20 nóvember 2006

Jólin að koma

Núna styttist í jólin, úff það er alveg nóg að gera hér á bæ þar sem litli á afmæli eftir viku en veislurnar verða haldnar næsta laugardag.
Svo þannig að ég og mamma eigum eftir að baka og gera allt fínt fyrir veislurnar.
Ég er bara veik heima núna en ég ætla í skólann á morgun ef ég verð eitthvað skárri.

Sólveig og Aron eignuðust gullfallegan prins á fimmtudaginn, hann er svo sætur að ég varð bara veik fyrir honum þegar ég kíkti á þau á föstudaginn, til hamingju með gullmolann Elsku Sólveig og Aron.

Svo fara þessi próf að byrja, úff það verður strembið, er smá stressuð en ég hef góðan tíma til að læra fyrir þau, sem betur fer, ég verð búin 14.des og þá verður bara slakað á eftir það.
Ég og mamma fórum í herbergið hans litla í gær og það er ekkkert smá flott núna, mikið pláss til að leika sér og rúmið alveg æði :o)
Ég er líka að pæla í því að mála einn vegg röndóttan í jólafríinu þannig að ég get dundað mér við það þegar hann er á leikskólanum :o)

En það kemur bara í ljós.

Svo er það myndataka næsta mánudag þegar litli á alvöru afmæli, öll fjölskyldan ætlar að mæta,það er að segja, ég , litli, mamma, mía, amma og afi :o)

Enda er þetta fjölskyldan mína og litla :o)

En amma og afi eru komin í heimsókn þannig að ég hef þetta ekki lengra núna :o)

03 nóvember 2006










Hún Tanja mín hefði orðið 13 ára í dag þessi engill, við fjölskyldan ætlum að halda upp á afmælið hennar í dag á okkar hátt.
En það er svo skrítið að hafa hana ekki hjá okkur í eigin persónu þótt ég viti alveg að hún er hérna hlaupandi um og betlandi um mat, vatn og að fá að komast út.
Ég heyri mjög oft í henni, sérstaklega þegar hún er að krafsa í rimlagardínunum og byðja um að fara út, svo líka þegar hún leggst niður á svefnherbergisganginum og er að fylgjast með okkur öllum, ég er alltaf að finna hárin hennar allstaðar og lyktin er ekkert að hverfa, hún er hjá okkur og verður það ávalt.
En söknuðurinn fer aldrei, ég sakna hennar hverrar einustu sek og það mun aldrei hverfa, hún var litla systir mín sem gladdi mig í hvert skipti þegar mér leið illa, hjálpaði mér í gegnum svo margt, tók á móti mér þegar ég kom heim og það sem mér þótti vænst um var þegar ég var með hríðarnar hérna heima þá sat hún við hlið mér og reyndi að hjálpa mér og ég er alveg viss um að ef hún hefði ekki verið við hlið mér þá hefði ég ekki getað gengið í gegnum þetta.
Svo þegar ég kom heim með litla þá var hún svo fegin að fá mig og svo forvitin að sjá hver væri í stólnum sem ég setti á gólfið, hún þefaði af litla mínum og svo passaði hún okkur alltaf, hún var besti hundu, systir, vinkona og barnapía sem til var og ég er þakklát fyrir að hafa átt hana í þessi 12 ára og nokkra mánuði.

Elsku Tanja ég vona að þú eigir góðan afmælisdag hjá Guði og ég vona að hann gefi þér fullt af klökum því þú elskaðir þá.

Ég og Birgir munum alltaf elska þig.