Árshátíð, splash og föstudagurinn, laugardagurinn og sunnudagurinn.
Ætli það sé ekki best að blogga smá um helgina.
En allavega þá fór ég á árshátíð Björgunarsveitar Suðurnes á föstudaginn, það var nú þó nokkuð gaman þar, en fyndna er að ég gat ekki borðað neitt nema gularbaunir, rauðkál, brauð, salat og brúnaðar kartöflur.Hér er mynd af matnum mínum :op
En eins og flestir ef ekki allir vita þá drekk ég ekki, þannig að ég fór bara á barinn og bað um sprite en barþjónninn gaf mér sprite með smá kirsuberjasafa og einu kirsuberi sem var bara gott, svo smakkaði ég reyndar nokkra óáfenga drykki sem voru flesst allir mjög góðir :o)
Ég og Hanna fengum bara vinnu á Ránni og áttum að mæta á mánudaginn í smá spjall við eigandann en ég fór ekki því ég er ekki með barnapíu á þeim tíma sem ég gæti unnið þarna.
Svo fórum við Hanna og Björgvin bara á hina staðina og hittum Eika og Grétar, það var mjög gaman með þeim. Tekið smá ballskák eða hvað sem íslenska orðið er, ég og Hanna feitt töpuðum fyrir strákunum en ég get allavega sagt að ég hitti fleirri kúlum ofan í en Hanna og hún þurfti meira að segja hjá með þær sem hún hitti :op
Svo á laugardaginn fór ég á duus í smá stund því Gerða var að halda upp á afmælið sitt, svo seinna um kvöldið fór ég heim til hennar og svo á Splashið, það var bara nokkuð gaman, sumir mjög drukknir og taka þeir það bara til sín :op
En já ég beilaði víst á Bjarna á dansgólfinu þannig að hann á bara inni dans hjá okkur stelpunum seinna :op
Er samt ekkert viss að hann vilji vera í kringum okkur þegar við erum að dansa því við tókum bara gólfið og áttum það :o)
Ég hitti alveg fullt af fólki og mjög gaman að hitta flesta ef ekki alla :o)
Takk mamma og Mía fyrir að passa :o*
En já á föstudaginn fór ég í afmælið til Óla á Paddys, það var mjög gaman þarna, ég var bara með stelpunum og svo voru þær allar að fara þannig að ég var bara með Eika sem er vinur Björgvins sem er kærasti Hönnu vinkonu, SKILURU?
Við kíktum eitthvað á hina staðina en ekkert stuð þar, tókum reyndar smá pool á Traffic og svo bara aftur á Paddys, Hanna og þau komu svo og við vorum bara eitthvað með þeim, svo fór ég bara heim, enda orðin svolítið þreytt og klukkan orðin svolítið margt.
En á laugardeginum var ég bara heima að klápa kassann og dvd og var hún Solla hjá mér til að verða 1 en eftir að hún fór þá ákvað ég að skella mér bara í háttinn og kúra með litla kallinum.
Svo á sunnudaginn þá var ég bara heima, fór að rúnta um daginn og lilja kíkti með, við fórum út að hjóla með litla eða hann hjólaði og flotta sumarhjólinu sínu og svo var bara haldið heim, en eftir að ég var búin að svæfa prinsinn þá fór ég á rúntinn með Eika og vorum við bara eitthvað að spjalla.
En út í aðra sálma, þá er ég ekkert smá spennt fyrir sumrinu, vera með fjölskyldu minni og njóta tímans með syni mínum.
Fara til útlanda og skemmta mér, ferðast ef til vill eitthvað um landið og lifa lífinu lifandi og á heilbrigðan hátt.
Njóta þess að eiga svona góða að og kannski dobla hann afa að hjálpa mér að bóna bílinn, veit að hann er alveg til í það.
Svo er líka markmiðið í sumar að hugsa um líkamann og fara í einkaþjálfun svo maður verði komin í gott form fyrir Janúar, því þá verður aðal stuðið, kannski ekki beint gaman að keyra brautina á hverjum degi en það verður alveg þess virði, svo verður maður líka að fara að klára stútentinn og svo bara skella sér í háskólann, það þýðir ekkert að hanga bara á rassinum og vera bara einhver aumingi, það ætla ég mér sko ekki, ég stefni hátt og ætla mér að komast þangað, þótt það muni taka langan tíma.
En verið svo væn að muna að commenta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli