24 mars 2008

Kraftaverk

Vá hvað lífið er allt að breytast núna, allt til hins betra...
Amma búin að sigra krabbameinið, ég vissi að hún gæti þetta... Enda hetja aldarinnar að mínu mati :op
Það er svo gaman að sjá hvað hún er öll að hressast núna, er bara aftur að verða amma mín sem ég þekkti áður, það var svo erfitt að horfa uppá hana svona veika.
En ég gæti ekki verið meira ánægð en ég er núna yfir þessu.
Svo átti hann afi minn afmæli, til hamingju með það nafni minn :o*
Á páskadag var ég og Birgir hjá mömmu, amma og afi komu líka og Marta frænka, var bara svaka stuð.
Sonur minn var yndislegur eins og hann er alltaf, hann fékk bíla og trommusett því ég er svo vond mamma að leyfa honum ekki að fá páskaegg hehe :op en hann er svo duglegur að tromma, getið séð myndir af því á síðunni hans á næstu dögum, er að setja inn myndir núna...

Ég lennti nú í því um daginn að það var bakkað framan á bílinn minn og keyrt í burtu :o( en sem betur fer fannst manneskjan :o) þannig að ég þarf ekki að borga sjálf fyrir þessa skemmd sem kostar 200 þúsund að laga þar sem húddið, grillið og eitthvað fleirra er ónýtt :o(
Ég er að keyra um á vel klesstum bíl núna :o( en hann fer í viðgerð hjá bestu vinum mínum á miðvikudaginn hehe, líka eins gott að ég þurfi ekki að koma með hann 3 sinnum í sprautun eins og seinast :o/ hehe

En já, skólinn byrjar aftur á morgun, er frekar fegin, nenni ekki að hanga svona lengur, er samt búin að vera ótrúlegadugleg í fríinu að læra og læra meira :o/

Þótt ég hafi nú alveg gert margt fleirra eins og passað og farið á rúntinn með Aldísi og strákunum okkar sem var bara æðislega gaman :op
Fór líka á samkomur og í smá saumaklúbb sem ég stoppaði frekar stutt í....

En það verður stuð að fara aftur í skólann og hitta fólkið aftur :o)

Svo á næstunni hjá mér er bara að læra, vera með Bigga mínum og árshátíð um miðjan Apríl sem ég vona að verði stuð :op

10 mars 2008

Huhh...

Föstudagurinn var æði hjá mér og minni fjölskyldu.
Voru 2 gleðifréttir af ömmu þannig að ég gat ekki hætt að brosa... bara yndislegt.
Svo á laugardaginn þá fór ég á samkomuna, það var æðislegt.
Líka ekkert smá gaman að hitta nokkra þarna sem ég hef ekki hitt áður og aðra sem ég hef ekki hitt lengi.
Svo í dag var byrjað að rústa herberginu mínu, það er búið að taka 20 cm að ofan og neðan á 2 veggjum hjá mér, og sótthreinsa, en DÍ hvað lyktin er að gera mig geðveika.
Það er líka svo kalt hjá mér því ég verð að hafa gluggana opna svo ég kafni ekki útaf þessari lykt.

En já, ég er ekki alveg að meika skólann, er ekki að ná að skilja allt, vá hvað ég var alveg við það að hætta áðan þegar ég gat ekki gert það sem ég átti að vera að gera. ARG þoli ekki þegar ég get ekki eitthvað eða skil ekki eitthvað.
En ég er búin að redda mér smá hjálp á morgun, vonandi ná ég smá skilningi á þessu þá.
Svo í páskafríinu þá verður ekki gert neitt annað en að læra. Wúbbídú, nei nei það verður bara stuð, eða vonum það allavega.

06 mars 2008

Alveg ótrúlegt

það á ekki af mér að ganga...
búin að vera í algjöru tölvuveseni og er sko komin með ógeð af því... en því miður er það ekki búið... en verður það vonandi í þar næstu viku...

Svo er ég ein af þeim óheppnu hérna uppá velli sem þarf að lenda í því að vera með þennan helvítis svepp inní íbúðinni minni...
Ég er búin að færa rúmið mitt inní stofu og þarf að sofa þar í meira en viku og svo þarf ég að klára að tæma herbergið mitt, voðalega lítið eftir sem ég mun klára fyrir mánudaginn, því þá koma iðnaðaramennirnir og brjóta og bramla,sótthreinsa, sparsla, mála og þrífa... verður allt á fullu hérna í 5 daga...
alveg úper gaman, vííííí

En það er samt allt ágætt að frétta af okkur 2*B... Birgir er alltaf jafn yndislegur og fær mann alltaf til að brosa, hann er dýrmætasta gullið mitt...
Svo fara páskarnir bara að koma, verður notalegt að fá smá frí þótt það verði ekkert frí, ég verð að læra eins og brjálaðingur því miður, en ég ætla mér samt að gera eitthvað skemmtilegt...

Ég fór til ömmu í dag, var frekar erfitt en maður verður bara að vera sterk... ekkert annað hægt... ég ætla aftur á morgun, best að fara bara ein þar sem Birgir er ekkert að höndla þessi veikindi og hvað þá að fara alltaf uppá sjúkrahús, hann er svo vanafastur og vill bara hafa ömmu sína heima á Holtsgötunni...

En svona er þetta bara, maður heldur bara í vonina og vonar allt hið besta... ekkert annað hægt