29 júlí 2006

***

Mamma var víst að suða eitthvað um smá blogg þannig að ég ætla að blogga einhverja steypu hérna.
En allavega þá fer skólinn að byrja, er orðin svolítið spennt, verður gaman að hitta vinina og fara að læra og svoleiðis.
Það slæma við það er að ég þarf að taka 18 einingar til að fá námsstyrkinn sem ég ætla að fá.
18 einingar er svolítið mikið en ég veit að ég get þetta alveg.
Verður bara erfitt og ég verð mjög mikið í skólanum, ég mun eflaust vera í skólanum frá 08:00-12:00, svo 15:00-18:00 eða 18:00- 22:00.
Kemur bara allt ljós þegar skólinn byrjar.
Ég verð bara að skipuleggja mig vel og læra fram eftir nóttu ef þess þarf.
Ég þarf á þessum einingum að halda svo ég eigi meiri möguleika til þess að fara í lögregluna.

Ég held að ég plani líf mitt of mikið, ég er að stefna að því að fara í lögregluna, mennta mig meira, flytja til útlanda og fara í listaskóla þar (eftir X mörg ár) mætti samt vera sem fyrst.
En eins og þeir sem þekkja mig best vita það að ég mun gera allt sem er best fyrir son minn, ég myndi flytja til grænlands ef ég þyrfti þess útaf einhverjum ástæðum.

En já sonur minn er svo duglegur og klár. Alltaf að læra eitthvað nýtt.
Ég er líka búin að vera ekkert smá dugleg að uppfæra síðuna hans, alltaf einhverjar nýjar myndir og ég á meira að segja eftir að setja inn fullt af nýjum myndum, svo er ég líka að reyna að vera dugleg að skrifa það sem hann er búinn að vera að gera og hvað hann er farinn að segja, það koma svo mörg ný orð á hverjum degi og öll svo skemmtileg.
En allavega þá ætla ég að fara að koma mér upp í rúm eða bara að fara að gera eitthvað hérna heima, ef til vill bara mála eða eitthvað.

23 júlí 2006

Vá hvað ég er ekkert að standa mig með þetta blogg.

  • Æji já, svona er bara lífið, ég er búin að vera að bralla frekar mikið upp á síðkastið, búin að vera að redda hinu og þessu svo ég komist í skólann, Takk mamma.
  • Skólinn að fara að byrja, jeijjjj, ekkert smá fegin og spennt, verður sko bara gaman.
  • Hætt við að fara til Eyja, ætla bara að slaka á eða gera eitthvað með Lilju, kemur bara allt í ljós.
  • Búin að fara upp í bústað, bara gaman, var að slá og svo fékk ég að keyra bílinn hans Bigga frænda, vá litli kagginn sem hann á, ég á sko pottþétt eftir að bjóðast til að vera driver fyrir hann ef ég fæ að keyra bílinn hans, ég held sko að ég sé að fá bíladelluna aftur eftir að hafa keyrt bílinn hans.
  • Búin að fara út á róló oft og mörgum sinnum.
  • Gert heiðarlega tilraun til að þrífa bílinn minn en það heppnaðist ekki.
  • Slá garðinn, og upp í bústað hjá ömmu og afa.
  • Taka myndir og setja á netið.
  • Fara út að labba.
  • Fara snemma að sofa en ekki viljandi, bara sofnað við að svæfa.


Vá hvað þetta var tilgangslaust blogg og mjög leiðinlegt.
Held að ég taki mér smá pásu svo ég geti notið þess að gera síðuna hjá Herra Olsen super flotta

13 júlí 2006

Klakinn góði...

Þá er ég komin heim á klakann góða, ekkert smá gott að vera komin heim þótt það sé mjög skrítið.
Sakna samt smá að vera ekki á Spáni en samt mjög fegin, komst líka að því að það er stundum mjög þægilegt að fá rigingu og smá rok.
En ég nenni ekki að skrifa ferðasöguna núna, hún kemur strax og ég hef tíma til þess að skrifa.
En þetta var allavega yndislegt og alveg frábært að fara með son minn út og leyfa honum að upplifa svona mannlíf.
En ég fer líka að setja inn myndir bæði á síðuna mína og litla kúts Olsen.

04 júlí 2006

Her a spani...

Viiiiii hvad thad er gaman herna, mikill hiti og uper duper sol.
erum buin ad gera fullt en eg aetla ad blogga um thad thegar eg kem heim.
vildi bara lata vita af mer.
vonandi skemmtid thid ykkur vel a klakanum.
bleeeeeeeeessssssssss