09 október 2006

Myndataka

jeijjjj ég er búin að panta tíma fyrir litla í myndatöku, ohh það verður svo gaman en samt verður svo leiðinlegt því hún Tanja okkar verður ekki með eins og síðast.
En við tökum þá bara eitthvað dót sem hún átti með :o)
En já það fera að styttast í afmælið hjá litla, úff ég veit ekki hvað ég á að bjóða mörgum, veit allavega að ég ætla að hafa þetta eins og í fyrra, vinir og börn um daginn og fjölskyldan um kvöldið, það var ekkert smá fínt, en ég er allavega búin að kaupa afmælisgjöfina hans og bíð spennt eftir að sjá hann opna hana, eða þær, þetta eru svo margar gjafir.
Svo á múttan mín afmæli á föstudaginn og Mía systir í desember og ég í janúar, en hún Tanja hefði líka átt afmæli nóvember og ég ætla pottþétt að halda upp á það, ætli ég kaupi ekki bara köku eða baki eitt stykki (efast samt um að ég nenni að baka) og svo verður sko sett kerti á kökuna.

Ég er að pæla í því að kaupa eins skyrtur á nafnana eða það er að segja ef ég næ afa í myndatökuna, vona það allavega :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli