25 mars 2006

Picturetrail.com/blingPicturetrail.com/blingPicturetrail.com/bling
Bloggið hvarf


Ég var búin að skrifa mjög langt blogg um daginn en það bara vildi ekki fara inn :o(
En allavega þá er ekkert svo mikið búið að vera að gerast hjá mér, bara í skólanum og svo bara heima, er reyndar búin að vera svo þreytt upp á síðkastið, hef bara alltaf sofnað með Birgi þegar ég er að svæfa hann, vakna svo milli klukkan 22 og 24, held svo bara áfram að sofa, ég veit bara ekki afhverju þessi þreyta er svona mikil hjá mér.
Ætli ég þurfi ekki bara að fara að taka inn einhver vítamín og fara kannski í ræktina.
En það styttist allavega í páskafríðið mitt, það verður sko langt frí.
Við krakkarnir ætlum út að borða og svo eitthvað leyndó sem bara við stelpurnar vitum um, strákar þetta kemur bara allt á óvart :o)
Vona að þetta verði nú skemmtilegt kvöld.
En ég hef nú ekkert meira að segja, ég er svo þreytt, ég hefði átt að leggja mig með Birgi.
Kannski ég hoppi bara upp rúm og kúri hjá honum :op
En já það er reyndar eitt sem ég get sagt, ég er sko algjör innanhúsarkitekt, ég er nefnilega að taka herbergið hans í gegn og er búin að kaupa inn í það og alles, á bara eftir að kaupa tvennt en það kemur bara seinna þegar ég á pening :o)
Þið verðið að kíkja í heimsókn og sjá hvernig útkoman verður þegar ég er alveg búin með herbergið :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli