18 febrúar 2006

Til hamingju Ísland

Jæja, þá vann hún Silvía þessa keppni, ætli hún vinni aðalkeppnina líka? hvað heldur þú?
En allavega þá var þetta ágætt í tvinu áðan, Regína var frekar flott, ég fékk alveg gæsahúð, hún er líka bara svo spés.
Ég hefði alveg viljað að hún færi út fyrir okkur en það er víst ekki hægt að væla yfir því núna.
Ég er svo farin að spá í sumrinu, pæla í því hvar ég eigi að vinna og leita að barnapíu og svoleiðis sem skiptir máli, svo er ég þvílíkt að pæla að kíkja í helgarferð í sumar til London eða eitthvað.
Íris ertu ekki memm?
Var að kíkja á hótel og sollis en það er bara svo dýrt að vera á hótelum, er að pæla að vera bara á hostel, það er víst eitthvað ódýrara.
En ég ætla ekkert að pæla í þessu nema það sé einhver alveg 100% að koma með mér út.
En ég er ekki að nenna að blogga, er farin að vafra um á netinu og svo bara upp í rúm svo ég geti gert eitthvað skemmtilegt með sætasta strák sem til er í heiminum og það er auðvitað sonur minn.
Ég er svo heppin að eiga svona frábæran son, ég gæti sko montað mig endalaust á honum á þessu bloggi en ég ætla að passa mig að gera ekki of mikið að því.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli