla tánna á þeim, en ég ætla bara að pæla aðeins í þessu.

en ég blogga seinna, er engan vegin að nenna þessu :op

08 desember 2005

Finnst þetta vera frábær texti en ég er EKKI að fíla sönkonuna sem söng þetta lag, vil bara taka það fram.


Don't look at me

Everyday is so wonderful
Then suddenly
It's hard to breathe
Now and then I get insecure
From all the pain
I'm so ashamed

I am beautiful
No matter what they say
Words can't bring me down
I am beautiful
In every single way
Yes words can't bring me down
Ohh no
So don't you bring me down today

To all your friends you're delirious
You're so consumed
In all your doom, ooh
Trying hard to fill the emptiness
The pieces gone
Left the puzzle undone
Ain't that the way it is

'Cause you are beautiful
No matter what they say
Words can't bring you down
Ohh no
'Cause you are beautiful
In every single way
Yes words can't bring you down
Ohh no
So don't you bring me down today

No matter what we do
(No matter what we do)
No matter what we say
(No matter what we say)
We're the song inside the tune
(Yeah, oh yeah)
Full of beautiful mistakes

And everywhere we go
(And everywhere we go)
The sun will always shine
(The sun will always, always, shine)
And tomorrow we might awake
On the other side

'Cause we are beautiful
No matter what they say
Yes words won't bring us down
Ohh no
We are beautiful
In every single way
Yes words can't bring us down
Ohh no
So don't you bring me down today

Ooh, ohh
Don't you bring me down today
Don't you bring me down, ooh
Today

07 desember 2005


hehehe, fann mynda af Bigga frænda og svo eru einhverjir strákar með honum, held að þetta séu Siddi,Danni og Óli Geir, þeir voru sko með tískusýningu á konukvöldinu sem ég kíkti mjög stutt á.
En það var alveg ágætt stuð þarna, en hvað er ég að segja frá því næstum því 2 vikum of seint, betra seint en aldrei.
En jamm, ég sit hérna heima með svo mikinn höfuðverk að ég er að kálast, er að pæla að fara líka að sofa bara eftir smá, hef bara gott að því.
En ég nenni ekki að rugla meira, ætla bara að hafa þetta blogg stutt núna :o)
Vesen

Ohh en leiðinlegt, ég var búin að skrifa svo langt blogg en það vildi bara ekki fara inn, en ég ætla að reyna ða muna allt og skrifa það, ég get allavega sagt ykkur það að það var gefið skít í mig í gær og þá meina ég það, yndislegasta manneskja sem til er gerði svo svaka bombu og hún lennti á mér og nýju fötunum mínum, búhú, nei nei þetta bjargasðis allt, ég setti bara fötin í þvott og allt í lagi með þau :o)
En ég hef verið að pæla hvernig jafnaldra mínir geti verið á sjimminu hverja einustu helgi og stundum á virkum dögum, ég skil þetta allavega ekki, ég meira segja hef verið að pæla í því hvort ég eigi einvherntíman eftir að drekka, ég hef allavega enga löngun til þess eins og er en auðvitað getur allt breyst, en ég ætla ekki að vera eins og sumir, lifa fyrir djammið, ég hef svo yndislegan son til að lifa fyrir og ég gæti ekki hugsað mér að vera að djamma og koma heim svo drukkin og geta ekki vaknað með honum morguninn eftir, mér finnst það allavega ekki sanngjart hans vegna.
En eins og flestir vita þá lifi ég fyrir son minn og geri allt til að honum líði vel, hann á ekkert annað skilið.
Ég var alltaf að pæla í því að halda upp á afmælið mitt helgina eftir afmælið sjálft, en ég er bara hætt við það, ég nenni ekki að fara að halda eitthvað partý svo fólk geti drukkið, ég er miklu frekar til í það að vera bara heima með Birgi og elda einhvern góðan mat og hafa það bara gott, það er líka ekki 20 afmæli, ég er bara að verða 19 ára en þegar ég verð 20 þá er ég að pæla að stinga af úr landi og fara með Birgir til Bretlands eða eitthvað, en kannski breytist þetta bara eins og allt annað.
Ég er búin að vera að mála núna upp á síðkastið, en ég er ekki alveg sátt við málverkið, er líka ekki alveg tilbúið en samt, ég þarf að breyta því eitthvað, þið getið kíkt á það á myndasíðuna mína ef þið vitið lykilorðið en annars spyrjið þið bara.
En hver vill koma með mér til útlanda næsta sumar, ég ætla ekki í djammferð, ég ætla að fara með Birgir svo hann geti skemmt sér og ég fengið smá brúnku ef þið skiljið, en endilega komið með mér til útlanda :o9

tékk

TÉKK

bara að athuga, ég hef ekki náð að blogga síðan í gær, var búin að skrifa þvílíkt langa færslu :o/

06 desember 2005

breyta meira

Breyta meira

Ég er alltaf að breyta síðunni minn, ég er búin að bæta mynd af mér, tónlistarhlékkjum og svo smá hér og þar :op
En mamma er komin frá ameríkunni :o)
Hún keypti alveg fullt, hún keypti fyrir mig föt og svoleiðis á Birgir, ég var búin að láta hana fá pening.
Ég mun samt nota sumt af þessum fötum í jólapakkan hans Birgis, hann þarf ekki að fá allt núna þótt hann þurfi að nota þessi föt þegar hann er vaxinn upp í stræðirnar :o)
Ég ætla reyndar að kaupa meira, það er svo margt sem kemur til greina, þarf að hringja á 2 staði til að athuga hvort hlutirnir séu komnir til landsins.
Þarf líka að pannta, ég var alveg búin að gleyma því :op
Best að gera það strax í kvöld :oD

Ég er alveg að deyja, langar svo í klippingu og litun en það kemur bara að því þegar ég hef efni á því, jólagjafirnar ganga fyrir :o)

En ég hef svosem ekkert að segja, ég blogga meira seinna, ég er búin að gleyma öllu sem ég ætlaði að blogga um, svona er þetta að vera mamma og hafa nóg að gera (segir sú lata) nei nei, :op

05 desember 2005

hugsi hugs

HUGSI HUGS

Ég er búin að vera að hugsa svolítið mikið upp á síðkastið hvað ég eigi að gera, málið er að ég er svo hirllilega skotin í einu pils og einu pari af stígvelum(spari sko).
Þetta er bara allt of dýrt fyrir mig því þetta kostar meira en 20.000 í heildina, svo langar mig svo mikið að lita á mér hárið, en ég er búin að finna lausn á því, ég ætla bara að kaupa apótekaralit sem kostar bara eitthvað á milli 1000 og 1500 þannig að ég slepp vel þar, en ég veit ekki hvað ég eigi að gera í sambandi við pilsið og stígvelin.
Ég skal lýsa pilsinu og stígvelunum fyrir ykkur svo þið getið commentað og hjálpað mér aðeins.
Pilsið er bara hrein snild, ég hef aldrei séð eins flott pils, það er mjög skríðið snið á því en henntar mjög vel, er ekki svona beint eins og horrenglurnar ganga í.
Það er svart en ekki svart, smá grátt, efnið er bara költ, æji ég veit ekki alveg hvernig ég get lýst því betur.
Stígvelin eru líka bara flott, eru svört, ná upp rétt fyrir neðan hné, hálf krumpuð, og hællinn er bara költ, hann er sko heill, ekki svona pinni, en eina vesenið með stígvelin eru að þau eru bara til í 41 en ég þyrfti 42 helst, 41 er of lítið, en ég fæ aldrei spariskó á mig í nógu stóru þannig er það bara.

En má hvað þetta er tilgangslaust blogg, efast um það þið nennið að lesa svona rugla.

04 desember 2005

Væmið

~*Mamma*~

Mamma er konan sem ég lít allra mest upp, hún er bara æðisleg, það væri ekki hægt að eiga betri mömmu.
Hún gerir allt fyrir mig og er alltaf til staðar ef eitthvað er að.
Hún er fullkomin í alla staði, hún hugsar alltaf vel um þá sem henni þykir vænt um og lætur sko engan líða illa í kringum sig.
Ég hef aldrei heyrt hana tala illa um neinn og ég veit fyrir víst að ég mun aldrei gera það.
Hún er besta mamma sem hægt er að eiga og er ég mjög þakklát fyrir að eiga hana sem mömmu.
Mamma ég elska þig svo mikið :o*


~*Hanna*~*~*Sibba*~*~*Aldís*~*~*Sólveig*~*~*Íris Hrönn*~

Mér þykir svo rosalega vænt um ykkur, þið eruð svo góðar og sannar vinkonur, ég gæti ekki átt betri vinkonur en ykkur, þið kætið mig alltaf þér mér líður illa, knúsið mig þegar ég þarf á knúsi að halda, ég get alltaf talað við ykkur þegar eitthvað er að. Þið eruð bara bestar, ég veit ekki alveg hvað ég get sagt meira því þið eruð svo ólíkar allar en mér þykir svo vænt um ykkur og vil gefa ykkur risa stórt knús *KNÚS*

~*Sara*~*~*Anika*~

Þið eruð sko alveg frábærar, svo lífsglaðar og gaman að hitta ykkur þótt við hittumst ekki oft, þið þorið alveg að vera þið sjálfar og eruð ekki feimnar við að segja hvað ykkur finnst.
Mér þykir mjög vænt um ykkur og það væris vo gaman að geta hitt ykkur oftar :o)

~*Jenný*~*~*Anna Olsen*~*~*Þóra Björg*~

Þið eruð "litlu" snúllurnar mínar, alltaf svo gaman að hitta ykkur og tala við ykkur, ég man enn þegar ég hitti ykkur fyrst og þegar ég fann strax fyrir því að þið ættuð alltaf eftir að vera litlu snúllurnar mínar.
Þið eruð æðislegar í alla staði.

Núna eruð þið búin að fá allt væmna frá mér þannig að ég býst ekkert við því að vera væmin aftur í bráð :op

03 desember 2005

gleði

Gleði

Ég er búin að ákveða að skrifa um allar þær manneskjur sem mér þykir vænt um, það er nú hátíð að ganga í garð eftir nokkra daga og þess vegna finnst mér alveg tilvalið að skrifa eitthvað fallegt um þær manneskjur sem mér þykir vænt um.
Ég ætla að fara að gera lista svo ég gleymi engum, en þið megið alveg minna mig á ykkur ef ég er ekki búin að skrifa um ykkur :o)

~*Mía*~

Mía systir er bara frábærasta systir sem hægt er að eiga, hún er líka ein besta vinkona mín, ég get sagt henni allt og ég get alveg treyst henni.
Hún hefur alltaf hjálpað mér þegar eitthvað er að.
Ég vil bara þakka guði og auðvitað mömmu fyrir að gefa mér svona frábæra stóra (litla) systir því án hennar gæti ég ekki verið, ég verð líka að þakka þeim fyrir að hafa gefið mér STÓRA systir ekki LITLA því ég væri örugglega að verða gráhærð á henni ef hún væri yngri en ég :op
Ég er líka svo stolt af því að eiga hana sem systir því hún er svo dugleg, klár, falleg og góð.
Hún er BESTA SYSTIR sem hægt er að eiga.
Ég elska þig svo mikið stóra systir :o*


Það koma fleirri seinna þegar ég hef tíma til að blogga :o)

sílíkon :op

sílíkon :op

Ég vaknaði sko með sílíkon brjóst í morgun, bara annað reyndar en vá hvað þetta var vont, Birgir vildi ekki drekkar úr brjóstinu þannig að það mátti ekki neitt snerta brjóstið, ekki einu sinni bolurinn, en þetta bjargaðist allt :o)
En vá hvað ég veit að þið viljið ekki lesa eitthvað svona :op
Ég hef bara ekkert annað að segja nema það að það er snjór úti :o)
Ég væri svo til að fara á snjóbretti núna, værir þú ekki til í það Sibba?
Við verðum að fara við tækifæri áður en ég sel brettið mitt, kannski við kíkjum bara á milli jóla og nýárs ef það verður snjór :o)
En ég ætla að fara að gera mig til og svoleiðis, er að fara gera svolítið sem kemur mömmu á óvart :o)

02 desember 2005

klæjar svo

Klæjar svo

Vá hvað ég er að deyja úr kláða og ekki á skemmtilegum stað.
Ég get ekki klórað mér því ég er með fóbíu fyrir þessum stað, eins og þeir sem þekkja mig best þá vita þeir að ég er með fóbíu fyrir tásum, þetta er bara ógeðslegt, ég get ekki einu sinni snert mínar eigin tær.
Einu tærnar sem ég get snert eru tærnar hans Birgis, enda eru þær svo sætar :o)
Fyndasta við þetta er að kláðinn er bara á einni tásu, litlu tásu á hægri fæti og ég er að deyja.
Ég væri svo til að vera ekki með tær, afhverju þurfit Guð að skapa okkur með tær?
Þær eru oftast í sokkum og sjást aldrei, ég skil ekki afhverju við þurfum að vera með þetta, þetta er ekki bara upp á lúkkið en einu sinni var mér sagt að ef við værum ekki með tær þá gætum við ekki haldið jafnvægi, ég hef ekki hugmynd hvort það sé eitthvað satt í þessu en þetta var mér allavega sagt.
Eru einhverjir fleirri þarna úti í heiminum sem eru að lesa bloggið mitt með fóbíu fyrir tásum?

Alveg merkilegt

Alveg merkilegt

Ég ákvað að taka út gestabókina þannig að þið verðið bara að vera dugleg að commenta og skrifa í spjallið :o)
En allavega þá var þessi dagur frábær.
Ég fór út að labba með Aldísi og við vorum að tala eitthvað saman um vissa manneskju sem við skulum bara kalla X ( Aldís við skulum ekkert nafgreina hana hér :op) og svo löbbum við eitthvað lengra og viti menn þarna stendur X og er að tala við einhvern kall, við gátum ekki annað en hlegið :op
Svo erum við að labba eitthvað meira og svo sjáum við það að X fer inn þar sem ég þurfti að fara inn, ég var bara hummm, ég er ekki að fara inn á eftir X, sem betur fer sjáum við Geirný og litlu skvísuna henar, þannig að við tölum eitthvað við hana og svo fer ég inn á staðinn sem ég þurfti og sem betur fer var X ekki þar :o)
Við löbbum svo meira (erum svo duglegar) og nei nei þar er X og labbar fyrir framan okkur og svo stoppar einvher bíll fyrir honum og hann hoppar inn í bíl og ég og Aldís auðvitað hlógum og hlógum :oD
Þetta var allavega eitt það fyndnasta sem ég hef upplifað í langan tíma :o)
En ég ætla að fara að ganga frá núna og gera allt fínt þannig að ég ætla að reyna að blogga meira í kvöld eða bara á morgun.
ÞAÐ ER SKILDA AÐ KOMMENTA :o)

01 desember 2005

Búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna að blogga og loksins gekk það :o)
Það er sko margt búið að gerast hjá mér, ég er búin að kaupa mér bíl :o)
Er ekkert smá ánægð með hann.
Fór í rvk í fyrsta skiptið á honum í dag og það gekk bara mjög vel.
Ég verð líka að segja að ég sá bara flott pils áðan, það er bara mergjað, ég er hálf ástfangin af því :op
Ég hef ekki alveg efni á því að kaupa það strax þannig að ég verð bara að safna mér fyrir því :o)
Svo sá ég alveg mergjuð stígvel áðan, þau eru bara flott, ég veit samt ekki alveg hvort ég eigi að kaupa mér þau en ég sef bara á því í nótt :o)
Ég er líka komin í jólafrí, ekkert smá gaman, ég ætla mér að gera svo margt í desember þannig að ég hef alveg nógan tíma fyrir allt :o)
En ég er að pæla hvort einhver nenni að koma með mér út að labba alla daga á sama tíma ?
Ég er líka að pæla að fara í ræktina, þarf bara að tala við eina manneskju fyrst svo það verði eitthvað úr þessu, sem ég vona svo innilega :o)
En vá hvað lífið er yndislegt, ég er ekkert smá hamingjusöm og allt gengur svo vel hjá mér.
Svona er það bara að eiga góða að, þið vitið hverjir þið eruð þannig að ég vil senda bara risa stórt knús til ykkar, þið eruð frábær :o)
En ég er að pæla að fara mála núna, ég á svo marga striga :o)
En ég lofa ykkur að það verða fleirri blogg eins og var alltaf :o)

Commenntaðu nafninu þínu

Comentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig

5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt.. You MUST

ætli ég geti bloggað

ætli ég geti bloggað ?

Það kemur bara í ljós, ég er allavega búin að reyna að blogga í nokkra daga :o)

25 nóvember 2005

Nýtt e-mail

Nýtt E-mail

Jæja ég er þá komin með nýtt e-mail, ef þið viljið vita það þá skuluð þið bara láta mig vita í commentunum og ég adda ykkur inn, munið bara að skilja eftir ykkar e-mail

20 nóvember 2005

Kæru lesendur

Kæru lesendur

Þið sem finnið ykkur knúin til að ræða persónuleg málefni mín eruð beðin um að gera það ekki í felum á bak við netið.

Ef þið eigið eitthvað vantalað við mig, þá getið þið rætt það auglitis til auglitis. Netið er ekki vettvangur þessa mála.

19 nóvember 2005

Laugardagur :op

Laugardagur :op

Jamm, það er víst kominn laugardagur, ég veit ekkert hvað ég á að bralla í kvöld, væri alveg til að skella mér á rúntinn eða eitthvað, en það kemur bara í ljós, ég er allaveg búin með mest megnið af verkefninu, þarf bara að bæta smá við það og svo bara BÚIÐ :op
Við vorum meira og minn bara heima hjá ömmu og afa í dag, það var sko jólabakstur í gangi og það var sko ekkert leiðinlegt.
En vá ég veit ekkert hvað ég á að gera í kvöld, væri svo til að gera eitthvað skemmtilegt, ég veit um eitt partý en ég veit ekkert hvort maður sé velkominn þangað, þetta er held ég bara svona lokað partý, en hver veit, kannski ég tékki bara á því :op
En ég ætla að fara að vera með fjölskyldunni, ég hef hvort sem er ekkert að segja, en látið mig vita ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt í kvöld :o)

18 nóvember 2005

Föstudagur

Föstudagur :o)

Yes það er loksins kominn föstudagur, ég ætlaði mér að vera svo dugleg í dag, vaknaði rétt fyrir 7 í morgun :oD en ég sofnaði aftur :op
En ég fór allavega að vesenast í þessu afmælisdóti, er búin að kaupa smá en það er sko langt í land :op
Ég fór upp í skóla í dag og ætlaði að prenta út en nei það er ekki hægt að prenta út í lit , algjör bömmer því ég ætlaði að prenta boðskortin en ég geri það bara á sunnudaginn :o)
Það eru alltaf að bætast við hverjum maður eigi að bjóða, vonandi mæta bara sem flestir :o)
En nóg um afmælið, ég á mér sko alveg líf :op
Ég átti að fara á fund í dag en honum var því miður frestað og ég þurfti því miður að fresta fundinum sem á að vera eftir viku en það verður bara að hafa það.
Ég verð að fara að klára þetta verkefni, ég veit ekki alveg hvernig ég á að hafa það, HJÁLP einhver, neinei ég segi bara svona, ég þarf bara að leggja höfuðið í bleyti og reyna að finna eitthvað útúr þessu, þetta á allt aftir að heppnast, vonandi :op
En endilega bendið mér á einhverjar skemmtilegar síður til að skoða, ég skoða alltaf bara sömu síðurnar og það eru svo rosalega fáir sem er svona duglegir að blogga eins og ég :op
Þótt ég hafi ekkert merkilegt að segja þá blogga ég samt, þetta er líka eins konar dagbók fyrir mig svo ég muni hvað ég er búin að vera að bralla upp á síðkastið :op

Testið

Testið!!

Vildi bara láta ykkur vita að ég er með svona próf neðst á síðunni hægra megin, endilega takið þátt :o)
En ég blogga seinna :op

17 nóvember 2005

Plan,plan og planerý

Planerý

Úff ég er að fara að plana þetta afmæli á morgun, þarf sko að gera fullt, kíkja á diska, glös, blöðrur, dúka og svoleiðis, þarf líka að fara í Bónus að kaupa drykki og svona, ég vil bara reyna að klára sem flest á meðan ég hef tíma, ég þarf að skilaverkefni á mánudaginn og svo í próf á miðvikudaginn og svo er litlaleyndarmálið mitt á fimmtudaginn og reykjavík á föstudaginn þannig að ég hef varla tíma í þetta í næstu viku.
Ég vona bara að afmælisgjöfin hans verði komin til landsins, það er tvennt sem kemur til greyna og hvorugt sem er til á landinu þannig að ég vona að þetta verði komið :o)
Svo þarf ég að fara að klára þessi boðskort, þarf að prenta þau og bera/ senda þau.
Ég er komin með nánast fullkominn lista yfir það fólk sem ég ætla að bjóða þannig að ef ég næ ekki að senda út boðskortin þá hringi ég bara :op
En jamm ég er ekkert smá fegin ég er komin í helgarfrí úr skólanum, en ég hef hvort sem er ekkert að gera, þannig að ég verð bara að læra, ég þarf líka að læra þannig að ég get ekkert farið út, ég ætla mér að fá góða einkunn fyrir verkefnið.
En jamm ég þarf að fara að halda áfram, blogga seinna :o)

10 dagar

10 DAGAR

Það eru bara 10 dagar í afmælið hjá syni mínum, það verður ekkert smá skemmtilegt hjá okkur, svo eru bara 47 dagar í afmælið mitt, ég var að pæla í því að halda uppá það en ég er bara að pæla að sleppa því, það er ekki eins og þetta sé stór afmæli. Ég held bara uppá það með fjölskyldunni, en afmælið hans birgis verður svo flott ég er alveg viss um það, en ég þarf að fara að drýfa mig að senda út boðskort, þyrfti helst að fara upp í skóla og prenta þau út, geri það bara á morgun ef ég fæ bílinn hjá múttu, ég nenni ekki að labba í þessu veðri, ég ætlaði nú að fara út að labba núna en ég er bara ekkert að meika það, ég bíð bara eftir skárra veðri, en ég ætla núna að fara að gera mig til svo ég verði ekki í náttfötum í allan dag :op

16 nóvember 2005

Mergjað :o)

MERGJAÐ :o)

Þetta er bara búinn að vera skemmtilegur dagur, ég er ekkert smá happý í dag :o)
Ég á mér líka smá leindarmál sem ég get ekki sagt frá fyrr en fimmtudaginn í næstu viku, ligga ligga lái, en allavega þá verð ég að segja það að ég á besta afa í heimi, hann er svo frábær, alltaf svo glaður.
Hann er líka svo ánægður þegar hann sér nafna sinn, þeir báðir eru svo ánægðir að hitta hvorn annan :o)
Þeir lifna svo við, en ég veit það að afi á eftir að "stela" Birgi oft þegar Birgir litli verður eldri, þeir verða auðvitað báðir eldri en þegar Birgir minn er farinn að labba og tala og svoleiðis :op
Ég sé þá alveg í anda að fara saman í klippingu og svoleiðis :op
Ég bíð bara spennt eftir þeim tíma sem verður fljótlega :oD
Ég verð líka að segja það að ég er sko massa kvenmaður, neinei ég segi bara svona :op
ég var að hjálpa mömmu áðan og ég gat sko lyft nánast öllu ein :op mamma hjálpaði auðvitað en ég hefði alveg getað þetta EIN hehehehehe :op
Svo er líka núna svo stutt í það að ég fari í jólafrí ég get varla beðið, ég ætla sko að skreyta mikið og leyfa Birgi að hjálpa, hann kannski fær bara að mála, úff það verður forvitnilegt að sjá :op hehehehe.
En ég ætla að fara að hafa það næs með familíunni, þangað til næst, munið að brosa því það er svo gaman, allavega hjá mér :oD

Nissan Micra

NISSAN MICRA

Vá hvað ég er miklu spenntari fyrir Micrunni núna, ég fór með mömmu að tala við þá áðan því við viljum aðeins betra tilboð, ég fæ örugglega líka kastara og allt, svo var ég að skoða bæklinginn um bílinn og þá sá ég að það er hólf undir farþegasætinu framí, en maðurinn sagði að það væri ekki í öllum bílum, en það verður vonandi í mínum :o)
Svo sá ég það líka að ég get slökt á airbagnum framí farðþegameginn þannig að Birgir getur setið þar í barnastólnum sínum auðvitað þegar ég fer eitthvað langt, ég er alveg viss um það að hann á eftir að fíla sig í botn þegar hann fær að prufa það :op
Ég vona bara að ég fái geggt gott tilboð svo ég geti fengið bílinn, en maðurinn sagði að ég þyrfti að borga 10% út sem er semsagt sirka 150 þúsund, ég bara Vvváááááá, ég þori því varla en ég á alveg pening, en ég er bara þannig manneskja sem vil eiga alltaf vissa upphæð inn á banka, en svona er ég bara.
En ég get ekki ákveðið mig hvort ég ætti að fá mér dökkbláan eða steingráan, þeir eru báðir svo flottir.

Alveg...

ALVEG

Já há, núna var ég að komast að því að manneskjur sem ég er ekkert að fíla, hálf **** eru að lesa bloggið mitt, skrifa inn á síðuna nafnlausar en allavega ein er búin að koma fram, svo er alltaf eihver að skrifa nafnlaust í spjallið hjá mér, hvað er eiginlega málið með það, fyrst manneskjan er að lesa þetta blogg þá ætti hún alveg að geta komið undir nafni, það er allavega það sem mér finnst.
En ég er nú eiginlega bara búin að ákveða það núna að fá mér aðra síðu og hafa hana LÆSTA, ég er ekkert sátt við það að fólk sem er búið að stinga mig oft og mörgum sinnum í bakið og líka fjölskyldu mína sé að lesa bloggið mitt, eins og ég er búin að segja í öðru bloggi þá er þessi síða engöngu fyrir mína bestu vini og mína æðislegu fjölskyldu.
Ohh ég er svo svekkt því ég er loksins búin að gera síðuna eins og ég vil hafa hana en NEI þá eru einhverjir sem ég vil ekki að séu að lesa hjá mér að lesa.
Ég ætla bara að sjá til ef ég held áfram að blogga, ég held að það sé bara best fyrir mig að hætta.

15 nóvember 2005

Eitt leiðir....

EITT LEIÐIR AÐ ÖÐRU

Jæja, þá ætla ég að vona að einhverjir commenti núna hjá mér, allavega þá er ég svolítið forvitin hverjir þetta eru sem segjast hafa þekkt mig í spurningarkönnunni.
Er einhver til að gefa sig fram, svo er það annað, ég er enn að bíða eftir myndum af ykkur, ég er búin að redda nokkrum og ég vil fá fleirri svo ég geti klárað þetta dæmi.
Ég er líka komin með gestabók þannig að það væri gaman ef þið mynduð kvitta fyrir ykkur.
Hey já, ég skil ekki hvað manneskja er að lesa bloggið mitt ef hún hefur ekki hugmynd hver ég er, þúst halló, ekki er ég að lesa blogg hjá manneskjum sem ég þekki ekki.
En það þýðir ekkert að vera að pæla í þessu.
Ég hef svo lítið að segja, væri svo til að hafa eitthvað að segja svo ég geti skrifað það hérna núna, ég hef nefnilega ekkert að gera og nenni engu, þvílík leti í mér, vantar bara spark í rassinn svo ég komi mér af stað og klári kannski að mála þessi málverk sem ég er byrjuð á. Ég ætlaði mér alltaf að klára þau bara í róglegheitunum í Desember en ég er búin að plana svo mikið í Des þannig að ég er ekkert viss að ég nái að gera allt sem ég ætla mér.

Kuldi

KULDI

Úff hvað það er kalt úti, ég fór út að labba með Aldísi og guttunum, við tókum bara smá hring og svo fórum við heim til Helgu, tjöttuðum bara smá og svona, svo vöknuðu guttarnir þannig að ég og Aldís fórum bara að rölta heim, komum við í Kasko og svo bara heim, en ég er alveg að deyja úr kulda núna, það er sko skít kalt.
Ég ætla að reyna að dunda mér smá í verkefninu og svo bara beint í skólann, ég er ekki að meika það að fara í tíma í þessum kulda, ég væri miklu frekar til að vera bara heima og kúra undir sæng, en það eru bara 9 skóladagar eftir og svo JÓLAFRÍ :o)
En ég ætla sko að gera eitthvað sniðugt þegar ég er búin í skólanum, vona bara að verði komin með nýja bílinn minn ef það verður eitthvað úr þessu öllu saman.

14 nóvember 2005

Próf

PRÓF

En og aftur er próf í dag, svo verður próf á miðvikudaginn í næstu viku og svo aftur próf á mánudeginum eftir það og svo skólinn bara nánast búinn :o)
Það var svo gaman í gær, biggi og Kristján kíktu á okkur, Kristján stækkar og stækkar, en er sko miklu stærri en Birgir en þeir eru á sama ár, sirka 7 mánuðir á milli þeirra.
Ég er að fara að læra núna á meðan birgir getur leikið sér, ég er reyndar bara að fara að lesa yfir þetta, ég kann þetta næstum því allt ef ekki bara allt, auðvitað ruglar maður sumum hlutum saman en ég ætla mér ekki að gera það í prófinu, ég verð að vera dugleg :o)
Svo á morgun ætla ég sko út að labba, hver vill vera memm?
Ég ætla að fara frekar snemma og vera komin heim um hágdegi svo ég geti dundað mér kannski að mála eða eitthvað. Ég þarf reyndar að skila verkefni næsta mánudag þannig að ég kannski dundi mér bara við það, ég þarf nefnilega að halda fyrirlestur og ég er ein í hóp, það eru flesstar 2- 3 en ég er með verkefni sem enginn annar í bekknum getur fjallað um þannig að ég verð bara að vera ein sem er bara gott, ekkert vesen né neitt.
En ég verð að fara að læra núna, blogga bara aftur í kvöld eða eitthvað.

13 nóvember 2005

Ég er svo þreytt

Ég er svo þreytt

Ég er svo þreytt, ég skil þetta ekki alveg, verð bara að hvíla mig aðeins meira en ég geri, fara líka fyrr að sofa og svoleiðis.
en ég er alltaf að pæla í þessum bílamálum, ég veit ekkert hvað ég á að gera, núna er ég eitthvað smeik við þetta allt saman, það er svo dýrt að reka bíl, það þarf að borga mánaðarlega af honum + tryggingar + bensín.
Þetta verður erftitt fyrst en svo verður þetta í lagi, ég sel bara bílinn ef ég hef ekki efni á honum.
En ef ég kaupi mér bílinn þá ætla ég að safna mér upp í einkanúmer, langar alveg rosalega í B OLSEN það passar svo vel við okkur birgir, við erum nefnilega bæði B OLSEN ef þið skiljið :op
En númerið er svo dýrt þannig að ég verð mjög lengi að safna me´r fyrir því, það kostar nefnilega heilar 25.000 og svo kostar eitthvað aukalega að setja það á.
Hey já ég fór í geðveika búð á föstudaginn, það eru svo flott föt þarna, ég væri sko til í nánast hverja fílk þarna, amma var að pæla að fara með mig þarna og leyfa mér að velja jólagjöfina mína en ég þori því ekki, þetta er frekar dýr búð, ég sá reyndar alveg geggjaðan kjól, hann er sko bara flottur, hann kostaði held ég 13.000 eða eitthvað, svo voru fullt af peysum, bolum og skyrtum þarna, ég ætla sko að kaupa mér föt þarna í staðin fyrir að kaupa mér alltaf marga ódýrara flíkur.
Ohh ég þarf að læra smá í dag, ég lærði reyndar í gærkveldi en þarf að fara smá yfir þetta í dag, ég er nú enga stund, er nefnilega bara að fara gá hvort ég kunni þetta ekki alveg, ég væri sko alveg til að fá 10 í þessu prófi, það væri alveg mergjað.
En ég er að pæla að fara að klæða mig eða eitthvað, ég nenni ekki að vera svona subbuleg, með hárið út í loftið og þvílíkt úldin í framan.

12 nóvember 2005

Tilboð

TILBOÐ

Núna hef ég ekkert annað að gera en að bíða fram á mánudag, ég er að bíða eftir tilboði útaf micrunni, ég fór og prufukeyrði eina og ég er nokkuð sátt við bílinn, þetta er auðvitað lítill bíll en það er bara aukaatriði.
Ég er ekkert eins og strákarnir, pikka upp gellur/gæja útaf því að bíllinn er flottur, þetta er bara farartæki og ekkert annað, en ef ég ætti einhvern gamlan bíl inn í bílskúr þá væri það annað mál, þá væri þetta lífstíll.
Bíllinn sem ég prufaði var sko ekki flottur á litinn, hann var svona gulur en samt ekki gulur, frekar svona drappaður pissugulur ef þið skiljið, ég var allavega ekki að fíla litinn.
Ég mun mjög líklega fá mér steingráan eða dökk bláan, það eru litirnir sem ég fíla mest.
En ég ætla bara að vona að ég fái gott tilboð, það væri sko mega flott.
En allavega þá ætla ég bara að hafa það gott í kvöld, kúra upp í sófa og glápa á tv og svo læra smá, ég nenni ekki að eyða öllum deginum í lærdóm á morgun, en ég ætla að fara að glápa á tv núna, STELPURNAR eru :o)

Bíll eða ekki bíll

Bíll eða ekki bíll

Ég er mjög líklega að fara að kaupa mér bíl beint úr kassanum :o)
Ég er ekkert smá ánægð, við mútta og afi förum örugglega að vesenast í þessu á eftir eða bara við tækifæri.
Ég er búin að vera að pæla í micrunni og er svolítið hrifin af henni, hún er líka ódýrust af þessum smábílum en það er svo mikið í henni sem er ekki í hinum.
Ég ætla allavega að reyna að kíkja á hana á eftir, ég veit bara ekki hvernig á litinn ég ætti að fá mér, svartann, dökkbláan, gráan eða steingráan, hvað finnst þér?
Ég væri alveg til í miklu flottari bíl en ég hef bara ekki efni á því, ég er nú einstæð móðir og í námi.
Ég fæ mér bara draumabílinn þegar ég er búin að koma mér fyrir og svoleiðis.
Ég þarf líka bara bíl sem kemur mér frá A til B, það er að segja heiman frá mér og í skólann/ búðina.
Það er ekki meira sem ég þarf á bílnum að halda, jú auðvitað til Míu systir og svoleiðis :o)
En ég læt ykkur vita hvernig þetta fer allt í dag :o)

11 nóvember 2005

Æðislegt

Æðislegt eða þannig
Vá hvað það er ekki gaman hjá mér núna, ég sit hérna ein heima, Birgir er samt auðvitað hjá mér, bara sofandi, ég er með þvílíkan höfuðverk og geggt þreytt, liggur við að ég fari að sofa bara, en ég nenni því ekki.
Það er PARTÝ hérna við hliðin á og þvílík læti, ég held meira að segja að krakkarnir hérna séu á aldrinum 11-15 eða eitthvað, allaveg er ekki gaman hjá mér.
Ég ætla bara að hangsa smá í tölvunni, læra, glápa á TV og fara svo bara að sofa.
Ég hef sko ekkert annað að gera.
Ég væri svo til að skoða einhverjar síður sem eru skemmtielgar, endilega bendið mér á einhverjar, þetta gengur sko ekki, skoða alltaf sömu síðurnar og það bætist svo sjaldan eitthvað við á þeim, bendið mér á einhverjar síður sem eru FRÁBÆRAR.
Ég hef ekkert meira að segja en ef ég hef einhverju að bæta við þá blogga ég bara aftur.

Akkurat

Akkurat
Ég fór út að labba með Aldísi og gaurunum, það var bara mjög fínt, fórum upp í skóla, ég þurfti að sækja um stuðnigsfulltrúanámið fyrir næstu önn, þannig að það er bara fínt að vera búin að þessu, í gær var ég að dunda mér að gera afmæliskort fyrir afmælið hans Birgis og það heppnaðist alveg frábærlega vel, ætla samt að prufa að gera önnur og velja svo, svo er það að ákveða hverjum maður ætti að bjóða, ég veit ekki hvort ég ætli að hafa þetta stórt boð eða bara fyrir þá nánustu, það kemur bara í ljós, ég sendi bara þeim sem eru boðið boðskort þannig að það ætti ekki að fara á milli mála hverjum verður boðið.
Ég gæti sko montað mig endalaust á honum Birgi, hann er orðinn svo duglegur, ég þarf ekkert að segja meira, það stendur allt á síðunni hans eða mun gera það um helgina þegar ég hef tíma að betrum bæta síðuna hans.
Guð hvað ég verð fegin þegar skólinn verður búinn í lok nóvember, ég hef heilan mánuð í að gera ekki neitt, ætla samt að vera ýkt dugleg, þrífa, kannski læra smá fyrir næstu önn og vera með fjölskyldunni og vinum.
Ég þarf reyndar að vera mjög dugleg næstu viku því ég á að skila verkefni í UPP og það er frekar stórt, er reyndar alveg byrjuð á því en fullt eftir, en ég ætla að fara að gera mig til fyrir RVK.

10 nóvember 2005

Sumt fólk er alveg...

Sumt fólk er alveg...
Sko sumt fólk er alveg gaga að mínu mati, mér finnst það allavega lágmark að commennta hjá manni eða segja eitthvað í spjallinu ef það er að lesa bloggið mitt, ég geri það að minnsta kosti, ég er ekkert að tala um að það eigi að gera það daglega en kannski svona þegar þú ert að lesa bloggið í fyrsta skipti.
Svo ætla ég bara að segja ykku það að ég er komin með TELJARA og ég veit alveg hverjir eru að skoða bloggið mitt, en auðvitað kemur fyrir að ég kannist ekkert við ip töluna en það er bara svo lítið mál að komast að því, þannig að ég vil bara benda ykkur á það að ef þið viljið ekki láta koma upp um ykkur að vera að lesa bloggið mitt þá bara gjörið svo vel og sleppið því.
Þetta blogg er fyrir mína nánustu og mína vini ENGA aðra.
Þannig að ég bið ykkur um að kvitta fyrir komu ykkar hér svo ég þurfi ekki að fá mér aðra síðu.

ML

ML
Ég væri sko alveg til að vita það hverjir væru að skoða síðuna mína frá menntaskólanum á Laugarvatni.
Ég skal lofa að bíta ekki, plíz segið mér hverjir þið eruð.
7 Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Vera alltaf til staðar fyrir Birgir

2. Klára að mennta mig

3. Finna mér góða vinnu

4. Kaupa hús og bíl

5. Finna þann rétta

6. Hugsa ávalt um fjölskylduna

7. Prufa allar jaðaríþróttirnar

7 Hlutir sem ég get ekki :


1. Snert tær (nema Birgis)

2. Verið lítil

3. Gengið um nakin

4. Drukkið áfengi (eins og er)

5. Verið með manni sem á sér ekkert líf og enga framtíð

6. Verið í kringum fordóma

7. Verið á tónlistar

7 Hlutir sem ég get gert:

1. Ég get látið braka í hálsinum á mér

2. Gert ýmsar joga stellingar

3. Meira en 2 í einu

4. Látið eins og asni

5. Djammað edrú

6. Verið ég sjálf

7. krept fingurna á mjög nornalegan hátt



7.hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. Augun

2. Brjóstkassinn

3. Hárið

4. Brosið

5. Tennurnar

6. Hvernig hann hegðar sér

7. Persónuleikinn

7 Frægir karlmenn sem heilla mig:

1. Mel Gibson

2. Josh Groban

3. John Travolta

4. Páll Óskar

5. John Terry

6. ????

7. ????

7 Orð sem ég segi oftast:

1. Má ekki

2. Nei

3. Já

4. Mamma

5. Hey

6. Birgir

7. Grallari

7 Hlutir sem ég sé akkurat núna:

1. Brúsi

2. Skál

3. Barnapíutæki

4. Myndavél

5. Stundatöfluna mína

6. Talvan

7. Geisladiska

7 Manneskjur sem ég ætla að "kítla":

1. Mía

2. Sólveig

3. Sara

4. Íris Hrönn

5. Eva G

6. Þóra Björg

7. Hanna Rúna

09 nóvember 2005

Mont

MONT!!!
Ég verð að fá að morta mig smá, ég fék útúr einu prófi áðan og ég fékk 8,1, ég var sko ekkert smá sátt því mér er ekkert búið að ganga súper vel í áfanganum þannig að þetta hjálpaði ekkert smá, en svo fór ég aðeins að pæla í þessu og sá að kennarinn hafði gert smá villu, ég hafði semsagt fengið 8,8
Sem er bara súber dúber flott að mínu mati, ég er svo montin af sjálfri mér að það er ekkert eðlilegt, en jamm, kennarinn er ekkert smá ekki skemmtilegur, hann gerir alltaf lítið úr okkur ungu stúlkunum eins og hann kallar okkur, hann hefði alveg eins getað sagt haltu kjafti og sestu niður við mig, hann er sko ekki í uppáhaldinu hjá mér og ég ætla ekki að fara í tíma til hans ef hann á að kenna mér á næstu önn, frekar fer ég í dans.
Nei nei ég segi bara svona.
En ég fer svo í próf á mánudaginn, sem betur fer er ég búin að læra frekar vel en á eftir að læra miklu meira, þarf að klára nokkrar spurningar og lesa smá og sollis.
Ég er hálf partin farina ð telja mínuturnar í það þegar ég heyri bjölluna hringja í seinasta sinn á þessari önn, vá hvað það verður gaman.
Hey já ég fór að lyfta og ég var svona lala dugleg, verð örugglega með harsperur á morgun, en það verður bara að hafa það, en jamm ég ætla út að labba á morgun, vill einhver vera memm???

Próf í dag

Próf í dag

ohh ég er sko ekki að nenna að fara í próf í dag, en þetta ætti ekkert að vera erfitt próf, en ég á svo fá eftir, svo er skólinn líka að verða búinn, ég er ekkert smá fegin.
Ég fer bara bráðum að plana afmælið hjá Birgi, hann á afmæli eftir bara nokkra daga, ég trúi þessu bara ekki, hann er að verða 1 árs þann 27.nóv og ég verð þá búin að vera mamma í 1 ár líka, úff hvað þetta er eitthvað skrítið.
Ég ætla sko ekki að leyfa neinu að eyðileggja þennan dag fyrir Birgi, þetta er hans dagur og hann á að fá að njóta sín.

Hey já, ég get víst ekki gengið mikið ef það er hálka, mjaðmirnar fara sko í hakk hjá mér, ég var og er að drepast í mjöðmunum eftir göngutúrinn í gær, ég var líka eins og belja á svelli og ég er sko ekki að ljúga.
Ég verð bara að kaupa mér svona gadda til að geta gengið í vetur, ekki ætla ég að hanga bara heima og gera ekki neitt, en svo verð ég að fara að drífa mig að kaupa mér bíl, ég bara verð, þetta gengur sko ekki, ég er alltaf á bílnum hennar mömmu og það er þvílíkt vesen.

Ef þið vitið um einhvern góðan bíl sem er sjálfskiptur, lítið keyrður, með góðu skotti og 4 farþegahurðum þá megið þið alveg láta mig vita.

08 nóvember 2005

Flott ekki satt?

Ég er ekkert smá ánægð með nýja lúkkið, ég bara trúi þessu varla, en allavega þá á ég eftir að klára að gera smá hér og þar og svoleiðis, það þurfa líka fleirri að senda mér mynd af sér, ég nenni ekki að fara að leita að mynda f ykkur á netinu, það er svo tímafrekt.
Ég er að fara í próf á morgun og ég er sko ekki að nenna því, en ég á bara eftir 4 próf svo er bara önnin búin, þarf að vera í skólanum til 29. Nóv og svo bara jólafrí, ég fæ sko langt jólafrí þetta árið, ég þarf reyndar að gera fullt í því, ég þarf að fara að skipuleggja mig svo það verði eitthvað að þessu.
En jamm, ég verð bara að monta mig á því hvað ég á frábæran frænda, hann Biggi frændi er sko bestasti frændi minn eins og litlu krakkarnir segja, það er svo gott að vita það að maður eigi hann að.
Ég segi bara kiss kiss og knús til þín elsku frændi.
En ég er að pæla að fara að lesa smá núna og fara svo að glápa á TV og svo að sofa bara, er það bara ekki sniðugt?

Nýtt lúkk en og einu sinni

Eins og þið sjáið þá er ég komin með nýtt lúkk, ég var ekki alveg að fíla hitt lúkkið, en hvernig finnst ykkur þetta?
Ég get ekki bloggað meira, er að fara í skólan á eftir og þarf að lesa smá og sjá um Birgir áður en ég fer.
Blogga næst við tækifæri.

05 nóvember 2005

sorglegt

Ég verð bara að segja það að ég sit hérna og skrifa með tárin í augunum, ég var að skoða nokkur myndbönd og þau eru svo sorgleg.
Ég ætla að láta linkinn á 2 þeirra svo þið getið séð þetta.
Ég ætla svo að tjá mig betur um þetta þegar ég hef meiri tíma

www.ekincaglar.com/coin/flash.html
www.urgames.com/games/i-miss-you-daddy


Þið verðið að skoða þetta og endilega tjáið ykkur líka.

bull og vitleysa í mér.

Þvílík þvæla sem ég er alltaf með, ég sko gerði nýja síðu en ég var ekki alveg að fíla hana þannig að ég er bara komin hingað aftur, ætli ég haldi mér ekki bara hér.
Ég fór í gær og leigði mér DVD og hitti hana söru mína, ekkert smá gaman að hitta hanan og spjalla við hana, hún er svo mikil snúlla.
En ég fór svo bara heim og horfði á DVDið og þetta var alveg jög fín mynd, en vá hvað ég væri til að gera eitthvað af mér núna í kvöld, það er frítt inn á Traffic fyrir okkur stelpurnar og Páll Óskar er eitthvað að spila eða eitthvað, man það ekki alveg.
Ég væri sko alveg til að kíkja, hver vill fara með mér?
Ég verð líka edrú þannig að það eru ekki margir sem myndu nenna með mér.
Hey já, ég var að horfa á Idol í gær og ég ætla sko að taka þátt á næsta ári en ég væri alveg til að vera í hljómsveit, ég væri þessvegna til að þrífa bara ef ég mætti vera í kringum þessa hljómsveita fíling, en svona er þetta bara.
En ég ætla að fara að hugsa um Birgir, hann er orðinn svo þreyttur.

04 nóvember 2005

Ný síða

Ég er komin með nýja síðu, ætla að prófa hana, kannski ég færi mig bara aftur hingað. það kemur bara í ljós

03 nóvember 2005

hætta

Ég ætla að hætta með þessa síðu og fá mér einhverja aðra sem ég get haft læsta.
Læt vita seinna af nýju síðunni ef hún verður til, ég er ekkert svo viss.

02 nóvember 2005

lærdómur

ég er búin að vera svo dugleg í dag að læra, ég er alveg búin núna en ég ætla að fara yfir þetta aftur á eftir, en ég er alveg komin með ógeð af prófum, ég skil ekki hvernig þessir kennarar nenni þessu, gera próf og fara yfir prófin.
ekki myndi ég nenna þessu.
ég ætla svo að vera dugleg að fara með Birgir út að labba, kannski á morgun eða á föstudaginn því þá er ég alveg í fríi, ég væri líka alveg til að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, kíkja á stelpurnar og leyfa strákunum að leika sér eða bara eitthvað, ég nenni ekki að hangsa bara svona.
kannski ég dobli bara einvhern með mér í húsdýragarðinn eða bara eitthvað, ég sé bara til, ég er nefnilega ekki að fara í próf á mánudaginn þannig að ég er alveg til að gera eitthvað skemmtilegt, ef ég ætti bíl þá myndi ég örugglega bara rúlla til Míu systir og dobla hana að gera eitthvað með okkur, en ég ætla að fara að taka smá til og ganga frá og sollis og fara svo í skólan, blogga seinna þegar ég hef eitthvað að segja.

01 nóvember 2005

Vinir stinga mann í bakið

Ég er búin að komast að því núna að vinir þá meina ég bestu vinir geta stungið mann í bakið.
Ég vil ekki nafngreina neinn en vonðalega er það sárt þegar svo kallaður besti vinur manns stingur mann svona í bakið.
Það þíðir víst ekkert að kvarta eftir á en svona er þetta bara, ég get ekkert að þessu gert.
Ég veit þó allavega hverjir eru mínir sönnu vinir núna, sem er bara gott mál.
En ég er að pæla að hætta bara með þessa síðu eða fá mér síðu sem ég get haft læsta, ég vil ekki að hver sem er sé að lesa bloggið mitt, svo er þetta líka bara fyrir mig að skrifa hvernig mér líður, en það er auðvitað alltaf gaman þegar það er commentað hjá mér.
En ég verð að fara að að halda áfram að lesa, svo fer ég bara að sofa.
Það er sko próf á morgun og ég þarf að klára að lesa smá og smá upprifjun á morgun.

31 október 2005

hugsa um

ég er búin að vera að pæla í því að breyta lúkkinu á síðunni, ég er ekki að nenna að vera með þetta lúkk.
Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að fá mér, það er svo margt í boði.
En já, ég var í prófi áðan og mér gekk ekki vel, ég hefði getað grátið, þetta var svo ömurlegt hjá mér, en ég verð bara að vera duglegri, þetta gengur sko ekki.
En allaveg þá er ég að deyja, ég væri svo til að geta æft líkamsrækt, það er bara svo erfitt með litla kríli, ég reyni nú að redda þessu, ég vil bara ekki láta mömmu alltaf passa, hún á sér nú alveg líf, ég verð bara að bíða þangað til Birgir verður eldri en á meðan fitna ég og ég á eftir að enda í þáttunum you are what you eat en ég vil ekki verða svoleiðis, ég redda þessu bara, eins og öllu öðru.
Ég fór og gerði leyndóið áðan, það var mjög fínt, en bara svo þið vitið er ég ekki alveg tilbúin til að segja þetta strax, en ég geri það þegar ég er tilbúin. Ég fékk líka mjög góðar fréttir áðan, en því miður get ég ekki skrifað þær hér, viss manneskja gæti verið að lesa þetta, en við mæðgunar erum svo feignar yfir þessum góðu fréttum.
Ef þið vissuð hvað ég væria ð meina mynduð þið vera líka ánægð fyrir okkar hönd (hendur) :op
En ég ætla núna að fara að hoppa upp í rúm að lesa og svo bara að skella sér að sofa, ég hef ekkert annað að gera, þarf reyndar að vera smá dugleg á morgun þannig að það er abra fínt að fara snemma að sofa.

29 október 2005

boring

þetta er búinn að vera svo boring dagur, ekkert búin að gera né fara, er að deyja úr þreytu og er sko ekkert að nenna að læra, ég er samt búin að læra fullt en ekki nóg, ætla að læra á eftir eitthvað smá og svo líka á morgun, væri samt svo til að vera bara að kúra upp í rúmi og sollis, en ég nenni ekki að blogga meira.

28 október 2005

brrrrrrrrr KALT úti

Úff hvað það er kalt úti, ég þurfti að skreppa áðan að gera hitt og þetta og ég var að deyja úr kulda, ég var nú hálf vond mamma að fara út með Birgir í þessu veðri, en ég pakkaði honum inn í teppi og svo var hann í nýja gallanum þannig að honum var ekki kalt, ég er svo fegin að hafa keypt gallann áður en þetta vibba veður kom.
Mía systir kom og ætlar að vera hjá okkur í nótt, það er svo gott að fá hana, verst að hún geti ekki verið hérna oftar, en maður verður bara að bíða þangað til hún er búina með skólann.
Mía gat ekki tekið Óskar með þannig að hann er bara í webcamerunni hérna, ég er að passa hann í gegnum tölvuna, ekki sniðugt ?
Ég ætlaði í afmæli hjá Ingunni Emblu systur Hönnu vinkonu en ég treysti mér abra ekki út í þetta veður með Birgir, það er búið að vesna svo síðan fyrr í dag.
En ég fer bara við tækifæri, er með pakka og allt, vona að hún verði ánægð, annars skilar hún þessu bara.
En ja, mamma er að fara út til USA í des og ég ætla sko að láta hana kaupa fullt á Birgir og eitthvað á mig.
Ohh ég nenni ekki að læra, ég er komin með glósurnar og spurningarnar en ég nenni bara ekki að læra, ég er bara eingan vegin í stuði til þess, en ég mun læra á morgun og sunnudag, ég þarf að gera smá leyndó á mánudag þannig að ég hef mjög líklega engan tíma til að læra þá, en ég ætla að fara að hugsa um Birgir og kannski læra, en ég blogga seinna.

26 október 2005

Vetrarfrí :o)

Jæja, það er komið vetrarfrí, guð hvað ég er fegin að þurfa ekki að fara í skólan á morgun, en ég ætla sko að vera rosa dugleg á morgun, þarf að fara í bankann að borga skuldir og sollis, ekkert háar en samt skuldir :o/
Ég var sko super dugleg áðan, ég fór að lyfta :op
En bara í smá stuns, ég hafði ekki tíma í meira, mamma var sko að elda og með Birgir, en ég ætla að reyna að vera mjög dugleg að lyfta núna, ég ætla mér að vera sko súper kroppur fyrir jól, verð sko að missa helst 3-4 kg í viðbót og fá vöðva og sollis, er það ekki mega flott?
Ég þarf samt sko að vera dugleg að læra, er að fara í próf á mánudag og ég er sko ekkert að skilja efnið neitt vel, ætla að reyna að lesa eitthvað yfir þetta á morgun áður en ég fer út að labba og sollis, en jamm og já, ég er að gera svo margt á meðan ég er að skrifa þetta blogg, ég er að bæta inn myndum á síðuna hans Birgis og skoða önnur blogg en ég verð að hætta núna, ætla líka bráðum upp í rúm að sofa :o)

Argerý gargerý

úff hvað ég er orðin nett pirruð, ég er búin að vera að gera verkefni fyrir uppeldisfræðina og það er sko ekkert að ganga, ég er búin að reyna að skrifa á disk en NEI það vill ekki virka, það er sko ekkert að virka hjá mer í dag, AAAAAARRRRRGGGGGG. en svona er þetta bara, en ég verð að halda áfram, blogga seinna

25 október 2005

jamm og já

Núna get ég bloggað og þið lesið, en allavega fór ég í gær í kröfugönguna, það var bara mjög gaman, ég á eftir að setja inn myndir í myndaalbúmið þannig að þið getið skoðað, það var svo mikið að konum þarna og smá af körlum, þetta var svo GAMAN, ég trúi því varla að það hafi mætt svona mikið af fólki, það var svo mikil umferðateppa á leiðinni að við komumst varla áfram, Birgir var svo stilltur og hafði svo gaman af þessu, en ég ætla svo að fara aftur ef það verður önnur ganga eftir X mörg ár, en allavega þá er ég bara heima og er að fara að gera mig til, ég er samt ekkert að nenna að fara í skólan á eftir, væri miklu frekar til að vera bara heima og hafa það næs, en ég verð víst að mennta mig, ég ætla ekki að vera einhver aumingi, ég ætla að standa mig í skólanum, en já í hinu blogginu var ég að biðja ykkur að senda mér mynd af ykkur svo ég geti gert smá verkefni, þetta verður sko mjög flott, ég get lofað ykkur því, en ekki vera feimin að senda mér mynd af ykkur.
En ég ætla að halda áfram svo ég geti farið í skólan á eftir, ég þarf að gera fullt, en ég lofa að blogga sem fyrst :op

24 október 2005

virkar þetta?

ég er bara að athuga hvort þetta virki, látið mig vita ef það gerir það :o)

22 október 2005

DJAMM

Ég er hérna heima hjá Lilju að gera mig til fyrir DJAMMI�, bara gaman :o)
Við förum samt bráðum að fara út, endilega kíkið á DJAMMI�, það verður sko stuð hjá okkur gellunum :o)
En ég nenni ekki að blogga meira, c ya :op

21 október 2005

Hey þú

hey þú, já þú, ef þú ert að lesa þetta blogg án þess að commenta hjá mér þá ert þú í vondum málum, nei nei ég segi bara svona, en ég væri alveg til ef þú myndir láta mig vita ef þig vantaði inn á hjá mér í hlekkina, er að reyna að safna sko, DJÓK, en það væri samt alveg fínt ef þú segir mér frá þér.
En allavega þá er ég bara heima að hangsa núna, hef sko ekkert að gera, Birgir er sofnaður og ég er bara við það að fara að sofa líka, nenni ekki að halda mér vakandi fyrir ekki neitt, en ég er allavega að fara í RVK á morgun með Aldísi, Sævari og Birgi, kíkja á föt og jólagjafir og sollis, svo fékk ég næturpassa hjá mömmu, ég fæ að kíkja út með Lilju annað kvöld, það verður sko stuð á okkur gellunum, en hey já, ég var í klippingu áðan og litun, mjög sátt, Lilja gerði mig svona flotta, en þið verðið bara að koma á djammið til að sja nýja lúkkið á mér.
Ég var að pæla í því um daginn að tala við Óla sem er með þáttinn SPLASH og láta hann taka viðtal við mig, hann er nefnilega með eitthvað "horn" í þættinum sem hann talar við piparsveina og piparjónkur, en ég held að það sé bara nördalegt, hvað finnst ykkur ????
Ég mun bara gera mig að fíbli ef ég myndi láta sjá mig þarna, þetta var líka bara smá hugdetta hjá mér, ekkert meira en það.
En já ég ætla að reyna að muna eftir myndavélinni á morgun og taka hana með á djammið, svo mun ég setja myndir inn á myndasíðuan mína, ekki töff???
En sendið mér myndir af ykkur, ég er að gera smá verkefni, vantar að fá myndir af ykkur sem eruð að lesa bloggið mitt, þetta verður sko mjög flott ég get lofað ykkur því, þannig að drífið ykkur í því að senda mér mynd, þið ættuð að vita e-mailið mitt annars spyrjið þið bara í commenntunum, er það ekki ???

18 október 2005

Er eg?????

Er eg ad reyna ad vera einhver onnur en eg er?
Eg bara veit thad ekki.
Eg er buin ad vera ad paela i thessu i nokkurn tima, a eg bara ad lata eins og faviti eda a eg ad halda afram a thessari braut sem eg er a?
Eg veit ekkert hvad eg er ad gera, eg er svo strong vid sjalfa mig, eg leyfi mer ekki neitt, eg laet aldrei eins og vinir minir, sem eru alltaf a djamminu, eg veit alveg ad eg er ordin mamma og tha breytist lifid mjog mikid en thad er ekki stein dautt, eg get alveg slett ur klaufunum og gert thad sem eg vil, en er thad sem eg vil, eg bara veit thad ekki, thvad eru svo margar spurningar sem koma upp i hausnum a mer, eg geri ekkert annad en ad hugsa.
Eg veit ad eg er ekki buin ad finna tha manneskju sem eg er i dag, hun er einvherstadar i felum en eg nalgast hana mjog hratt.
Eg aetla bara ad bida og sja, eg veit ad eg a eftir ad finna mig og vera hamingjusom.

breyta og b?ta

Eg er alltaf ad breyta og baeta siduna, eg tharf ad skrifa faranlega svo thad komi ekki ? merki i hvert skipti sem eg nota islenska stafi, en endilega skodid siduna og commenntid hja mer, en eg blogga seinna.

17 október 2005

Helgin

Ég fór út me? Lilju á laugardagskvöldinu, ?a? var alveg fínt, hittum fullt af fólki, hitti gamlan bekkjarfélaga, svo voru nokkrir s?tir strákar ?arna, en ég fór ekkert a? höstla, ég ?tla bara a? bí?a eftir ?ví a? sá sanni komi til mín, ?a? er reyndar fínt a? vera svo einhleip.
Ég ger?i ekkert af mér, enda var ég edrú, en ég vona a? ég geti fari? brá?um á alvöru djamm, ég stefni a? ?ví á afm?linu mínu, ?á ?tla ég a? reyna a? fá mér í glas, en kannski ekki, hver veit.
ég er a? fara a? l?ra undir próf núna, ?a? er alltaf próf, ekki gaman, en ég er a? drepast í maganum, EKKI GAMAN, en svona er ?etta bara, en nennir einhver a? commenta hjá mér svo ég viti ?a? ?etta virki, ég er ekki viss um ?a? commentin vinki hjá mér.

15 október 2005

stundum

ég fór me? mömmu og Birgi upp á carnival á?an, ?a? var alveg fínt en ég á bara erfitt me? a? hitta og horfa á sumt fólk, ég veit ekki afhverju en svona er ég bara, ég get ekki alltaf láti? eins og allt sé í lagi, ég ver? bara a? fá a? vera í vondu skapi ef ég er í vondu skapi, ég get ekki gert öllum til ge?s, ekki taka ?ví illa ef ég heilsa?i ykkur ekki upp á velli á?an e?a á rúntinum e?a eitthva?, ég bara get ekkert a? ?essu gert, ég heilsa ykkur ?egar ég er tilbúin, en hvernig finnst ykkur nýja lúkki? á sí?unni?

14 október 2005

aftur á ný

ég ákva? a? byrja upp á nýtt, ?a? var viss kafli a? byrja hjá mér og ég ?arf bara a? tjá mig, ég ?tla a? reyna a? halda ?essu gangandi en ég sé bara til, en vonadi skilji? ?i? alveg hvernig ?essi sí?a virkar.