Notes
Hvar skal ég byrja?
Allavega þá átti mamma afmæli á föstudaginn og það var sko veisla, fullt af fólki og nóg af góðum mat.
Mamma ekkert smá sátt við gjafirnar frá okkur fjölskyldunni :O)
Svo var bara farið snemma að sofa, ekki viljandi samt en það var svo gott að sofa svona lengi.
Svo á laugardeginum fórum við litli með aldísi og Sævari í bæinn og kíktum í Ikea og smá verslað þar, svo í Perluna og verslað smá þar :oS og svo í Kringluna og smá verlsað þar.
Ég keypti nánast allt á litla eða fyrir hann en ég keypti mér einn hring sem kostaði ekki nema 295 eða eitthvað þannig að ég gat ekki sleppt því, svo í gærkveldi fórum við Aldís smá á rúntinn og Helena frænka hennar kíkti með, bara stuð á okkur með félagann hennar Helenu :op
En svo í dag fórum við litli í sunnudagaskólann og það var alveg fínt, náðum að draga Bigga Júlla og Kristján Árna með :o)
og svo var bara farið heim og slakað á, en reyndar í kvöld þegar litli er sofnaður þá verður bara lært eins mikið og hægt er, ætla að reyna að komast framúr eins og ég var í byrjun annarinnar, en já fyrst ég er að tala um skólann þá verð ég að koma því að, að ég var með hæðstu einkunn í stærðfræðiprófi yfir bekkinn, læðsta einkunnin mín er 7,9 og hæðsta 10,0 (í ölum fögunum )og það fyndna er að læðsta einkunnin mín var í stærðfræðiprófinu sem ég var hæðst í yfir bekkinn :o/
En ég er búin að setja yfir 300 myndir eða eitthvað inn á síðuna hjá litla :o)
Kíkið á það ef þið eruð með lykilorðið :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli