Ég er svo þreytt
Ég er svo þreytt, ég skil þetta ekki alveg, verð bara að hvíla mig aðeins meira en ég geri, fara líka fyrr að sofa og svoleiðis.
en ég er alltaf að pæla í þessum bílamálum, ég veit ekkert hvað ég á að gera, núna er ég eitthvað smeik við þetta allt saman, það er svo dýrt að reka bíl, það þarf að borga mánaðarlega af honum + tryggingar + bensín.
Þetta verður erftitt fyrst en svo verður þetta í lagi, ég sel bara bílinn ef ég hef ekki efni á honum.
En ef ég kaupi mér bílinn þá ætla ég að safna mér upp í einkanúmer, langar alveg rosalega í
B OLSEN það passar svo vel við okkur birgir, við erum nefnilega bæði B OLSEN ef þið skiljið :op
En númerið er svo dýrt þannig að ég verð mjög lengi að safna me´r fyrir því, það kostar nefnilega heilar 25.000 og svo kostar eitthvað aukalega að setja það á.
Hey já ég fór í geðveika búð á föstudaginn, það eru svo flott föt þarna, ég væri sko til í nánast hverja fílk þarna, amma var að pæla að fara með mig þarna og leyfa mér að velja jólagjöfina mína en ég þori því ekki, þetta er frekar dýr búð, ég sá reyndar alveg geggjaðan kjól, hann er sko bara flottur, hann kostaði held ég 13.000 eða eitthvað, svo voru fullt af peysum, bolum og skyrtum þarna, ég ætla sko að kaupa mér föt þarna í staðin fyrir að kaupa mér alltaf marga ódýrara flíkur.
Ohh ég þarf að læra smá í dag, ég lærði reyndar í gærkveldi en þarf að fara smá yfir þetta í dag, ég er nú enga stund, er nefnilega bara að fara gá hvort ég kunni þetta ekki alveg, ég væri sko alveg til að fá 10 í þessu prófi, það væri alveg mergjað.
En ég er að pæla að fara að klæða mig eða eitthvað, ég nenni ekki að vera svona subbuleg, með hárið út í loftið og þvílíkt úldin í framan.