23 ágúst 2006

Afsakið hlé

Afsakið hlé vegna bilana.
Nei nei ég segi bara svona, tölvan er reyndar búin að vera biluð en er komin í lag núna en fer í viðgerð eftir nokkra daga aftur, vona bara að hún komi strax aftur því það er mjög erfitt að lifa án tölvunnar, ég komst að því þegar hún var í viðgerð.
En allavega er ég byrjuð í skólanum og svaka gaman, ég tek 12 einingar en gætu orðið 15 en það kemur í ljós eftir helgi.
Er búin að vera á fullu í leyndóinu mínu (þeir vita hvað það er sem þekkja mig allra best) en ég þarf að fara að hægja aðeins á mér svo ég geti stundað námið nánast 100 %
Mamma var svo mikið æði að hún bjargaði mér alveg, ég hefði ekki getað farið í skólann fyrr en eftir ca 2 vikur ef mamma hefði ekki bjargað mér, hún tók sér frí til að vera með grallarann þangað til hann byrjar sjálfur í skóla, ég er ekki að trúa því að litli engillinn minn sé að fara að byrja á leikskóla, þetta er bara ekki satt, hann er enn svo lítill.
En hann hefur bara gott að þessu, fá að umgangast börn og leika sér, en ég vona bara að muni hlaupa í fangið á mér í hvert skipti sem ég kem og sæki hann, en það kemur bara í ljós.
Takk mamma fyrir alla hjálpina :o*
En já ég hef gert margt og mikið núna síðustu daga en er ekkert að nenna að tjá mig um það.

Mía systir er bara best, hún reyndar bjargaði mér alveg, kiss kiss og knús elsku besta systir fyrir allt (þú veist hvað ég meina)

En já ég var að leita eitthvað hérna í tölvunni minni þegar ég fann fullt af æðislegum myndum, ég mundi ekki einu sinni eftir því að ég ætti allar þessar myndir og svo fór ég að skoða myndir af litla síðan hann var ný fæddur og vá hvað hann var mikið BABY, en samt er ekki einu sinni 2 ár síðan, en þvílíka breytingin á þessum ca 2 árum. Ég trúði þessu varla.

Ég hef mikið verið að pæla í því að fara að lita á mér hárið og ég veit ekki hvort ég eigi að hafa sama lit, dökkbrúnt eða næstum því svart.
Endilega segið mér hvað ykkur finnst :o)

Vonandi verður ekki svona löng bið í næsta blogg en munið að ég bít ekki þannig að ég vona að þið eigið eftir að commenta eitthvað smá :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli