

Langt síðan
Jæja, ég er ekkert að standa mig með þessa síðu, ég er líka ekkert viss um að ég nenni að halda áfram með hana, en hver veit.
Allavega þá var ég að þjóna á föstudaginn síðasta, hjá Sissa pabba Sollu vinkonu. Svo á laugardaginn þá fórum við Solla og Aron út að borða (áttu auðvitað að vera fleirri en svo var ekki) við fórum á Duus og svo þurfti ég að fara heim þegar við vorum búin að borða því Birgir neitaði að fara að sofa hjá Míu og mömmu :op
Hann vill bara mömmu sína því ég var eingastund að svæfa hann :op hehehehehehe
Við kíktum svo á rúntinn og svo fór ég bara til Bigga frænda og var eitthvað þar og svo kíkti allur hópurinn á Traffic og þar var eitthvað dansað og tjattað en svo ákvað ég bara að skella mér heim, enda var ekkert svo gaman þarna.
Á sunnudeginum fékk ég að leggja mig og það var ekkert smá NÆS, hef ekki gert það í mjög langan tíma :o)
Á mánudaginum þá þurfti ég að fara í rvk að kaupa hundamat og líka náttföt á aðaltöffarann.
Ég keypti alveg 4 náttföt, derhúfu, skyrtubol og dót handa honum. Hann verður ekkert smá flottur í sumar :o)
Svo fór ég á mömmudæmi í kirkjulundi í gær og svo í rvk með Gerðu og Evu B og krílunum okkar, kíktum bara í kringluna og svo bara heim, við ætlum að reyna að fara í sund á laugardaginn :o)
En allavega þá er ég búin að segja hvað ég er búin að vera að gera en ég lofa EKKI að blogga strax því ég er ekkert að nenna þessu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli