Skrítið hvað sumt fólk ætlar bara ekki að þroskast, það mætti bara halda að það fær niðrá við en ekki uppá við eins og búast má við.
En það er ekki hægt að velta sér uppúr þessu heldur bara þakka fyrir það að maður haldi áfram að þroskast og takast á við veruleikann eins og fullorðinn einstaklingur.
En já, ég er búin að fara í ræktina, föstudag, mánudag og þriðjudag, og fer aftur á morgun, þetta gengur bara vel, reyni alltaf að gera betur en ég gerði deginum áður, enda á það þannig að vera.
Þarf bara að passa uppá mataræðið aðeins betur, er samt búin að henda öllu nammi og gosi frá mér, minnka allt hveiti og allt ógeð.
En þetta kemur allt með tímanum.
Markmiðið er að vera sátt við líkama og sál, byggja mig upp og læra að lifa lífinu á heilbrigðan og ánægjuríkan hátt :oD
Engin ummæli:
Skrifa ummæli