27 apríl 2006

Nýtt útlit

Jæja ég er bara komin með geðveika klippingu og ég er sko alveg að fíla mig í tætlur með hana :o)
Svo er það bara árshátíð á morgun og ég í geðveikum kjól, flottum skóm og með geðveikt hár, reynið að toppa það :op

En allavega þá er ég búin að vera ýkt dugleg úti að labba og ætla mér að vera enn duglegri.
Skella mér svo í einkaþjálfun svo ég verði nú komin með geggt þol fyrir lögguna :o)
Ætla mér að vera dugleg að fara í ljós og ræktina og ef ekki bara sund þegar ég er orðin algjör kroppalína :o) Markmiðið er allavega að vera með super magavöðva. helst bara allan pakkan ef ég get það :op

En já ég er búin í skólanum, þarf ekki að mæta í fleirri tíma en ég á eftir að skila verkefnum sem ég geri á Þriðjudaginn og svo er það bara skóli í endaðan mai :o/ til endaðan júli :oD og þá er það sumarfrí JJJJEEEESSSS.
En já ég ætla að halda áfram að hugsa um nammi og gos því ég ætla ekki að leyfa mér svoleiðis fyrr en á laugardögum, ef ég leyfi mér það þá. Hver veit, kannski ég hætti bara að borða nammi ALVEG :op

25 apríl 2006


The match maker master

Díses maður getur ekki átt neitt einkalíf, það er bara reynt að grafa undir öllu hjá manni og njósnað.
Ok ég er ekkert reið en kommon nei djók þetta er bara fyndið, mamma og Badda þið takið þetta til ykkar :op

En allavega þá er hún Lilja mín alveg frábær, bara með nefið ofan í öllu sem ég geri þessa dagana, ég er búin að heyra þessi orð mjög oft síðustu daga, OG HVAÐ eða OKKUR eins og hún skrifar það en annars er þetta Lilju-þýðing á afhverju.
Hún er mjög forvitin þessi litla snót en það er alltaf gaman af henni.
En já ég er búin að ákveða að láta Lilju bara vera match makerinn minn, skiluru?
Ég þarf ekkert að sjá um þetta og læt hana bara standa í þessu, verð bara að muna að láta mömmu ekkert vita, hún er svo forvitin eins og hún Lilja.

En já ég vildi bara skella inn smá bloggi hérna svo ég geti fengið fleirri comment, alltaf gaman að commenta er það ekki börnin góð og mamma?

23 apríl 2006

Helgin afstaðin hjá mér

Já akkurat, en ég ætla allavega að blogga smá þar sem ég er ekkert búin að vera dugleg með þessa síðu.
En allavega þá á föstudaginn þá kíkti ég aðeins út með Lilju um kvöldið, kíktum á eitthvað konukvöld hjá xD og ég vil bara taka það fram að ég styð þá ekki.
En við stoppuðum bara eitthvað stutt þar, við fengum happdrættismiða en þegar við fórum létum við mákonur Lilju fá miðana og viti menn, þær unnu klippingu og litun, ég er alveg viss að þetta hafi verið minn miði.
Við kíktum svo á rúntinn og sóttum kallinn hennar Lilju og vini hans og skutluðum þeim í partý og við héldum bara áfram að rúnta.
Kíktum svo bara stutt til strákanna og vorum að horfa á lúða þáttinn á stöð 2 en ég og Lilja erum alveg sammála með það að þáttastjórnandi þáttarins er miklu meiri lúði en lúðarnir sjálfir.
Svo í gær, laugardag þá fórum við Lilja út að labba með krílin, ég með skæruliðann minn og hún með Ásdísi Birtu, ég fór að leita mér að buxum en fann því miður engar, svo fórum við bara á Langbest og fengum okkur að borða og svo bara heim, kíktum reyndar smá á rúntinn og svo bara aftur heim.
Svo um kvöldið þá fórum við út ég og Lilja, ég fór heim til hennar og hún lagaði hárið á mér, svo kíktum við á rúntinn og svo varð hún Lilja veik þannig að ég skutlaði henni heim og hitti þá Guggu og Gestínu og var með þeim restina á kvöldinu, vorum bara á rúntinum og kíktum svo á staðina, mesta stuðið var á H.inum en gólfið þar var ógeðslegt.
Við kíktum reyndar líka í Partý hjá Elmari en Bjarni mér og stelpunum en við stoppuðum ekkert lengi, kannski svona í 2 mín eða eitthvað.
En þetta kvöld var mjög fínt.
Ég ætla bara að halda áfram að hafa það næs en ég verð að fara í sturtu og helst bara aftur í náttföt.

16 apríl 2006

Picturetrail.com/blingPicturetrail.com/blingPicturetrail.com/bling
GLEÐILEGA PÁSKA

Ég vil bara óska öllum gleðilegra páska og vona að allir verði ekki veikir við að borða of mikið af páskaeggjum

13 apríl 2006

Picturetrail.com/blingPicturetrail.com/bling
Langt síðan

Jæja, ég er ekkert að standa mig með þessa síðu, ég er líka ekkert viss um að ég nenni að halda áfram með hana, en hver veit.
Allavega þá var ég að þjóna á föstudaginn síðasta, hjá Sissa pabba Sollu vinkonu. Svo á laugardaginn þá fórum við Solla og Aron út að borða (áttu auðvitað að vera fleirri en svo var ekki) við fórum á Duus og svo þurfti ég að fara heim þegar við vorum búin að borða því Birgir neitaði að fara að sofa hjá Míu og mömmu :op
Hann vill bara mömmu sína því ég var eingastund að svæfa hann :op hehehehehehe
Við kíktum svo á rúntinn og svo fór ég bara til Bigga frænda og var eitthvað þar og svo kíkti allur hópurinn á Traffic og þar var eitthvað dansað og tjattað en svo ákvað ég bara að skella mér heim, enda var ekkert svo gaman þarna.
Á sunnudeginum fékk ég að leggja mig og það var ekkert smá NÆS, hef ekki gert það í mjög langan tíma :o)
Á mánudaginum þá þurfti ég að fara í rvk að kaupa hundamat og líka náttföt á aðaltöffarann.
Ég keypti alveg 4 náttföt, derhúfu, skyrtubol og dót handa honum. Hann verður ekkert smá flottur í sumar :o)
Svo fór ég á mömmudæmi í kirkjulundi í gær og svo í rvk með Gerðu og Evu B og krílunum okkar, kíktum bara í kringluna og svo bara heim, við ætlum að reyna að fara í sund á laugardaginn :o)
En allavega þá er ég búin að segja hvað ég er búin að vera að gera en ég lofa EKKI að blogga strax því ég er ekkert að nenna þessu.

07 apríl 2006

Picturetrail.com/blingPicturetrail.com/bling
Þetta er ég



Your Inner Pop Princess Is Kelly Clarkson



"Grew up in a small town

And when the rain would fall down

I'd just stare out my window

Dreaming of what could be"



No doubt about it, you have star quality. Might just take a while to get there.

03 apríl 2006

Helgin

Já ég get ekki sagt að ég hafi gert mikið yfir helgina annað en að vera bara heima með fjölskyldunni.
En það var nú líka bara ósköp gott.
Ég fór reyndar í Rvk á föstudaginn því ég þurfti að fara til læknis og á meðan ég var inni hjá lækninum þá var Birgir bara hjá Míu sinni og fékk hann að leika sér í bílatæki og var sko ekkert sáttur að fara fyrr en ég rétti honum pening, ekki 10 kr, ekki 500 kr heldur 6000 kr og labbaði hann beint inn í bankann sem var þarna, hann er svo klár eins og mamma sín með að fara með peninga :o)
En því miður gat hann ekki lagt þessa peninga inn því ég þurfti að kaupa lyf :o(
Svo fórum við í Kringluna og ég var að leita mér að bol fyrir peninginn sem Solla gaf mér en fann engann en ég fann allt annað og er miklu ánægðari með það en einhver bol, takk solla fyrir afmælisgjöfina :o*
Ég fór svo inní dótabúðina til að gá hvort ég fyndi ekki eitthvað sniðugt dót handa Birgi, honum vantaði nefnilega nýtt dót, ég leitaði og leitaði en fann ekkert, svo fá ég loksins svona púsl með svona tappa sem stendur út sem börinin eiga að halda í, ég er búin að gera dauðaleit af svoleiðis en hef ekki fundið neitt nema eitthvað drasl og eitthvað sem hefur verið alltof dýrt.
En ég keypti tvö púsl og svo annað sem er eins og púsl en þú hreyfir bara myndirnar í staðinn fyrir að púsla, ekkert smá sniðugt :o)
Ég fór svo í útihlíf að leita að hjálmi en fann ekki neinn sem var nógu góður, þarf bara að leita betur, svo var ferðinni haldið í Hagkaup og beint í dótadeildina og ég sé svona dót sem ég var búin að leita að því Birgir fékk frá Jónasi vini sínum dót í jólagjöf og það er hægt að bæta endalaust við það þannig að ég keypti einhvernvegin dýragað með dýrum eða eitthvað og bílabraut.
Ekkert smá flott dót :o)
Við kíktum svo í húsdýragarðinn og það var ekkert smá gaman þar, þið verðið líka bara að sjá myndirnar sem ég á eftir að setja inn af honum Birgi inn á síðuna hans.(geri það sem fyrst)
Við rúlluðum svo bara heim og ég stökk svo í Bónus og Samkaup með Unni nágranna og kallinum hennar, sem er alveg fínasti gaur btw :o)
Svo í gær fór ég bara með Sollu, Aroni og Garðari í bíó á myndina Date movie sem var helvíti fín :o)
Svo í dag var bara tjillað og haft næs