29 desember 2006

Er svo ánægð


Úff ég er svo ánægð að það er ekki eðlilegt.
Það er nefnilega komið á hreint að afmælið mitt verður 6.jan á yello og mun ég hringja á næstu dögum í þá einstaklinga sem verður boðið í prtýið mitt, var samt að pæla að hafa svo bara "opið hús" eftir 23:30 eða eitthvað en það er ekki 100%
Ég mun bjóða upp á smá veitingar og vona bara svo innilega að það verði góð mæting.

Ég tek það fram að það er skylda að gefa mér afmælisgjöf HAHAHAHA :oD

En ég ætla að halda áfram að plana þetta allt :oD

Muna að commenta allir saman :o)

28 desember 2006

Nýtt lúkk

Jæja, þá er ég búin að breyta síðunni frekar mikið, hvernig lýst ykkur svo á? :o)
Endilega komið með hugmyndir um breytinar :oD

En já, ein spurning, hvað ætlið þið að gera um áramótin?

26 desember 2006

Gleðilega hátíð

Vá hvað ég er búin að vera löt við að blogga, sorry fólk :oS
En allavega þá er mikið búið að vera í gangi hjá mér og það helsta sem ég vil segja frá er að ég náði öllum prófunum :oD
Ekkert smá stolt af sjálfri mér :op
Var nenfnilega alveg viss um að ég væri fallin í Landafræði en ég náði :oD
Úff þvílíki léttirinn þegar ég komst að því að ég væri búin að ná.
En já, ég get bloggað endalaust en er bara því miður ekkert að nenna því, sorry, en ég lofa að vera duglegri að blogga og segja frá öllu því sem er að gerast í lífi mínu og því sem er búið að gerast :oD

Gleðilega hátið elskurnar mínar