Ætli þetta sé eitt safaríkt?
jæja, þá sit ég hérna á rassinum við tölvuna og er að blogga, ég er samt ekki alveg að nenna að blogga en ég hef ekkert annað að gera eins og er.
Ég er veik heima og er ekkert að nenna því, er að drepast í mjöðmunum og ég er ekkert að nenna að kvarta yfir því heldur, afhverju ætti fólka að nenna að lesa bloggið mitt ef ég myndi bara kvarta og kveina?
Ekki nenni ég að lesa blogg hjá fólki sem bloggar bara um það hve lífið er leiðinlegt eða djammið, sumir blogga bara um djammið og það er ekkert leiðinlegra en að lesa eingöngu um djamm.
Hefur fólk ekkert annað að gera en að djamma, spyr ég bara?
Æji hvað er ég að rugla hérna, ég er bara svo þreytt og bíð spennt eftir að mamma komi heim svo ég geti sagt góða nótt og farið upp í rúm að sofa.
En allavega þá kláraði ég loksins að mála myndina sem er búin að standa hálfkláruð inni í herbergi, ég byrjaði líka á annari en það verður bara svona mynd sem ég ætla að dunda mér með, ekkert flýta mér að klára.
Úff hvað þetta er leiðinlegt blogg.
Ég þarf að fara að gera eitthvað spennandi svo ég geti bloggað um það.
Hey já eitt...........
Drumur sem mér dreymdi í nótt var ÓGEÐSLEGUR, ég er enn að hugsa út í hann gæti þýtt, en ég nenni ekki að segja frá honum núna þannig að ég skelli honum hérna inn þegar ég nenni því.
Nei þetta var sko ekki safaríkt
Engin ummæli:
Skrifa ummæli