19 júní 2006

Allt eitthvað svo öðruvísi

Lífið er svo skrítið, Tanja farinn og söknuðurinn er svo mikill.
En ég hef samt margt gott að segja frá, ég er búin að ná 2 prófum í skólanum og fékk meira að segja eina 10 fyrir eitt próf.
Ekkert smá ánæg með það.
Ég var að skila af mér félagsfræðiverkefninu og ég fékk 9 úr því, ekkert smá ánægð :o)
Svo er það munnlegaprófið sem ég fer í á fimmtudaginn, svo í vikunni eftir það þá eru lokaprófinn, það borgar sig að læra eins mikið og hægt er svo maður nái.
Ég ætla mér að ná þessu, því þá fæ ég 5 einingar sem ég verð að fá til að komast inn í lögregluskólann og líka alveg fullt af einingum í viðbót.
Ég fer ekki í lögregluskólann í Janúar því ég þarf að vera tvítug í ár en ég fer þá fara í skólann í janúar 2008.
Ég er búin að plana þetta allt, ég fer í skólann núna í haust og vor og svo ætla ég að sækja um vinni í sögreglunni um sumarið og vonadi fæ ég að vinna líka um haustið og svo bara í skólann.
Sumum finnst svo skrítið að ég skuli fara í Lögregluna en öðrum finnst þetta vera bara EKTA ég eins og Aldís vinkona segir.
Mitt mat á þessu er að það er frábært að vinna hjá Ríkinu, það er svo öruggt, mjög litlar líkur á að maður verði rekinn nema maður geri eitthvað af sér sem ég ætla mér ekki að gera.
Ég ætla líka að fá þvílíkt góðar eikunnir úr prófunum þar, ætla ekki að vera bara þessi venjulega manneskja sem rétt nær, ég ætla að fá allt yfir 8 og helst allt yfir 9.
Ég veit að ég mun geta það með því að læra og læra og læra.

En já Birgir er kominn inn á leikskóla og byrjar í Ágúst, eflaust um miðjan mánuðinn.
Svo erum við að fara til Spánar núna eftir nokkra daga og er mjög spennt fyrir því.
Það verður svo þægilegt að komast aðeins af klakanum.

Svo er það bara Eyjar og stanslaust stuð þar, fer með Lilju og svo verður Aldís og Eva þarna.
Íris er að pæla í því að fara og vonandi gerir hún það.
Er líka búin að vera að suða í Hönnu og kallinnum hennar að koma líka en þau eru eitthvað efins um að fara.
En ég held bara áfram að suða.


Muna svo að kommenta fólk.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli