08 desember 2007

Svo lítil í mér

Ég er svo lítil í mér núna...
Eins og flest allir vita eða allavega þeir sem þekkja mig best, þá er amma mín mjög veik.
Hún greindist með krabbamein fyrir stuttu og er að berjast við þann djöful eins og hetja núna, en því miður liggur hún inná sjúkrahúsi vegna þessara veikinda...
Hún er svo dugleg, hún ætlar ekki að láta þetta fella sig.

En núna er ég svo lítil í mér, tárin leka bara niður kinnar mínar og ég næ ekki að stoppa það, bæði útaf því að ég get ekkert gert fyrir hana og ekki verið hjá henni.
Eins og nánast allir vita þá er ég mjög sterk manneskja og það þarf mjög mikið til að fá mig til að gráta, en núna er ég búin að gráta nánast í allt kvöld...
Svo bætir ekki að vera að fara í próf í næstu viku, allur prófkvíðinn og allt sem fylgir því.
En ég mun ná þessum prófum bara fyrir ömmu, gera hana stolta af mér, því í hvert einasta skipti á þessari önn sem ég hef sagt henni hvernig mér hefur gengið hefur hún alltaf verið svo ánægð með mig, sem ýtir bara undir það að gera enn betur...

Elsku amma mín, ég elska þig meira en allt og ég mun berjast með þér í gegnum þessi veikindi og þú munt standa uppi sem sigurvegari, ef það er einhver sem getur sigrað þá ert það þú...
Vertu sterk og mundu að ég og Birgir elskum þig...

Engin ummæli:

Skrifa ummæli