27 ágúst 2006

Margt og mikið

Jæja, það er búið að gerast alveg fullt hjá mér, er búin að vera að sparsla, mála og alles.
Alveg ágætt en samt svona smá tímafrekt.
Búin að vera að ***** um helgina, fór svo með Aldísi í gær á rúntinn og bjölluðum í Möttu og hittum hana á Paddys, ekki leiðinlegt að hitta hana :o)
Vorum að rifja upp góðar stundir síðan við unnum saman í Nesprýði sumarið 2004.
Ég og Aldís fórum svo að sækja Skúla á bílnum hans Bigga frænda, netti kaggninn ( bíllinn sko :op )
Skúli alveg að á fullu að hringja í alla og láta vita að hann væri á lífi, voru víst 40 og eitthvað miss calls á símanum hans, hann lagði sig víst áður en hann fór á djammið.
Rúntuðum svo eitthvað smá og fórum svo bara heim.
En ég er búin að ákveða nýja móttóið mitt, það er maður lifir bara einu sinni, allt í lagi að flippa smá :o)

En svo er það bara skóli á morgun, þarf reyndar að skreppa í smá stund úr tíma með einhverja pappíra en það er ekkert mál.
Svo er það bara fundur annað kvöld og slaka á.
En já ég fer í kvöldskóla, fæ reyndar að vita það 100% í kvöld, verður einhver fundur eða eitthvað sem segir hvaða fög verða kennd.
Vona bara að mitt verði kennt, mamma og ég ætlum nefnilega að skella okkur saman í eitt fag :o)
Alveg súper duglegar :op
En ég ætla að fara að læra, þarf víst að skrifa einhverja ræðu fyrir morgunn daginn :o$

Engin ummæli:

Skrifa ummæli