27 nóvember 2007

3 ár


Í dag eru 3 ár síðan ég varð mamma... já ég er að segja satt, sonur minn er 3 ára í dag... ég er bara ekki að trúa því að það sé svona langt síðan en samt svo stutt... því ég man svo vel eftir öllu því sem gekk á, bæði upp á fæðingardeild þegar hann var að fæðast og svo þegar hann var kominn í heiminn, þessu gullfallegi demantur sem ég á...

Ég gæti bloggað endalaust um þennan yndislega dag fyrir 3 árum, en ég vil ekki vera of væmin, þótt þetta er sá dagur sem ég mun aldrei gleyma...

26 nóvember 2007

Barnaskapur og ekkert annað...

Á laugardagsnótt átti sá sorglegi viðburður sér stað að Yello í Keflavík var lokaður...
Til að gera langa sögu stutta þá var ástæðan fyrir því að vinsælasti skemmtistaðurinn í Keflavík (Yello) var lokaður vegna þess að ekkert kalt vatn var á staðnum... eins og flestir ef ekki allir vita þá virka salerni ekki þegar kalt vatn er ekki í lagi... hvað þá gosdælur, klakavél og margt annað...

Ástæðan fyrir því að ekki var hægt að laga þetta vandamál var að inntakið fyrir kaldavatnið er staðsett í versluninni sem er á hæðinni fyrir neðan sem ber nafnið Hljómval, reynt var að ná sambandi við eigendur Hljómvals en þeir harðneituðu að koma á staðinn og hleypa viðgerðamanni Hitaveitunnar inn til að geta lagað þessa bilun, þrátt fyrir að það gæti verið allt á floti í verslunni...

Þetta tel ég vera bara hreinan barnaskap og ekkert annað... hver myndi ekki fara og athuga hvort það væri ekki allt í lagi í sinni eigin verslun þegar svona kemur uppá... ég myndi ekki vilja að eitthvað kæmi fyrir mitt eigið fyrirtæki ef ég ætti slíkt...

Margir voru mjög óánægðir yfir því að geta ekki skemmt sér á Yello þetta kvöld og skil ég það mjög vel... Enda frábær staður og alltaf gaman að fara á...

Ég hef allavega tekið þá ákvörðun að ég mun ekki versla framar við þessa verslun og hvet ég alla að hugsa sig um því svona á ekki að viðgangast...

En svo til að koma góðum fréttum á framfæri þá mun Yello vera opinn næstu helgi þannig að allir geta farið og skemmt sér konungslega við frábæra tónlist og dansað eins og brjálaðingar ;o)

25 nóvember 2007

aftur á ný

þá er ég komin aftur... hef ákveðið að blogga bara hér... nenni ekki að vera á hinum síðunum...
Kem með eitt stykki blogg þegar ég má vera að því, alltof mikið í gangi í skólanum eins og er ;o)
á líka eftir að vinna aðeins í síðunni, bæta inn hlekkjum og breyta útlitinu... þannig að síðan á örugglega eftir að vera mjög flott þegar ég get loksins unnið í henni ;op sem verður vonandi fljótlega :o)

leiðinlegt að gömlu commentin eru ekki en þau koma fljótlega, því ekki ætla ég að hafa síðuna svona útlítandi eins og hún er núna