Dó en lifnaði við :o)
Vá þessi dagur var hreinasta snild, ég byrjaði á því að vakna klukkan 06:45, fór í sturtu og gerði mig til, sá um litla kút og svo skutlaði ég honum á leikskólann 07:45 og fór bara beint í skólann, ég fór í stærðfræði og þar var smá upprifjun fyrir næstu viku.
Svo eftir tímann fórum við Unnur og Lilja á pöddunni minni (bílinn minn) niður í 88 hús því við áttum að hittast þar krakkarnir úr Sam tímanum mínum, það var einhver forvarnardagur sem var bara æði, ég fékk að leika sjúkling og vera í bíl sem var klipptur, ég átti að leika látna manneskju og fékk því að fara í líkpoka og inní líkbíl, þetta var mjög skrítin upplifun en samt áhugaverð.
Við prufuðum að fara í stól sem leyfir okkur að finna hvernig höggið er ef við myndum klessa á á 7 kílómetra hraða, fengum einnig að prufa gleraugu sem sýna hvernig er að vera öfurölvi, bara töff, áttu að labba með einhverjum línum og gera ýmissar kúnstnir en það var frekar erfitt fyrst en það tókst.
Svo voru tveir fyrirlestrar og þeir voru mjög áhugaverðið, en til að toppa daginn þá fékk ég glerbrot í augað þannig að ég fékk að prufa eitthvað mjög skrítið tæki með einhverjum vökva í svo gæerbrotið færi, á meðan tækið var við augað kom vökvi og ég þurfti að blikka auganu svo glerbrotið færi.
Mjög skrítið.
Eftir allt þetta frábæra dæmi fór ég bara á leikskólann og sótti litla, fór heim, gaf honum að borða, svæfði hann, lærði, fór með mömmu út og svo bara heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli