11 maí 2006

Sumarskóli og sumarfrí

Jæja, þá er mín bara búin að skrá sig í sumarskóla og panta fer til útlanda með fjölskyldunni, ekkert smá flott.
En já með sumarskólann þá tek ég 2 fög ekki 1 eins og ég ætlaði mér, ég fer í ensku og félagsfræði og það er bara aldrei að vita nema maður taki eitt fag í viðbót en ég held að þetta sé alveg nóg fyrir mig.
En ég er orðin ekkert smá spennt fyrir að komast til útlanda, en ég veit að ég á eftir að blogga mikið um það þannig að ég ætla að sleppa því núna.
En já ég er enn að leita að barnapíu svo ég geti skellt mér í ræktina, ég verð að fara að hreyfa á mér rassinn, ég get þetta ekki lengur, vil líka fara að fá betra þol og flottan maga.
En já ég ákvað að skella bara inn smá bloggi til að láta vita að ég er á lífi, lofa að vera duglegri að blogga.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli