24 mars 2008

Kraftaverk

Vá hvað lífið er allt að breytast núna, allt til hins betra...
Amma búin að sigra krabbameinið, ég vissi að hún gæti þetta... Enda hetja aldarinnar að mínu mati :op
Það er svo gaman að sjá hvað hún er öll að hressast núna, er bara aftur að verða amma mín sem ég þekkti áður, það var svo erfitt að horfa uppá hana svona veika.
En ég gæti ekki verið meira ánægð en ég er núna yfir þessu.
Svo átti hann afi minn afmæli, til hamingju með það nafni minn :o*
Á páskadag var ég og Birgir hjá mömmu, amma og afi komu líka og Marta frænka, var bara svaka stuð.
Sonur minn var yndislegur eins og hann er alltaf, hann fékk bíla og trommusett því ég er svo vond mamma að leyfa honum ekki að fá páskaegg hehe :op en hann er svo duglegur að tromma, getið séð myndir af því á síðunni hans á næstu dögum, er að setja inn myndir núna...

Ég lennti nú í því um daginn að það var bakkað framan á bílinn minn og keyrt í burtu :o( en sem betur fer fannst manneskjan :o) þannig að ég þarf ekki að borga sjálf fyrir þessa skemmd sem kostar 200 þúsund að laga þar sem húddið, grillið og eitthvað fleirra er ónýtt :o(
Ég er að keyra um á vel klesstum bíl núna :o( en hann fer í viðgerð hjá bestu vinum mínum á miðvikudaginn hehe, líka eins gott að ég þurfi ekki að koma með hann 3 sinnum í sprautun eins og seinast :o/ hehe

En já, skólinn byrjar aftur á morgun, er frekar fegin, nenni ekki að hanga svona lengur, er samt búin að vera ótrúlegadugleg í fríinu að læra og læra meira :o/

Þótt ég hafi nú alveg gert margt fleirra eins og passað og farið á rúntinn með Aldísi og strákunum okkar sem var bara æðislega gaman :op
Fór líka á samkomur og í smá saumaklúbb sem ég stoppaði frekar stutt í....

En það verður stuð að fara aftur í skólann og hitta fólkið aftur :o)

Svo á næstunni hjá mér er bara að læra, vera með Bigga mínum og árshátíð um miðjan Apríl sem ég vona að verði stuð :op

2 ummæli:

  1. Nafnlaus12:44 f.h.

    Hæ, byrjuð að blogga hérna aftur :) Kíkti hingað inn fyrir algjöra tilviljun :)

    Gott að heyra með ömmu þina.

    Ákvað að kvitta bara fyrir innlitið, og senda í leiðinni smá sól til þín frá Californiu :D

    Kveðja, Harpa

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus12:58 f.h.

    Sæl elzkan, nenniru að senda mér lykilorðið á síðuna hjá Birgi á e-mailið mitt hanna87@visir.is þú skiptir svo oft um lykilorð einhvetíman að ég datt alveg út úr þessu. Til hamingju með ömmu þína :) Er enn að borð pákskaegg sjitt, fæ mér frekar trommur og bíla á næsta ári hehe!

    Sé þig svkís kveðja Hanna Rúna ;)

    SvaraEyða