15 maí 2006

Lífið

Æji ég veit ekkert afhverju ég hafði þennan tiltil hér fyrir ofan, vantaði bara eitthvað og datt þetta bara í hug.

En já ég er búin að vera ekkert smá dugleg að hreyfa mig, búin að fara í sund með litla, út að labba með litla, leyfa honum að hjóla og ég að ýta honum.
En ég ætla mér að vera duglegri, fara að synda og í ræktina 3 sinnum í viku og út að labba á hverjum degi eða bara hjóla.

En vá ég er að fatta það að ég tala svolítið mikið um ræktina í hverju bloggi og hér með er ég hætt því þangað til að þetta verður að alvöru.

En já ég er þvílíkt búin að vera að plana næstu mánuði og eiginlega bara næsta ár.
Ég vona svo innilega að ég komist í lögregluskólann, ég þarf að fara að sækja um, inntökuprófið er í endaðan ágúst og ef ég kemst inn þá byrjar skólinn í janúar.
Úff hvað ég er samt hálf kvíðin, en samt spennt.

En já ég hef ekekrt að segja, er bara að pæla að fara upp í rúm og fara snemma að sofa.
Ná smá orku fyrir morgun daginn því þá verður smá stuð á mér og litla :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli