27 ágúst 2006

Margt og mikið

Jæja, það er búið að gerast alveg fullt hjá mér, er búin að vera að sparsla, mála og alles.
Alveg ágætt en samt svona smá tímafrekt.
Búin að vera að ***** um helgina, fór svo með Aldísi í gær á rúntinn og bjölluðum í Möttu og hittum hana á Paddys, ekki leiðinlegt að hitta hana :o)
Vorum að rifja upp góðar stundir síðan við unnum saman í Nesprýði sumarið 2004.
Ég og Aldís fórum svo að sækja Skúla á bílnum hans Bigga frænda, netti kaggninn ( bíllinn sko :op )
Skúli alveg að á fullu að hringja í alla og láta vita að hann væri á lífi, voru víst 40 og eitthvað miss calls á símanum hans, hann lagði sig víst áður en hann fór á djammið.
Rúntuðum svo eitthvað smá og fórum svo bara heim.
En ég er búin að ákveða nýja móttóið mitt, það er maður lifir bara einu sinni, allt í lagi að flippa smá :o)

En svo er það bara skóli á morgun, þarf reyndar að skreppa í smá stund úr tíma með einhverja pappíra en það er ekkert mál.
Svo er það bara fundur annað kvöld og slaka á.
En já ég fer í kvöldskóla, fæ reyndar að vita það 100% í kvöld, verður einhver fundur eða eitthvað sem segir hvaða fög verða kennd.
Vona bara að mitt verði kennt, mamma og ég ætlum nefnilega að skella okkur saman í eitt fag :o)
Alveg súper duglegar :op
En ég ætla að fara að læra, þarf víst að skrifa einhverja ræðu fyrir morgunn daginn :o$

23 ágúst 2006

Afsakið hlé

Afsakið hlé vegna bilana.
Nei nei ég segi bara svona, tölvan er reyndar búin að vera biluð en er komin í lag núna en fer í viðgerð eftir nokkra daga aftur, vona bara að hún komi strax aftur því það er mjög erfitt að lifa án tölvunnar, ég komst að því þegar hún var í viðgerð.
En allavega er ég byrjuð í skólanum og svaka gaman, ég tek 12 einingar en gætu orðið 15 en það kemur í ljós eftir helgi.
Er búin að vera á fullu í leyndóinu mínu (þeir vita hvað það er sem þekkja mig allra best) en ég þarf að fara að hægja aðeins á mér svo ég geti stundað námið nánast 100 %
Mamma var svo mikið æði að hún bjargaði mér alveg, ég hefði ekki getað farið í skólann fyrr en eftir ca 2 vikur ef mamma hefði ekki bjargað mér, hún tók sér frí til að vera með grallarann þangað til hann byrjar sjálfur í skóla, ég er ekki að trúa því að litli engillinn minn sé að fara að byrja á leikskóla, þetta er bara ekki satt, hann er enn svo lítill.
En hann hefur bara gott að þessu, fá að umgangast börn og leika sér, en ég vona bara að muni hlaupa í fangið á mér í hvert skipti sem ég kem og sæki hann, en það kemur bara í ljós.
Takk mamma fyrir alla hjálpina :o*
En já ég hef gert margt og mikið núna síðustu daga en er ekkert að nenna að tjá mig um það.

Mía systir er bara best, hún reyndar bjargaði mér alveg, kiss kiss og knús elsku besta systir fyrir allt (þú veist hvað ég meina)

En já ég var að leita eitthvað hérna í tölvunni minni þegar ég fann fullt af æðislegum myndum, ég mundi ekki einu sinni eftir því að ég ætti allar þessar myndir og svo fór ég að skoða myndir af litla síðan hann var ný fæddur og vá hvað hann var mikið BABY, en samt er ekki einu sinni 2 ár síðan, en þvílíka breytingin á þessum ca 2 árum. Ég trúði þessu varla.

Ég hef mikið verið að pæla í því að fara að lita á mér hárið og ég veit ekki hvort ég eigi að hafa sama lit, dökkbrúnt eða næstum því svart.
Endilega segið mér hvað ykkur finnst :o)

Vonandi verður ekki svona löng bið í næsta blogg en munið að ég bít ekki þannig að ég vona að þið eigið eftir að commenta eitthvað smá :o)

01 ágúst 2006

Elsku Sævar

Sævar vinur minn lennti í alvarlegu umferparslysi í gær rétt fyrir utan Sandgerði.
Bíllinn hans er gjörsamlega ónýtur, það er ekki hægt að sjá einu sinni að þetta sé bílinn hans, en Sævar liggur núna á gjörgæslu og er að fara í aðgerð í dag.
Hann fór frekar illa út úr þessu öllu saman en sem betur fer er hann á lífi.
Systir hans hún Sólveig sem er einnig vinkona min hringdi í mig í morgun og lét mig vita.
Ég vil bara láta fjölskyldu hans og auðvitað hann líka vita að ég hugsa til þeirra og vona að Sævar fái að koma sem fyrst heim svo maður geti kíkt á hann.
Fréttin er á VF.is
og hér eru myndir af bílnum


Eins og þið sjáið þá er bíllinn gjörónýtur