20 nóvember 2006

Jólin að koma

Núna styttist í jólin, úff það er alveg nóg að gera hér á bæ þar sem litli á afmæli eftir viku en veislurnar verða haldnar næsta laugardag.
Svo þannig að ég og mamma eigum eftir að baka og gera allt fínt fyrir veislurnar.
Ég er bara veik heima núna en ég ætla í skólann á morgun ef ég verð eitthvað skárri.

Sólveig og Aron eignuðust gullfallegan prins á fimmtudaginn, hann er svo sætur að ég varð bara veik fyrir honum þegar ég kíkti á þau á föstudaginn, til hamingju með gullmolann Elsku Sólveig og Aron.

Svo fara þessi próf að byrja, úff það verður strembið, er smá stressuð en ég hef góðan tíma til að læra fyrir þau, sem betur fer, ég verð búin 14.des og þá verður bara slakað á eftir það.
Ég og mamma fórum í herbergið hans litla í gær og það er ekkkert smá flott núna, mikið pláss til að leika sér og rúmið alveg æði :o)
Ég er líka að pæla í því að mála einn vegg röndóttan í jólafríinu þannig að ég get dundað mér við það þegar hann er á leikskólanum :o)

En það kemur bara í ljós.

Svo er það myndataka næsta mánudag þegar litli á alvöru afmæli, öll fjölskyldan ætlar að mæta,það er að segja, ég , litli, mamma, mía, amma og afi :o)

Enda er þetta fjölskyldan mína og litla :o)

En amma og afi eru komin í heimsókn þannig að ég hef þetta ekki lengra núna :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli