20 október 2006

jibbý jei jibbý já, eða kannski ekki.

Alltaf er maður sami vitleysingurinn, afhverju er maður það?
Ég væri alveg til að geta farið aftur í tímann og sleppt því að segja það sem ég sagði og segja frekar já í staðin fyrir því sem ég sagði.
AAAAARRRRGGG en svona er þetta víst, það er ekki hægt að breyta því sem er búið og gert :o(
Ég verð bara að líta á björtu hliðarnar og vona bara að þetta séu ekki endalokin (held að Aldísi sé eina sem skilji þetta sem ég er að babla um)

En allavega þá er ég og litli minn, Aldís, sonur hennar og kallinn hennar að fara upp í bústað næstu helgi, sem verður bara gaman, haft það notlegt og kósý.
Það er nefnilega vetrarfrí í skólanum föstudaginn 27 og mánudaginn eftir það þannig að það verður löng helgi :o)
Ohh þetta verður bara gaman, kannski koma fleirri með en það er ekki 100%, það er heitapottur þarna þannig að við foreldrarnir verðum örugglega vel soðin á kvöldin þegar krílin eru sofnuð :o)
Svo verður kíkt í Baulu, það er möst, alveg eins og í gamla daga þegar ég fór með afa og ömmu í smá ísrúnt upp í baulu á sunnudögum, stundum á laugardögum þegar ég og afi vorum að stelast :op
En ég hef þetta svona stutt núna því ég ætla að fara að laga til og kíkja svo kannski út á röltið með litla á eftir :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli