Á laugardagsnótt átti sá sorglegi viðburður sér stað að Yello í Keflavík var lokaður...
Til að gera langa sögu stutta þá var ástæðan fyrir því að vinsælasti skemmtistaðurinn í Keflavík (Yello) var lokaður vegna þess að ekkert kalt vatn var á staðnum... eins og flestir ef ekki allir vita þá virka salerni ekki þegar kalt vatn er ekki í lagi... hvað þá gosdælur, klakavél og margt annað...
Ástæðan fyrir því að ekki var hægt að laga þetta vandamál var að inntakið fyrir kaldavatnið er staðsett í versluninni sem er á hæðinni fyrir neðan sem ber nafnið Hljómval, reynt var að ná sambandi við eigendur Hljómvals en þeir harðneituðu að koma á staðinn og hleypa viðgerðamanni Hitaveitunnar inn til að geta lagað þessa bilun, þrátt fyrir að það gæti verið allt á floti í verslunni...
Þetta tel ég vera bara hreinan barnaskap og ekkert annað... hver myndi ekki fara og athuga hvort það væri ekki allt í lagi í sinni eigin verslun þegar svona kemur uppá... ég myndi ekki vilja að eitthvað kæmi fyrir mitt eigið fyrirtæki ef ég ætti slíkt...
Margir voru mjög óánægðir yfir því að geta ekki skemmt sér á Yello þetta kvöld og skil ég það mjög vel... Enda frábær staður og alltaf gaman að fara á...
Ég hef allavega tekið þá ákvörðun að ég mun ekki versla framar við þessa verslun og hvet ég alla að hugsa sig um því svona á ekki að viðgangast...
En svo til að koma góðum fréttum á framfæri þá mun Yello vera opinn næstu helgi þannig að allir geta farið og skemmt sér konungslega við frábæra tónlist og dansað eins og brjálaðingar ;o)
Tvær hliðar eru á flestum málum...
SvaraEyða... og eitthvað finnst mér eins og við höfum bara heyrt aðra.
Almenn rök- og skynsemi segir okkur að verslunareigandi situr ekki bara heima í fílu ef verslunin hans hefur orðið fyrir vatnsskemmdum.
Nú, ef eitthvað er verið að ýkja, og verslunin hans átti aldrei á hættu að verða vatninu bráð, þá hefði maður haldið að búðareigandi myndi nenna að leggja á sig smá krók, þótt að það sé laugardagskvöld, til þess að hjálpa öðrum eiganda fyrirtækis... nema að það hafi verið eitthvað lítið um kærleik á milli nágrannanna fyrir þetta atvik?
Allavega, ég ætla ekki að hætta að versla við Hljómval fyrr en ég hef gefið hinum aðilanum tækifæri til þess að koma með sína útgáfu...
Er Hljómval enþá opið??? Vá hvað ég hef ekki séð hræðu þar inni í mörg ár :D
SvaraEyðaég ætla ekki að hætta að verlsa við Hljómval þó að karlinn hafi ekki farið þarna niðureftir á laugardaginn...!
SvaraEyðasamt lélegt að hafa ekki farið og athugað þetta og leiðinlegt að staðnum var lokað..!
Alltaf jafn gaman þegar fólk skrifar nafnlaust á síðuna...
SvaraEyða