28 febrúar 2008

rafmagn

Sit hér í tíma að fylgjast með... en í dag var allt rafmagnslaus, dýrka þegar það kemur fyrir...
var reyndar uppí vinnu hjá mömmu þegar það kom fyrir en fór heim og rafmagnið var ekki komið á þegar ég kom þangað. Rafmagnið hefði samt frekar mátt fara af í kvöld því þá hefði ég afsökun að hafa allt rómó hjá mér, með kertaljósum hehe...

En ég var að tala við gamla yfirmanninn minn og þau uppí vinnu vilja endilega fá mig aftur í sumar, er mjög mikið að pæla í því að fara þangað aftur...Alveg æðislegur staður til að vinna á...

En ég sé bara til hvað ég geri... býst samt við því að fara þangað aftur... var aldrei leiðinlegt þarna :op hehe

En hvað ætlið þið að gera af ykkur um helgina?
Það verður bara kósý helgi hjá mér með námsbókunum mínum ;o)

18 febrúar 2008

Hvernig fara ítalar að þessu?

ég fór að velta því fyrir mér áðan þegar ég var að elda hvernig eldhúsið hjá ítölum lýtur út...
Var nefnilega að elda tómat pasta sósu og það komu þvílíkar slettur hér og þar á eldavelina og eldhúsbekkinn við hliðiná...
Ég allavega öfunda ekki þau að þurfa að þrífa þetta á hverjum degi ( geri ráð fyrir að það sé alltaf eitthvað tómat gúmmilaði hjá þeim hehe)

Eldavélin mín varð bara rauð við smá skvettur á nokkrum sek... úff hvað ég er fegin að ég elda þetta ekki oft, en þetta var samt mjög góður matur...

En hvað er samt í gangi, það eru allavega nokkrir sem lesa bloggið mitt en kvitta aldrei :o( frekar fúl... nei nei þetta er allt í lagi...

En ég verð víst að halda áfram að læra, alltof mikið að gera hjá mér :o(

17 febrúar 2008

gullið mitt

Loksins er mín þá búin að breyta útlitinu á síðunni hjá guttanum, er mjög sátt við það, setti líka nýtt lykilorð þannig að þið verðið bara að biðja um það ;o)
hér er allavega síðan www.olsen.barnaland.is
endilega kíkið á síðuna ;o)
En já, ég ætlaði bara að láta vita að ég væri á lífi, ætla líka að halda áfram að læra, hef varla gert neitt annað en lært þessa helgi :oS svaka stuð hehe

07 febrúar 2008

SNJÓR!!!!!!!!

Snæfinnur snjókall... nei nei
Vá það er allt á kafi hérna hjá mér, ekki einu sinni hægt að opna svalahurðina.
Ég og guttinn minn vorum bara heima í dag að hafa það notalegt, var enginn skóli hjá mér í dag, verður kannski enginn á morgun en það kemur bara í ljós, efast um að ég komi bílnum út úr bílastæðinu :o(
En þetta er alveg fín, hefði samt ekkert á móti því að komast smá út, bara í göngutúr eða eitthvað, en ég fer ekkert með guttan meðan þetta rok er...
Í morgun sá ég ekki einu sinni út á götu né bílinn minn á bílastæðinu, það var bara allt hvítt...
Það er líka kominn um metershár skafl fyrir utan hjá mér.
Get nú samt alveg viðurkennt það að þetta er frekar kósý sko :op hehe

En ég vona svo innilega að veðrið verði eitthvað skárra um helgina, langar svo að gera eitthvað af mér ;o)
Átti að fara í afmæli en það verður víst ekki :o(
Fékk líka ekkert skemmtilegar fréttir í morgun, en svona er þetta bara, maður lítur bara á björtu hliðarnar ;o)
Það er alltaf einhver ástæða fyrir öllu.

En vá hvað ég á fallegt og bara æðislegt barn, hann bærðir mig á hverjum degi, eiginlega bara á hverri sekundu. Hann kemur alltaf með svo skemmtileg gullkorn, ég gæti verið búin að skrifa heila bók bara um það sem hann segir :op

En hvað ætlið þið að gera um helgina? ;o)

05 febrúar 2008

ÞVER!!!

Vá hvað sumir einstaklingar geta verið ÞVERIR, það er ekki einu sinni hægt að segja sitt álit á málinu eða tjá sig aðeins, ég get alveg verið þver en er það ekki nema ég hafi rétt fyrir mér, en þessir aðilar eða eiginlega þessi aðili er sá ÞVERASTI sem ég veit um, vá hvað ég hefði getað gargað á aðilann.

En nóg um það. Ekki alveg þess virði að vera að blogga um þennan aðila, ef ég á að segja satt.

En já, ég er bara í skólanum, alveg nóg að gera, gengur bara ágætlega, mætti ganga betur en þetta er bara mun meiri vinna en fyrir áramót.
Svo er ég að pæla í því hvað ég eigi að gera í sumar, hvort ég eigi að fara að vinna aftur í gömlu vinnunni eða ekki.
Ætla aðeins og hugsa þetta.
Veit allavega það að ég ætla mér að fara út í sumar eða allavega áður en skólinn byrjar aftur, það er bókað mál.

Svo verður stuð á kellu um helgina, eina er að ég á engin föt til að fara í :o(
Ef einhver vill vera svo góð og lána mér þá væri það frábært, hef ekki efni á því að kaupa mér, þótt svo ég sé búin að finna geðveikan bol sem ég væri alveg til í en NEI ég á ekki pening :o(
En það er ekki heimsendir hehe.

Ætla mér að vera dugleg að læra núna, kem með eitthvað djúsi blogg eftir helgi nema ég hafi eitthvað virkilega merkilegt að segja þá kem ég með eitthvað fyrir/um helgina ;o)