Við Birgir erum bara heima í dag, hann byrjaði að æla í nótt og svo aftur í morgun, hefur sofið nánast í allan dag, er mikið slappur litla skinnið. Leiðinlegt fyrir hann að eyða vetrarfríinu sínu í veikindi en svona er þetta bara.
Við erum allavega búin að hafa það kósý, hann kúrir bara hjá mér og sefur.
Ég vona svo innilega að ég sleppi við þessa ælupest, er ekki alveg tilbúin í hana núna.
En það er víst kominn tími á meira kúr með gullinu mínu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli