úff, það er svo stutt í prófin... vika í þau...
En sem betur fer er ég búin að vera dugleg í vetur þannig að ég á alveg að geta þetta...
En ég er allavega farin að finna fyrir stressinu og ég veit að það á eftir að aukast en vonandi ekkert mikið meira :o/
En sem betur fer þá er þetta bara ein vika... byrja 10.des og er búin 14.des þannig að ég þarf bara að vera stressuð í 2 vikur en ekki 3-4 eins og í FS þegar ég var þar.
Svo fæ ég þetta frábæra jólafrí, þarf ekki að mæta fyrr en 14.jan aftur sem er bara æðislegt, hins vegar veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér, veit að ég ætla að fara í ræktina en ekkert annað planað :o/ hehe kannski bara slaka á, hver veit ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli