10 mars 2008

Huhh...

Föstudagurinn var æði hjá mér og minni fjölskyldu.
Voru 2 gleðifréttir af ömmu þannig að ég gat ekki hætt að brosa... bara yndislegt.
Svo á laugardaginn þá fór ég á samkomuna, það var æðislegt.
Líka ekkert smá gaman að hitta nokkra þarna sem ég hef ekki hitt áður og aðra sem ég hef ekki hitt lengi.
Svo í dag var byrjað að rústa herberginu mínu, það er búið að taka 20 cm að ofan og neðan á 2 veggjum hjá mér, og sótthreinsa, en DÍ hvað lyktin er að gera mig geðveika.
Það er líka svo kalt hjá mér því ég verð að hafa gluggana opna svo ég kafni ekki útaf þessari lykt.

En já, ég er ekki alveg að meika skólann, er ekki að ná að skilja allt, vá hvað ég var alveg við það að hætta áðan þegar ég gat ekki gert það sem ég átti að vera að gera. ARG þoli ekki þegar ég get ekki eitthvað eða skil ekki eitthvað.
En ég er búin að redda mér smá hjálp á morgun, vonandi ná ég smá skilningi á þessu þá.
Svo í páskafríinu þá verður ekki gert neitt annað en að læra. Wúbbídú, nei nei það verður bara stuð, eða vonum það allavega.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli