31 desember 2007

fallega gullið mitt

Litla gullið mitt hann Birgir er búinn að vera eitthvað svo lítill í sér núna í kvöld/nótt... við liggjum hérna upp í rúmi og erum að reyna að hafa það notalegt, hann er samt eitthvað að sofna núna, en vá hvað það er notalegt að hafa hann hérna við hlið mér að kúra, það er svo gott, ekkert betra en að hafa hann hjá mér...
Ég er eiginlega komin yfir þreytuna, þess vegna er ég að blogga, get ekki sofnað og nenni ekki neinum... enda klukkan að hanga 4 :o/
En maður ætti kannski að fara að loka augunum til að maður hafi einhverja orku á morgun...
Góða nótt :o*

28 desember 2007

Ekkert gaman

Það er ekkert gaman að blogga þegar það commentar enginn :o/
En allavega þá ætlaði ég bara að láta vita að ég er á lífi en ég nenni ekki að koma með neina svaka færslu núna... ætlaði mér að gera það þegar nýja árið kemur... Koma kannski með það helsta af þessu ári eða eitthvað álíka... en allavega, gleðilega hátið og sjáumst vonandi sem fyrst ;o)

08 desember 2007

Svo lítil í mér

Ég er svo lítil í mér núna...
Eins og flest allir vita eða allavega þeir sem þekkja mig best, þá er amma mín mjög veik.
Hún greindist með krabbamein fyrir stuttu og er að berjast við þann djöful eins og hetja núna, en því miður liggur hún inná sjúkrahúsi vegna þessara veikinda...
Hún er svo dugleg, hún ætlar ekki að láta þetta fella sig.

En núna er ég svo lítil í mér, tárin leka bara niður kinnar mínar og ég næ ekki að stoppa það, bæði útaf því að ég get ekkert gert fyrir hana og ekki verið hjá henni.
Eins og nánast allir vita þá er ég mjög sterk manneskja og það þarf mjög mikið til að fá mig til að gráta, en núna er ég búin að gráta nánast í allt kvöld...
Svo bætir ekki að vera að fara í próf í næstu viku, allur prófkvíðinn og allt sem fylgir því.
En ég mun ná þessum prófum bara fyrir ömmu, gera hana stolta af mér, því í hvert einasta skipti á þessari önn sem ég hef sagt henni hvernig mér hefur gengið hefur hún alltaf verið svo ánægð með mig, sem ýtir bara undir það að gera enn betur...

Elsku amma mín, ég elska þig meira en allt og ég mun berjast með þér í gegnum þessi veikindi og þú munt standa uppi sem sigurvegari, ef það er einhver sem getur sigrað þá ert það þú...
Vertu sterk og mundu að ég og Birgir elskum þig...

03 desember 2007

stress

úff, það er svo stutt í prófin... vika í þau...
En sem betur fer er ég búin að vera dugleg í vetur þannig að ég á alveg að geta þetta...
En ég er allavega farin að finna fyrir stressinu og ég veit að það á eftir að aukast en vonandi ekkert mikið meira :o/

En sem betur fer þá er þetta bara ein vika... byrja 10.des og er búin 14.des þannig að ég þarf bara að vera stressuð í 2 vikur en ekki 3-4 eins og í FS þegar ég var þar.

Svo fæ ég þetta frábæra jólafrí, þarf ekki að mæta fyrr en 14.jan aftur sem er bara æðislegt, hins vegar veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér, veit að ég ætla að fara í ræktina en ekkert annað planað :o/ hehe kannski bara slaka á, hver veit ;o)

02 desember 2007

ganga bara allir út?

vá það er eitt sem ég skil ekki... hvernig geta sumar stelpur og sumir strákar gengið út?
Veit um þó nokkrar stelpur sem eru ekkert til að hrópa húrra fyrir... annað hvort ómyndarlegar eða bara ekkert á milli eyrnanna... ég skil þetta bara ekki...
Er þetta bara eitthvað sem þið strákarnir eruð að sækjast eftir?

Viljið þið ekki stelpur með sjálfstæða hugsun eða?

ég hef allavega heyrt nokkra stráka segja að ef stelpan er "heimsk" þá er það bara betra... því þá gera þær hvað sem er fyrir gaurana

Svo eru það stelpurnar... það sem fer mest í taugarnar á mér er þegar þær eru Gold digger-ar... sækjast bara eftir peningunum...

ég skil ekki hvernig þetta er hægt... því ekki gæti ég hugsað mér að vera bara gaur útaf því að hann á nóg af seðlum eða útaf því að hann er heimskur og hægt að fá hann til að gera hvað sem er...

ég bara skil þetta ekki... hvað finnst þér?