23 janúar 2007

LETI

Alltaf sama letin í mér að halda þessari síðu gangandi, en ég hef hins vegar verið mjög dugleg með síðuna á minn sirkus en hef samt verið að hugsa um að hvíla mig aðeins á þerri síðu.
Það eru svo margir sem skoða hana en nánast enginn sem kvittar, sem er auðvitað frekar fúlt, svo er maður farinn að fara alltaf sama hringinn og skoða alltaf viss blogg hjá fólki sem maður þekki ekki neitt og veit ekkert um nema bara það að það bloggar mjög oft.

En ég verð að fara að koma með eitt stykki áhugavert blogg hérna, er bara ekkert að nenna því núna, en hver veit hvernig mrgundagurinn verður, kannski nenni ég bara að blogga endalaust, þið verðið bara að bíða spennt eftir næsta bloggi sem verður alveg sjóðandi heitt :op

02 janúar 2007

Áramótin


Áramótin hjá mér voru æðisleg, við mamma, mía og birgir fórum heim til ömmu og afa í njarðvík og borðuðum þar, æðislegur maturinn :o)
Fórum svo smá rúnt um hverfin hérna í bænum þar sem það er engin brenna þá er þetta nýja hefðin hjá okkur.
Svo fórum við aftur heim til ömmu og afa og horfðum á skaupið og ég er mjög sátt við það þetta árið,afi var líka búinn að kaupa spés tertu handa bigga mínum og ég fór út og kveikti í henni, en svo þegar hún var búin þá heyrðist bara í þeim stutta, dótið mitt, dótið mitt, hann var ekkert sáttur að fá ekki að hafa tertuna :op
svo var haldið heim til Nonna frænda og vá hvað það var æðislega gaman, mikið af flugeldum enda elskar þessi fjölskylda að sprengja flugelda og tertur og ekki fáar heldur super margar.
Eftir það þá fór ég og sótti Gerðu vinkonu og náðum svo í Lilju vinkonu, rúlluðum út í garð til Sigmars og tjilluðum eitthvað þar, en svo ætluðum við að fara á ballið sem var haldið þar en nei, ég var ekki alveg tilbúin til að borga 2500 kr fyrir ball í garðinum, nei takk.
Ég og Lilja fórum þá bara aftur í kef og Lilja fór í eitthvað partý en ég rúllaði upp í Mosó til Tomma og við kíktum til foreldra hans og vorum bara þar frameftir öllu, mjög gaman þar, kom frekar seint heim en ég sé ekkert eftir því enda frábært kvöld að enda hjá mér.

En já þetta er seinasti dagurinn minn sem táningur, frekar skrítið :oS en það verður bara að hafa það.
Ég er búin að hringja nánast í alla þá sem er boðið í afmælið mitt þannig að það verður svaka stuð á laugardaginn, enda er ég ekkert smá spennt fyrir því kvöldi :oD