25 janúar 2008

óveður

Jæja, ég og bóndinn minn sitjum bara upp í sófa, enn í náttfötum og erum að horfa á skrípó :op svaka kósý :op hehe
Kennsla féll niður í dag í skólanum mínum útaf veðri og ég er ekki enn farin með litla á leikskólann þar sem það er enn svo leiðinlegt veður hér uppfrá og slæm færð í hverfinu hjá leikskólanum en það skánar á næstu tímum.
Ég ætla nefnilega að fara í ræktina á eftir með stelpunum, púla smá því ekki kemst maður um helgina.
Ég fór í allar mælingarnar í gær og allt koma lala út, það er samt minna sem ég þarf að missa til að vera í "réttri" þyngd en ég bjóst við. en ég ætla mér samt að léttast um mun meina, svo fór ég á miðvikudaginn í skýrslutöku og ég veit ekki hvað. Búið að vera ekkert smá mikið vesen útaf þessum skemmdarverkum á bílnum.
En þetta er allavega búið í bili hjá mér allavega, eða ég vona það allavega.

En ætli helgin hjá manni verði ekki bara þannig að maður horfi á skrípó á daginn með guttanum og leika bílabraut eða eitthvaðog svo læri á kvöldin, allavega ef veðrið verður svona áfram.
æji að er bara nice. slaka bara á og hafa það notalegt með gullinu sínu

Engin ummæli:

Skrifa ummæli