29 október 2012

Ælupest

Við Birgir erum bara heima í dag, hann byrjaði að æla í nótt og svo aftur í morgun, hefur sofið nánast í allan dag, er mikið slappur litla skinnið. Leiðinlegt fyrir hann að eyða vetrarfríinu sínu í veikindi en svona er þetta bara.

Við erum allavega búin að hafa það kósý, hann kúrir bara hjá mér og sefur.

Ég vona svo innilega að ég sleppi við þessa ælupest, er ekki alveg tilbúin í hana núna.

En það er víst kominn tími á meira kúr með gullinu mínu.

27 október 2012

Stefnan

Púff það eru farin 3,5 kg á 3 vikum með breyttu mataræði. Ætli ég nái 4kg á 4 vikum ? En ég stefni á 7kg fyrir jól, það væri bara æðislegt.

22 október 2012

Næturvakt

Úff þá er það næturvakt í kvöld og aftur à morgun, væri alveg til í að vera bara heima en svona er þetta... Verð mjög fegin á miðvikudaginn kl 8:00 þá er ég komin í smá frí ;)

21 október 2012

Eitt gott fyrir svefninn

Gamalt en gott

Ár og aldir

Það má segja það að ég hafi gleymt blogg síðunni minni.

En síðan ég bloggaði seinast þá er margt búið að gerast í mínu lífi, ég gæti endalaust talið upp en ég geri það kannski í næstu færslum.

Reyni bara að koma mér af stað aftur og sjá hvort þetta sé eitthvað að ganga ;)