Solbærjuice
Ég veit ekkert með titilinn en hann passar bara ekkert við það sem ég ætla að blogga um, en allavega þá var ég næstum því búin að panta fer til London með henni Írisi um páskana en því miður hefur Íris ekki efni á því að fara þannig að við urðum að sleppa við þá ferð :o(
En ég væri samt svo til að gera eitthvað um páskana, fara upp í bústað eða út á land og gera eitthvað skemmtilegt í góðum vinahópi en ég efast um að það verði eitthvað úr þeim hugmyndum hjá mér, ætli ég verði ekki bara með fjölskyldunni og hafi það gott, enda er það besta sem hægt er að gera :o)
En jamm, ég er núna að leita mér að barnapíu fyrir sumarið og kannski líka til að passa einstöku sinnum, þegar ég ætla að skreppa í ræktina og vera dugleg :o)
Ef þú veist um einhverja þá máttu endilega láta mig vita :op
Mér gengur bara ágætlega í skólanum, er búin að fá tvær 10 og eina 9,5, er ekkert smá sátt með það :op
Fæ að vita meira á morgun og vona að það verði fleirri 10 ur :op
En jamm, er einhver þarna úti sem nennir að þrífa bílinn minn?
Ég skal borga eitthvað smá fyrir það, hann er nefnilega orðinn ekkert smá skítugur og ég vil ekki vera á svona skítugum bíl :o(
Plíssssss einhver þarna úti ;o)
Ég verð að monta mig, ég fór með litla kallinn minn upp í Reykjaneshöll áðan því það er nú öskudagur og hann var svo mikið krútt, var í súperman búning og ekkert smá sætur, var nú líka alveg að fíla athyglina því það voru margir sem gáfu honum athygli :o)
Hann er líka orðinn ekkert smá duglegur, hann þroskast svo fljótt og svo gaman að fylgjst með því hann lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi :o)
Ég á frábærasta barn sem til er og er svo stolt af honum, ég gæti rifnað úr stolti :op