26 mars 2006

Picturetrail.com/blingPicturetrail.com/bling
Herbergið

Jæja þá er þetta herbergi næstum því búið, ég get reyndar ekki gert neitt meira þar sem ég a´eftir að kaupa rúmið og dýnuna, en það sem eftir er er að láta sprauta stóru kommóðuna og neggla upp myndir og litlar hillur en annars er herbergið ekkert smá flott.

En já ég er ekkert búin að gera í dag nema að þrífa og gera herbergið flott :o)
Nennti ekki einu sinni að klæða mig :op
Ég reyndar fór samt út, fór bara á bakvið og hengdi bangsa á snúruna, ég sendi Unni vinkonu/nágranna sms og sagði henni að kíkja út á snúru hjá mér og hún sendi til baka ertu með dýragarð eða eitthvað álíka, ég svaraði henni bara og sagði að ég væri bara að viðra dýrin :op

En allavega þá ætla ég að fara að koma mér upp í rúm og fara að lesa smá, ég ætla að klára öll verkefnin fyrir páskafrí eða næstum öll, vil eiga eitthvað frí, if you know what i mean :o)

En ef það verður gott veður á morgun þá er ég að pæla að fara út að labba eða þrífa bílinn minn, hann er svo skítugur, er líka búin að fara oft á honum í bæinn síðan ég þreyf hann seinast, þarf reyndar að fara í bæinn á föstudaginn næsta en ég er ekkert að nenna því.

Quotes of the Day: The first principle is that you must not fool yourself - and you are the easiest person to fool.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli