jarí jarí jei
nei nei segi bara svona, í gær fór ég í ræktina með Hildi sem er með mér í skólanun, tókum vel á því og fórum svo að fíflast í einum salnum þarna, fórum í SKVASS eða hvað sem þetta heitir, vá hvað þetta er fyndin íþrótt ef íþrótt má kalla, ég er alveg viss um að þetta var fundið upp á geðveikrahæli þar sem allt var hvítt þarna inni nema nokkrar línur svartar og aðrar rauðar, og jú gólfið var parket en dí, það var svo hátt til lofts þarna, en þetta var samt mjög fínt.
Svo var bara farið í búðina og aftur heim...
í dag er ég ekki búin að gera NEITT nema var heima með litla og hafa það notalegt, búin að læra í kvöld og er bara á leiðinni í háttinn.
En vá hvað það er erfitt að geta ekki farið til ömmu, má það ekki útaf litla, en hún er búin að eiga það frekar erfitt í gær, nótt og í dag.
En vonandi er þetta að vera búið hjá henni, svo erfitt að hafa hana svona, hún hefur alltaf verið svo sterk og hress en lyfjagjöfin er að fara eitthvað illa í hana því miður.
En sem betur fer þá fær hún að fara í 2 aðrar lyfjagjafir, sem hlítur að þýða það að þetta er eitthvað að virka, ég trúi ekki öðru.
En svo er ég búin að vera að pæla í því hvað ég eigi að gera þegar ég útskrifast núna í vor, er alveg til í það að fara í nám erlendis. langar að upplifa eitthvað annað en bara ísland, þótt það sé mjög fínt að búa hérna þá væri ég alveg til í að komast eitthvert annað, Sara vinkona var að benda mér á að fara til DK en ég er ekkert voðalega hrifin af því, er meira hrifin af UK en það kemur bara í ljós, langar auðvitað rosalega að fara í lögguna en vaktavinnan er að eyðileggja það smá, get ekki hugsað mér að fara í vaktavinnu þegar ég er ein með gullið mitt. Væri annað ef ég væri komin með maka og svoleiðis.
En tíminn leiðir þetta bara í ljós, er enn ung og hef alla framtíða fyrir mér þannig að maður á bara að gera það sem manni langar, er það ekki annars?
En allavega góða nótt og farið varlega í þessu veðri ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli