Helgin
Já ég get ekki sagt að ég hafi gert mikið yfir helgina annað en að vera bara heima með fjölskyldunni.
En það var nú líka bara ósköp gott.
Ég fór reyndar í Rvk á föstudaginn því ég þurfti að fara til læknis og á meðan ég var inni hjá lækninum þá var Birgir bara hjá Míu sinni og fékk hann að leika sér í bílatæki og var sko ekkert sáttur að fara fyrr en ég rétti honum pening, ekki 10 kr, ekki 500 kr heldur 6000 kr og labbaði hann beint inn í bankann sem var þarna, hann er svo klár eins og mamma sín með að fara með peninga :o)
En því miður gat hann ekki lagt þessa peninga inn því ég þurfti að kaupa lyf :o(
Svo fórum við í Kringluna og ég var að leita mér að bol fyrir peninginn sem Solla gaf mér en fann engann en ég fann allt annað og er miklu ánægðari með það en einhver bol, takk solla fyrir afmælisgjöfina :o*
Ég fór svo inní dótabúðina til að gá hvort ég fyndi ekki eitthvað sniðugt dót handa Birgi, honum vantaði nefnilega nýtt dót, ég leitaði og leitaði en fann ekkert, svo fá ég loksins svona púsl með svona tappa sem stendur út sem börinin eiga að halda í, ég er búin að gera dauðaleit af svoleiðis en hef ekki fundið neitt nema eitthvað drasl og eitthvað sem hefur verið alltof dýrt.
En ég keypti tvö púsl og svo annað sem er eins og púsl en þú hreyfir bara myndirnar í staðinn fyrir að púsla, ekkert smá sniðugt :o)
Ég fór svo í útihlíf að leita að hjálmi en fann ekki neinn sem var nógu góður, þarf bara að leita betur, svo var ferðinni haldið í Hagkaup og beint í dótadeildina og ég sé svona dót sem ég var búin að leita að því Birgir fékk frá Jónasi vini sínum dót í jólagjöf og það er hægt að bæta endalaust við það þannig að ég keypti einhvernvegin dýragað með dýrum eða eitthvað og bílabraut.
Ekkert smá flott dót :o)
Við kíktum svo í húsdýragarðinn og það var ekkert smá gaman þar, þið verðið líka bara að sjá myndirnar sem ég á eftir að setja inn af honum Birgi inn á síðuna hans.(geri það sem fyrst)
Við rúlluðum svo bara heim og ég stökk svo í Bónus og Samkaup með Unni nágranna og kallinum hennar, sem er alveg fínasti gaur btw :o)
Svo í gær fór ég bara með Sollu, Aroni og Garðari í bíó á myndina Date movie sem var helvíti fín :o)
Svo í dag var bara tjillað og haft næs
Engin ummæli:
Skrifa ummæli