Vá hvað sumir einstaklingar geta verið ÞVERIR, það er ekki einu sinni hægt að segja sitt álit á málinu eða tjá sig aðeins, ég get alveg verið þver en er það ekki nema ég hafi rétt fyrir mér, en þessir aðilar eða eiginlega þessi aðili er sá ÞVERASTI sem ég veit um, vá hvað ég hefði getað gargað á aðilann.
En nóg um það. Ekki alveg þess virði að vera að blogga um þennan aðila, ef ég á að segja satt.
En já, ég er bara í skólanum, alveg nóg að gera, gengur bara ágætlega, mætti ganga betur en þetta er bara mun meiri vinna en fyrir áramót.
Svo er ég að pæla í því hvað ég eigi að gera í sumar, hvort ég eigi að fara að vinna aftur í gömlu vinnunni eða ekki.
Ætla aðeins og hugsa þetta.
Veit allavega það að ég ætla mér að fara út í sumar eða allavega áður en skólinn byrjar aftur, það er bókað mál.
Svo verður stuð á kellu um helgina, eina er að ég á engin föt til að fara í :o(
Ef einhver vill vera svo góð og lána mér þá væri það frábært, hef ekki efni á því að kaupa mér, þótt svo ég sé búin að finna geðveikan bol sem ég væri alveg til í en NEI ég á ekki pening :o(
En það er ekki heimsendir hehe.
Ætla mér að vera dugleg að læra núna, kem með eitthvað djúsi blogg eftir helgi nema ég hafi eitthvað virkilega merkilegt að segja þá kem ég með eitthvað fyrir/um helgina ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli