23 apríl 2006

Helgin afstaðin hjá mér

Já akkurat, en ég ætla allavega að blogga smá þar sem ég er ekkert búin að vera dugleg með þessa síðu.
En allavega þá á föstudaginn þá kíkti ég aðeins út með Lilju um kvöldið, kíktum á eitthvað konukvöld hjá xD og ég vil bara taka það fram að ég styð þá ekki.
En við stoppuðum bara eitthvað stutt þar, við fengum happdrættismiða en þegar við fórum létum við mákonur Lilju fá miðana og viti menn, þær unnu klippingu og litun, ég er alveg viss að þetta hafi verið minn miði.
Við kíktum svo á rúntinn og sóttum kallinn hennar Lilju og vini hans og skutluðum þeim í partý og við héldum bara áfram að rúnta.
Kíktum svo bara stutt til strákanna og vorum að horfa á lúða þáttinn á stöð 2 en ég og Lilja erum alveg sammála með það að þáttastjórnandi þáttarins er miklu meiri lúði en lúðarnir sjálfir.
Svo í gær, laugardag þá fórum við Lilja út að labba með krílin, ég með skæruliðann minn og hún með Ásdísi Birtu, ég fór að leita mér að buxum en fann því miður engar, svo fórum við bara á Langbest og fengum okkur að borða og svo bara heim, kíktum reyndar smá á rúntinn og svo bara aftur heim.
Svo um kvöldið þá fórum við út ég og Lilja, ég fór heim til hennar og hún lagaði hárið á mér, svo kíktum við á rúntinn og svo varð hún Lilja veik þannig að ég skutlaði henni heim og hitti þá Guggu og Gestínu og var með þeim restina á kvöldinu, vorum bara á rúntinum og kíktum svo á staðina, mesta stuðið var á H.inum en gólfið þar var ógeðslegt.
Við kíktum reyndar líka í Partý hjá Elmari en Bjarni mér og stelpunum en við stoppuðum ekkert lengi, kannski svona í 2 mín eða eitthvað.
En þetta kvöld var mjög fínt.
Ég ætla bara að halda áfram að hafa það næs en ég verð að fara í sturtu og helst bara aftur í náttföt.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli