Lífið og tilveran
Ég er búin að vera að hugsa svolítið mikið upp á síðkastið.
Ég var að pæla í því hvað ég ætti að gera í lífinu og draumur minn er svolítið flókinn.
Ég hefði ekkert á móti því að fara í og læra
- Flugmanninn
- Lögregluna
- Arkitektinn
- Listnám
- Klára stúdentinn
- Þroskaþjálfann og margt fleirra
Veit bara ekki hvað ég vil gera nákvæmlega núna.
En já, útí aðra sálma, litli kallinn minn er byrjaður á leikskóla :o)
Ekkert smá duglegur strákur, hann er reyndar ekkert búinn að fara þessa vikuna því hann er búinn að vera veikur, litla skinnið :o(
En hann er allur að braggast.
Ég er bara búin að vera heima með honum og læra og svoleiðis, kemst vonandi í skólann á morgun, þarf líka að fara í kvöldskólann á morgun, en já ég er komin með barnapíu og hún heitir Hildur, hún er bara æði og Birgir dýrkar hana.
Svo er ég bara búin að vera að plana fermingarafmælið og það gengur bara svoan þrusu vel, en ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ætla að fara að kúra með kallinum mínum :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli