SPLASH
Ég er sko nokkuð viss um að þetta blogg eigi eftir að vera mjög mjög langt.
Sko til að byrja með þá var Íris Hrönn svo mikið æði að hún litaði á mér hárið, það er sko ekkert smá flott, takk æðislega Íris mín, ég verð reyndar að þakka Aldísi líka því hún gaf mér litinn, takk Aldís :o*
Svo er það sjálft kvöldið, ég byrjaði á því að komast alla leið niður á hringtorgið hjá Duus þegar síminn minn hringir, á síman stóð, heima, ég var bara NEI, ekki er litli vaknaður en svo var víst, hann hafði vaknað strax og ég fór út, en allt í lagi, ég fór bara heim og svæfði hann, svo fór ég bara aftur út, ég náði í Bigga frænda og skutlaði honum til Gunnhildar og Bjössa, Gunnhildur átti víst afmæli eða eitthvað, en allavega þá tek ég einn rúnt og fer svo bara heim til Írisar, þar eru Íris, Gunnar, Inga og vinur Ingu og svo auðvitað systkini Írisar.
Íris er eitthvað að gear Ingu til og sjalfa sig og svo skellum við okkur bara öll í pödduna mína (bílinn) og brunum niður á Traffic.
Það var kominn alveg slatti af fólki þarna og allir í svaka stuði enda frítt áfengi, en hún Inga komst ekki inn, ég reyndi að tala við alla dyraverðina og það var bara ekki séns.
Ég hitti alveg fullt af fólki og svo voru sumir orðnir svolítið ölvaðir þegar leið á kvöldið
Ég var aðvitað edrú og alveg sátt með það, en það var bara fyndið hvað fólk var að hamstra á áfenginu, sumir stungu flöskum í töskurnar og svo var bara náð í enn meira áfengi og því bara helt í sig, ég fékk mér bara vatnsglas :op
Svo er hringt í mig og það er mamma, litli kútur var vaknaður aftur, ég fór bara heim og svæfði hann og ég var ekkert alveg viss hvort ég ætti að fara aftur út því það var svo gott að kúra með honum, en ég fór aftur þegar hann sofnaði.
Íris og Gunnar voru akkurat að fara þegar ég var að koma þannig að ég ákvað bara að taka einn hring og athuga hvort ég fyndi ekki eihvern sem ég þekkti þarna inni og myndi nenna að hanga með.
Ég fann hana Ingu mína, hún var ekkert smá mikil skvís, við fórum á dasgólfið og tókum nokkra hringi til að athuga hvort við mynum sjá einhverja, Inga alltaf að heilsa hinum og þessum.
Myndir voru teknar og frekar margar ef ég á að segja satt.
Ég fékk eina pikkupp línu sem var frekar leim. Gaurinn var svona lala ekkert meira en það.
En ég hitti alveg fullt af fólki þarna og þvílíkt mikið að krökkum sem voru með mér í bekk einu sinni. Skrítið hvað sumir breytast ekkert.
En allaveg þá var þetta party alveg hið ágætasta, ég bjóst við miklu fleirra fólki og uppákomum en ég skemmti mér allavega vel og það er það sem skiptir máli :o)