04 október 2006

Ég er alveg rólegur :o)

Þetta blessaða fermingarafmæli er bara búið að vera pain, svo mikið vesen og bara algjört bull, er líka mjög fegin að þetta sé allt búin en samt svolítið sár að þetta sé búið, en ég get allavega sagt það að þetta heppnaðist bara vel :o)
Ekkert smá góð mæting, frábær stemming og bara gaman, reyndum að fara í kokkinn en það var ekkert að virka þar sem flestir voru einum of ölvaðir :op
Skúli kallinn alveg að meika það með að þeyta skífum :o)
Ég held að hann eigi bara að hætta sem dyravörður og fara bara að starfa sem dj.
En hey strákar, takk æðislega, það er að segja Biggi og Skúli og reyndar má þvottabjörninn (þorsteinn) fær smá þakkir fyrir að standa allan tímann inni í fatahenginu :op
Þið eruð bara æði :o*
Svo þegar klukkan sló 01:00 þá var hennt öllum út og haldið niður í miðbæ keflavíkur og haldið áfram að djamma, ég kíkti á alla staðina en ég verð að segja að þessi TRIX staður er bara ömurlegur, ekkert smá mikið pakk þarna og leiðinlegt fólk, en H.inn og Yello voru alveg að meika það, Paddys var svosem í lagi en ég var ekki að nenna að sitja bara að spjalla, ég vildi dansa og ég gerði það, ég var reynar bara mest með Skúla en svo hitti ég líka stelpurnar og var eitthvað að dansa með þeim, en skúli tautaði endalaust á þessum blessuðu orðum, ég er alveg rólegur :op
En þetta kvöld heppnaðist ekkert smá vel en sunnudagurinn var bara leiðinlegur, ég fór nefnilega ein að þrífa salinn sem var bara leiðinlegt, en Íris og Unnur hjálpuðu reyndar smá, takk stelpur :o*

En já það ver víst búið að skipa mér í nefnd fyrir næsta fermingarafmæli, en sem betur fer þá eru fimm ár í það :oS

En já, ég fer að laga þessa síðu, er komin með smá ógeð af henni og svo eru líka linkarnir svolítið úreldir hérna til hliðar :o/

Muna svo að commenta allir, þó það sé ekki nema bara að kasta inn kveðju :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli